Trúbadorakvöld í Einarshúsi

Trúbadorakvöld verður haldið í Einarshúsi laugardagskvöldið 27. febrúar nk. sem byrjar rétt fyrir miðnættið. Þeir sem áhuga hafa á því að taka þátt og spila með eru hvattir til að setja sig í samband við Vertinn í Víkinni í síma 864-7901 eða senda rafrænan tölvupóst á ragna@einarshusid.is

 


Líf og fjör við stýrið

Íris og LýðurÞað væri synd að segja að ekki væri búið að vera líf og fjör í húsi sorgar og gleði undanfarið því það er vægast sagt búið að vera brjálað. Herlegheitin byrjuðu á öskudagsveislu á öskudag er læknishjónin létu pússa sig saman með pompi og prakt með stórgóðu teiti í Einarshúsi. Allir voru klæddir grímubúningum og einkar skemmtilegt var að sjá hópinn sem þar var samankominn til að fagna. Að sjálfsögðu þótti við hæfi að smella myndum þeim nýgiftu við stýrið af Pourquoi pas? sem prýðir Kjallarann en nú þykir það varla maður með mönnum ef hann hefur ekki stillt sér upp við stýrið til myndatöku og keppst er við að ná að festa sem flesta þar á filmu.

 

Lengi hefur verið reynt að lokka og laða Halldór Smárason á stóra sviðið í Kjallaranum og það tókst að endingu og sú stundHalldór, Kalli og Benni rann upp á föstudagskvöldið.  Strákurinn er ekkert nema frábær og reyndar allir þeir sem stigu með honum á stokk þetta kvöld sem voru fjölmargir. Vertinn væntir þess að þessir strákar taki lagið aftur á góðri stundu. Gestir frá nærliggjandi byggðarlögum eru orðnir mjög duglegir að sækja húsið heim og heyra má að Kjallarinn sé heitasti staðurinn á Vestfjörðum og þótt víðar væri leitað. Það er orðið nokkuð ljóst að stækka þarf stóra sviðið í Kjallaranum því hljómsveitirnar far ört stækkandi og verða umfangsmeiri með degi hverjum. Búið er að hagræða aðeins í salnum og færa til stóla og borð og prýðis dansgólf hefur myndast þar sem hægt er að dansa frá sér allt vit eða því sem næst og eikarviður verður lagður á gólfið innan tíðar. Það má því hverjum manni vera ljóst að hægt verður að dansa þegar þannig viðrar.

Bjarni kristinnHljómsveitin Haltur leiðir blindan sló enn og aftur í gegn á laugardagskvöldið á þrumudansleik en þar spilaði með ungur og mjög efnilegur piltur á gítar eða bróðursonur títtnefndrar, Bjarni Kristinn, svo snilldarvel að það tók varla tali. Hann tók sóló eins og hann hefði aldrei gert annað með bandinu og fékk að launum mynd af sér við stýrið og aðdáun gestanna. Hann fær vonandi að láta ljós sitt skína í framtíðinni en til gamans má geta þess að aldursmunurinn í bandinu var 41 ár á milli yngsta og elsta hljóðfæraleikarans, samt átti enginn í erfiðleikum með að spila í takt. Haltur leiðir blindan mun stíga fljótlega á stokk aftur og síðan aftur og aftur og aftur í náinni framtíð.


Rómantískt kvöld með Benna Sig. og Halldóri Smára

Rómantíska kvöldið með Halldóri Smárasyni og Benedikt Sigurðssyni verður haldið í Einarshúsi föstudagskvöldið 19. febrúar. Þá verður himnesk sjávarréttasúpa í boði og heimabakað brauð. Herlegheitin hefjast um kl. 20:00 og standa fram á kvöld. Um miðnættið fara þeir félagar niður á stóra sviðið og leika og syngja fram á nóttina.

Betra er að panta borð í tíma en verðið er 1500,- á mann.


Hljómsveitarferðin í Ýdali

Það tekur aldeilis á að vera fylgifiskur hljómsveitarinnar Haltur leiðir blindan en farið var í Ýdali um helgina til að spila í afmæli og dansleik þar á eftir. Skemmst er frá því að segja að aldrei fyrr höfðu sést föngulegri grúpp-píur en þær sem fylgdu sveitinni norður heiðar á litlu rútunni enda þóttu þeir ein besta hljómsveit sem stigið hafði þar á stokk í langan tíma að sögn heimamanna. Mikið var dansað enda takturinn góður. Unun var að sjá einstaka danskunnáttu unga fólksins þarna fyrir norðan sem kunni sporin upp á tíu og lét sína fimi á dansgólfinu óspart í ljós. Þegar Vertinn fór að spyrjast fyrir um hvernig stæði á þessari sérstöku fimi unga fólksins í Þingeyjarsýslunni í dansinum kom í ljós að danskennsla er í grunnskólanum og því er danskunnáttan sem raun ber vitni. Það er skemmtilegt að geta státað af svona góðu dansfólki. Vert er að geta þess að hljómsveitin Haltur leiðir blindan mun leika fyrir dansi á laugardagskvöldið kemur í Einarshúsi og þá geta allir sem vettlingi geta valdið komið og hlýtt á eina bestu hljómsveit sem stigið hefur á stokk á Norðurlandi í manna minnum.

Títtnefnd er þó alveg búin að vera eftir helgina. Langar og strangar rútuferðir og brjálað dansiballið fram á morgun gerir það að verkum að úthaldið virðist búið í bili og hvíldarinnlögn þætti trúlega heppileg til að auka þol og þrótt. Það mun þó hverjum manni vera ljóst að heilsan verður orðin góð á morgun eftir góðan nætursvefn enda nokkuð mikið að gera fram yfir helgina.


Viðtalið við soninn

Hér kemur viðtalið við hógværa flugdúxinn sem birtist á stöð tvö nýverið bara rétt fyrir þá sem misstu af því.

Tilhlökkun í bland við smá fréttir

Mikil tilhlökkun ríkir hjá Vertinum um þessar mundir enda er ferðinni heitið norður í land á föstudag sem fylgifiskur hljómsveitarinnar "Haltur leiðir blindan" sem er að slá svona heldur betur í gegn. Það er ekki ómerkari staður en Ýdalir sem pantað hafa þessa einstöku og lagvissu tónlistarmenn til að leika og spila í afmæli og svo á stuðballi á eftir og þeir eiga án efa eftir að standa undir nafni. Öll hersingin fer í rútu norður og fá makar þeirra ánægju aðnjótandi að fá að fljóta með enda ómissandi þáttur í tónleikaferð sem þessari og eru svokallaðar "sprittbremsur" á tónleikagæjana svo þeir haldi sig á mottunni og haldi lagi út í nóttina. Þetta er auðvitað alls ekki satt því strákarnir eru til fyrirmyndar hvar svo sem þeir koma og þurfa alls ekki að hafa betri helmingana með nema upp á punt og rétt til að hreykja sér af því hversu vel giftir þeir eru. Vertinn fer í ondúleringu af þessu tilefni til Súðavíkur á morgun eftir að hafa smellt af myndum við merkilegt tilefni í fyrramálið fyrir Víkarann og þá verður allt klárt fyrir Norðurland komandi helgi.

Húsbóndinn dvelur í höfuðborginni en hundurinn Dollar var að taka eitt prófið ennþá og stóðst það með miklum glans enda frábær leitarhundur sem vinnur vel með húsbónda sínum. Þeir voru svo bráðheppnir að hitta afmælisbarn dagsins en unga konan hún Elsa er 21 árs í dag og hélt upp á það í Baðhúsinu hennar Lindu Pé en þar vinnur hún núna með alheimsfegurðardrottningunni fyrrverandi og hefur það fínt. Þórunn tengdadóttir vinnur í sambærilegri vinnu upp í Heilsuakademíunni í Egilshöll svo þær þekkja svona lagað út og inn og líklegt að títtnefndri verði jaskað út í næstu borgarferð. Ekki þarf að hafa margar sögur af frægðarsól Andra einkasonar sem rís hátt um þessar mundir enda stóð hann sig afburða vel í náminu sínu og dúxaði með glans atvinnuflugmannsprófin.

Prímadonnurnar eru því einar heima og hafa það afbragðsgott enda leikur lífið við hvurn sinn fingur og spennandi ævintýri bíða færis við hvert horn. Ukulele Lilja springur út hvern einasta dag og blómstrar gjörsamlega um þessar mundir svo lífið er einkar ljúft og allir virðast í hinum besta gír. 

Þorrablót og rómantísk kvöld bíða færist um þar næstu helgi og Einarshúsið mun iða af lífi og fullt verður af spennandi augnablikum fram að því. Því er vert að njóta líðandi stundar og finna ilminn af lífinu í vindinum og láta stundina líða átakalaust hjá.


Haltur leiðir blindan

Haltur leiðir blindanHljómsveitin Haltur leiðir blindan mun stíga á stóra sviðið í Kjallaranum þann 20. febrúar nk. er klukkan er langt gengin í miðnættið. Þeir munu halda úti taumlausu stuði fram á nótt og spila músik sem tryllir og tætir lýðinn. Þeir stíga á stokk að afloknu þorrablóti sem haldið verður fyrr um kvöldið uppi í sparisalnum svo vænta má þess að mikið líf og mikið fjör verði í húsinu þetta kvöld og nótt. Nú skal hver sem betur getur taka þess helgi frá fyrir herlegheitin sem í boði verða í húsi sorgar og gleði í Bolungarvík og setja sitt mark á menningarlíf staðarins.

Rómantík með Halldóri Smára og Benna Sig.

Halldór Smára

Sannkölluð rómantík mun sveima í Einarshúsi föstudagskvöldið 19. febrúar því  Benni Sig. og Halldór Smára ætla að syngja ljúfa söngva og sveipa andartakið seiðandi og töfrandi ljóma yfir einkar ljúffengri sjávarréttasúpu. Kertaljós og kósýheit verða allsráðandi og kvöldstundin ljúf og góð eða þar til þeir kappar færa sig niður í Kjallarann og koma sér fyrir á stóra sviðinu. Þá skal dansað eins og enginn sé morgundagurinn.

Benni Sig


Lokakvöld í þriggja kvölda keppni

Lokakvöldið verður í þriggja kvölda keppni á föstudagskvöldið 12. febrúar nk. Þá hreppir sá sem hefur fengið flestu stigin eftir þrjú spilakvöld veglegan vinning að launum. Einnig fá þeir sem hafa flestu stigin það kvöld í karla og kvennaflokki vinning sem og þeir sem hafa fæstu stigin.


Kostulega Kjallarakeppnin

Það á nú varla að þurfa að geta þess að kostulega Kjallarakeppnin verður haldin á í kvöld, föstudagskvöld. Spyrlar eru þeir Ragnar Högni Guðmundsson og Hlynur Reynisson en hann vinnur á Náttúrurstofunni. Vænta má þess að keppnin verði hörð og spennandi og eru bráðgáfaðir beðnir um að setja sig í stellingar. Ef Mæja Bet og Sigurbjörg Hallgríms mæta má búast við geysilegri keppni milli þeirra keppenda sem hafa eitthvað vit í kollinum og spennandi verður að sjá hverjir bera sigur úr býtum. Kolamolinn verður á kostakjörum að vanda á þessum kvöldum og brýnt er fyrir hvern þann sem telur sig eiga erindi að mæta í tíma.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband