Kjallarakeppni aflýst

Kjallarakeppninni sem halda átti föstudagskvöldið 19. mars verður aflýst af óviðráðanlegum orsökum. Maja Jóns sem átti aðvera spyrill mun spyrja við betra tækifæri.

Karlar!

Ennþá örfá sæti laus á Karlakvöldið í Einarshúsi á laugardagskvöldið.

Halldór út, Ólafur inn

Ólafur Kristjánsson fv. bæjarstjóri Bolungarvikur mun halda utan um veislustjórn í Einarshúsi í stað Halldórs Halldórssonar bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar á Karlakvöldinu sem halda á í Einarshúsi á laugardag. Óli kann nokkrar skemmtisögurnar og hefur einkar góða lagni á því að snúa þeim upp á heimamenn. Ennþá eru örfá sæti laus á karlakvöldið og nauðsynlegt að fara að panta borð.

Bræður og systur fjalla og fjöru

Vertinn brá undir sig betri fætinum og fór í þorpið við fjörðinn þar sem hafið eða fjöllin laða menn að eða var það kannski bara fólkið ?  Það voru hinir einstöku Fjallabræður sem fengu títtnefnda til að leggja land undir fót. Þeir buðu upp á einstaka tónleika í íþróttahúsinu á Flateyri og skemmst er frá því að segja að ómur  þessara söngelsku sona fjallanna og fjörunnar hér vestra var magnþrunginn. Stundinni mátti líkja við það að frelsast á samkomu hjá Fíladelfíu og hitta skaparann fyrir á förnum vegi og Vertinn varð fyrir þvílíkum hughrifum að það hálfa væri heill hellingur. Gjörsamlega keyrði um þverbak er Bolvíkingurinn Hjörtur Traustason söng Freyju, lag Magnúsar Þórs Sigmundssonar og gerði að sínu. Það var einstök upplifun og hann algjörlega sýndi það og sannaði að hann er einn af Íslands vænstu sonum. Glöggt mátti sjá hve sjávarþorpið fyrir vestan hafði fóstrað hann vel og umvafið fjöllum sínum og gert úr honum fjölhæfan og frambærilegan einstakling.

Dagurinn einkenndist af bræðrum og systrum fjalla og fjöru hér vestra því Elísabet systir þessa einkar lagvissa fjallabróðurs söng í Einarshúsi ásamt Bjarna bróðursonar títtnefndrar en þau unnu söngvakeppni framhaldsskólans á Ísafirði. Á Vertinn þá tvo fulltrúa í aðalkeppninni því Bryndís bróðurdóttir vann keppnina á Laugum svo þau systkinin etja kappi á Akureyri innan tíðar.

Benni Sig. var svo valinn íþróttamaður ársins en gaman er að geta þess að hann er einkar lagviss og hefur gott tóneyra líkt og Fjallabróðirinn sem söng svo fallega um Freyju á tónleikunum. Báðir þessir bræður fjalla og fjöru troða upp í Einarshúsi um páskana og þá verður fjör og þá verður gaman enda heiður að fá þá báða á stóra sviðið ásamt öllum hinum sem koma um páskana.

 

 


Spilavist

Annað kvöldið í þriggjakvölda keppni er í kvöld kl. 21:00. Þá er lag fyrir spilafíkla að mæta og spila með.

Karlakvöld í Einarshúsi 20. mars

Það er enginn annar en matreiðslusnillingurinn og Vertinn í Tjöruhúsinu, Maggi Hauks, sem verður gestakokkur á Karlakvöldi í Einarshúsi þann 20. mars nk. Gómsætt sjávarréttahlaðborð dýrindisrétta mun verða í boði og nokkuð ljóst má telja að enginn verði svikinn af trakteringunum enda er Maggi þekktur fyrir eðaleldamennsku og sérlega bragðgóðan mat. Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar mun halda utan um veislustjórn en hann er sagður stórskemmtilegur á köflum og kann fádæmin öll af bröndurum og skemmtilegum sögum um mann og annan sem hann segir ugglaust um kvöldið.

Þetta karlakvöld kemur að einhverju leiti í stað hins hefðbundna Kútmagakvölds Lionsmanna sem hefð hefur verið fyrir að halda en verður ekki í ár. Kútmaga má eflaust sjá á sjávarréttahlaðborðinu en þeir verða þó ekki í aðalhlutverki heldur bara svona með í bland. Öllum körlum sem náð hafa tilskyldum aldri til skemmtana er því frjálst að panta borð og festa sér sæti enda má ætla að margir hugsi sér gott til glóðarinnar og mæti til að lyfta sér upp með öðrum körlum. Karlar úr nágrannabyggðarlögum er frjálst að mæta og þá mega þeir vera bæði stórir og litlir, feitir og mjóir og bara allavega. Skilyrðið er að það sé einlægur ásetningur að hafa gaman.

Ekki er lagt upp með það að hafa einhverja lifandi tónlist á stóra sviðinu á eftir enda verður svo brjálað stuðið um páskana að það hálfa væri heill hellingur og fjölmargir beðið um að fá að spila og syngja. Ef einhver hefur þó áhuga á að mæta og taka lagið eftir karlakvöldið skal Vertinn ígrunda það rækilega.

Hverjum manni verður þó að vera það ljóst að panta þarf borð og betra fyrr en seinna og eru menn hvattir til að láta af þeim ósið að panta korteri áður en herlegheitin eiga að byrja. Og til upplýsinga má geta þess að þegar er byrjað að taka við pöntunum.


Kjallarakeppni og trúbador á föstudagskvöld

Skemmst er frá því að segja að fjörið heldur áfram í húsi sorgar og gleði. Róbert Anni Gunnarsson verður spyril í Kjallarakeppni á föstudagskvöldið og hefst keppnin um kl. 22:30. Það er trúlega betra að vera vel með á nótunum þegar strákurinn fer að spyrja því ætla má, ef hann er jafn klár og ættir hann segja til um, kunni hann eitt og annað fyrir sér. Gummi Hjalta stígur svo á stóra sviðið strax í framhaldinu og leikur og syngur út í nóttina og því sjálfsagt að taka daginn frá og mæta í tíma og tjútta svo fram á nótt á nýja parketlagða dansgólfinu í Kjallaranum.


Viðburðarríkt

Lífið hjá Vertinum var viðburðarríkt þessa helgina eins og svo oft áður. Hlutverkin eru mörg og störfin margbreytileg að vanda enda getur títtnefnd brugðið sér í flestra kvikinda líki ef svo ber undir. Veitingamaðurinn er þó ávallt settur í fyrsta sætið enda er það aðalstarfið sem þarf að sinna með natni. Stór hópur manna á leiðsögumannanámseiði drakk í sig sögu hússins í hádeginu á laugardaginn og fékk einkar góða frásögn yfir einni bestu sjávarréttasúpu sem um getur og gaman var að sjá hve menn voru áhugasamir um söguna. Varla var sagan á enda er ávarp þurfti að flytja á afmælishófi Heilsubæjarins í Bolungarvík sem fagnaði 10 ára afmæli og varla vannst tími til að skipta um hlutverk en það tókst eins og til var ætlar enda fetar Vertinn í Víkinni þokkalega í fótspor forseta bæjarstjórnar þegar þannig viðrar og er nokkuð snögg að skipta um ham ef á þarf að halda.

Vestan 8Myndavélin var svo ekki langt undan því taka þurfti myndir á árshátíð eldri borgara bæjarins og þar var smellt af í gríð og erg og ljósmyndirnar hafa nú litið dagsins ljós á vefnum. Stúlknahljómsveitin Vestan-8 tók lagið og gerði það snilldarvel en ukulele-Lilja er þar undir, yfir og allt um kring ásamt fleiri ungum og efnilegum tónlistarstelpum í Víkinni. Stelpurnar syngja og spila á hin ýmsu hljóðfæri og ber þar að nefna harmonikku, fiðlu og hið stórskemmtilega hljóðfæri ukulele sem hefur heillað Lilju svo um munar.

Fámennt en góðmennt var í Kjallaranum fram á morgna bæði föstudags og laugardagskvöld en samt sem áður var dansað á nýja dansgólfinu eins og enginn væri morgundagurinn og títtnefnd hafði í nógu að snúast við að dansa við mann og annan. Þar fer saman vinna og ánægja því Vertinum finnst sérstaklega gaman að dansa og gerir það óspart sé þess nokkur kostur. Einn gestanna fór bæði í spígat og splitt og sýndi sérlega fimi sína á gólfinu bæði kvöldin. Spilagaldrar voru vinsælir og færeyskan ómaði um salinn og sungið var í migrafóninn af innlifun þótt hann væri hvorki tengdur né í sambandi undir óstöðugum takti trommuleikarans úr hópi gestanna. Stórgott partý bæði kvöldin og langt fram á nótt sem gerir það að verkum að Vertinn þarf smá tíma til að koma reglu á svefninn og ná fyrri þreki fyrir höfuðborgina sem blásið hefur í herlúðra og boðið títtnefndir í heimsókn um næstu helgi.

 


Spilavist á föstudagskvöld

Fyrsta kvöld í þriggja kvölda keppni verður haldið á föstudagskvöldið 26. febrúar kl. 21:00. Þar koma saman helstu spilafíklar bæjarins og þótt víðar væri leitað og taka í vist. Verðlaun eru veitt fyrir flestu stigin og skammarverðlaun fyrir þann sem hefur fæstu stigin eftir kvöldið. Eftir þrjú spilakvöld er svo veittu vinningur fyrir flestu stigin eftir þrjú spilakvöld svo til mikils er að vinna.

Bingó

Bingó verður haldið í sal Grunnskóla Bolungarvíkur á morgun miðvikudaginn 24. febrúar til styrktar skólaferðalagi 10. bekkjar. Spjaldið kostar 500  krónur og aukaspjald 300 kr. Allir eru hjartanlega velkomnir og veglegi vinningar eru í boði.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband