Þorskurinn 2010

Nú er einungis mánuður til stefnu að tónlistarhátíðin Þorskurinn 2010 verði haldin í bakgarði Einarshúss. Tónelskir hljómlistarmenn eru hvattir til að fara að huga að undirbúningi og setja sig í samband við Vertinn í Víkinni. Stefnt er að því að hver taki þrjú til fjögur lög og launin eru askja af heimsins besta þorski sem verkaður er hjá fyrirtæki Jakobs Valgeirs í Bolungarvík.

Þorskurinn lógó


Skundi litli stígur á stóra sviðið í Kjallaranum

Skundi litli verður með tókleika kl. 23:00 á laugardagskvöldið 7. maí næstkomandi. Hann heldur áfram að spila og syngja á stóra sviðinu fram eftir nóttu og spilar lögin sem allir kunna. Kolamolinn verður á einstökum kostakjörum á krepputíma milli kl. 23 og 24

Trúbadorinn+Skundi+litli[1]


Spilavist á föstudagskvöld

Annað kvöld í þriggja kvölda keppni verður haldið föstudagskvöldið 23. apríl kl. 21:00. Spilafíklar eru hvattir til að mæta og taka í spil

Kveðja

Kallið er komið, sárt er að kveðja

Kristur þig bið

að styðja og styrkja alla sem syrgja

og senda þeim frið.

Geyma hann Gylfa og gæta hans leiðar

á himnanna strönd.

Svo honum þar hlotnist sáttum að halda

í frelsarans hönd.


Ljósið

Vertinn hefur lagt leið sína til höfuðborgarinnar sem er svo sem ekki í frásögur færandi og þykja varla fréttir. Tilefnið er þó umfram allt að kveðja bróðurinn hinstu kveðju svo heimsóknin er ekki komin til af góðu og ekki skemmtiferð nema síður sé. Þó mun hún leiða saman vini og vandamenn úr öllum áttum og héðan og þaðan og ekki síst það nánasta og það er þó ljósið í myrkrinu því það er ætíð gott að hitta fólkið sitt þó tilefnið núna sé ekki af hinu góða. 

Það er nauðsynlegt að gleðjast yfir því að ljós sé handan ganganna og mikilvægt að minna sig á það að öll él birtir upp um síðir og lífið heldur áfram eins og ekkert sé. Það er skrýtið til þess að hugsa að ljósið sem lýsti bróðurnum síðustu stundirnar skyldi hafa skinið svo skært á þessum tímapunkti að leiðin yfir hafsins djúp í átt til himna hafi virts sú eina rétta og birtan alltum kring hafi fallið í skuggann og týnst í móðu og mistri. Það er þó eðlilegt að leitað sé í birtuna og ylinn þegar skuggsýnt er og öll sund virðast lokuð og nauðsynlegt er að svara kalli skaparans þegar hann hefur upp raust sína og óskar samvista við viðkomandi.

Þó það sé auðvitað jafn sjálfsagt að fæðast í þennan heim eins og að yfirgefa hann er ólíku saman að jafna. Ætíð er glaðst meira yfir nýju ljósi sem kviknar heldur en þegar loginn slokknar á lífsins kertinu og dimman dettur á. Það er eðlilegt að gleðjast meira yfir hlýju faðmlagi og fagnaðarfundum en að kveðja fyrir fullt og allt, en með aldri og þroska lærist að taka þessum tveimur kostum sem sjálfsögðum hlut enda er hvortveggja nauðsynlegur partur af lífi hvers og eins. Sorgin og gleðin eru systur sem fylgja hverjum manni út í lífið og leiðast jafnan í mótbárum og meðbyr og þær færa hlátur og grátur í bland við sorg og gleði. Leiðin þeirra sem eftir lifa er að sjá ljósið og birtuna allt um kring og umfram allt fyrirgefa og sýna auðmýkt yfir kalli skaparans og þakka fyrir góðar minningar.

Tilhlýðilegt þykir að fá Sálina hans Jóns míns til að leika eitt af uppáhaldslögum títtnefndrar svo rétt til að fá fallega tóna inn í daginn.

 

 


Fjörið heldur áfram

Fjörið hefur verið í algleymingi í Einarshúsi þessa páskana og ótrúlega gaman þrátt fyrir brjálað at. Það keyrði um þverbak í nótt þegar staðurinn stútfylltist og merkilegt nokk að húsið skuli vera uppistandandi ennþá. Lopapeysulið í bland við heimamenn og aðra gesti og gangandi nutu þess að dansa á nýja dansgólfinu og dilla sér við frábæran flutning vestfirskra tónlistarmanna sem algjörlega voru heillandi í allri framkomu og flutningi. Allt fór þó afar vel fram og allir gestir til fyrirmyndar enda samankomnir til að skemmta sér og hafa gaman. Vertinn hlaut nafnið "Stálfrúin" er hún stóð í dyrunum er glaumurinn var á enda og rak alla heim í háttinn. Einn aðkomugesta sem komið hafði öll kvöldin í brjálað geim í Einarshúsið hafði á orði að það nægði að títtnefnd  liti yfir salinn í lokin til að allir vissu hvað klukkan slægi og þá væri tími til að koma sér út. Augnaráðið eitt og sér gæfi sterklega til kynna að vissara væri fyrir fólk að hlýða og vera ekki með nein uppsteyt og yfirgefa húsið þegar í stað.

Vertinn í Víkinni gat ekki heldur verið með uppsteyt þegar fjöldinn allur af fólki vildi fá að koma í heimsókn í kvöld líka í hús gleði og sorgar og tónlistarmenn buðu sig fram til að skemmta. Það er án efa sérstakt að maður gangi undir manns hönd til að bjóðast til að stíga á stóra sviðið bara til þess eins að hafa Kjallarann opinn. Það verður því opið í kvöld þrátt fyrir auglýsingar um annað og Biggi Olgeirs og Kristinn Gauti verða í sviðsljósinu og allir eru velkomnir eftir miðnættið í fjörið.


Frjáls

Gylfi í aldingarðinum
Grátið mig ekki því ég er frjáls
ég fylgdi veginum sem Guð lagði fyrir mig.
Ég tók hans hönd þegar kallið kom,
sneri við og yfirgaf allt.
Ég gat ekki dvalið lengur
til að hlæja, elska, vinna eða gleðjast,
ókláruð verk verða eftir hér.
Ég fann þennan stað minn síðasta dag.
Hafi brottför mín skilið eftir tómarúm
fyllið þau með góðum minningum
vináttu og gleðistunda.
Ó já, ég á eftir að sakna líka.
Berið ekki þungar byrgðar sorgarinnar.
Ég óska ykkur bjartra daga.
Líf mitt var fyllt af gleðistundum
í samför ástvina og annarra.
Kannski virtist dvöl mín hér allt of stutt
en lengið hana ekki með djúpri sorg.
Léttið á hjarta ykkar og samgleðjist mér
Guð valdi mig núna og tók móti mér.
(Irving)

Beðið við hliðið

Fréttin um að maðurinn með ljáinn hefði höggvið skarð í syskinahópinn barst um miðjan dag í gær og eftir sat lítil systir með sorg í hjarta. Gylfi, stóri bróðirinn sem var hennar sverð og skjöldur á æskuárunum var hrifsaður miskunnarlaust á braut og ekki gafst tóm til að kveðja. Þessi litla snót leit ekki upp til neins eins og þessa stóra og stæðilega bróðurs sem átti hug hennar allan í uppvextinum þegar væntumþykjan var skilyrðislaus og ástin einlæg. Tilhlökkunin um að fá þennan framandi bróðir heim um jól og páska og á hverju sumri gerði lífið í litla sjávarþorpinu fyrir vestan svo ævintýralegt og minningin um þessar stundir er núna svo dýrmæt. 

Það eru reyndar mörg ár síðan beðið var á bryggjunni eftir bátnum sem flutti hann heim og minningin er enn ljóslifandi þegar staðið var við hliðið til að fagna honum er hann kom með rútunni sem færði hann frá flugvellinum færandi hendi með leikföngin sem heilluðu hvað mest í leikfangabúðum höfuðborgarinnar. Þá var grátið þegar hann fór eins og nú og söknuðurinn er jafnsár og þegar hann kvaddi og hélt til heimkynna sinna hér forðum. Hann hefur núna valið sér annan samastað þar sem hann býr í haginn fyrir systur sína og mun hann trúlega standa á bryggjunni eða bíða við hliðið þegar rútan ekur í hlað og þá er vissara að hafa gott veganesti í farteskinu eftir lífsins gönguna til að leggja á borð með sér.

Mæðgin

Eftir situr mamma með slitinn streng því eina perluna vantar í lífsfestina hennar og skaparinn er litinn hornauga fyrir þá ákvörðun að taka við drengnum hennar svona snemma. Það er þó ekkert endilega sjálfsagt að þeir sem komi fyrstir, fari fyrstir og köld áminning þess efnis var send til okkar í gær.

Sársaukinn er stingandi sár og skrefin þungbær út í daginn og þó svo að leið okkar systkinanna hafi ekki alltaf legið í sömu átt var hann til staðar að reyna að feta hina erfiðu lífsins línu. Við munum öll sakna þessa bróðurs sem var órjúfanlegur þáttur í lífi okkar frá upphafi og þótt lífið þyki óréttlátt þessa stundina er það vitað með vissu að tíminn læknar sárin og minningin um hann eins og hann var þegar stelpan sem þetta ritar var lítil,verður ómetanlegur gimsteinn í minningarsjóðnum um aldur og ævi.

 

 


Páskadagskrá

Páskadagskrá í Einarshúsi á því herrans ári 2010:

 

Miðvikudagur 31. mars.

Kl. 22:30 Kjallarakeppni. Spyrill: Kristján Jónsson

 Kl. 22:45 Hljómsveitin "Haltur leiðir blindan" leikur fyrir dansi í Kjallaranum.

 

Fimmtudagur 1. apríl.

Kl. 21:00 Kvöldstund með Ylfu Mist í betri stofunni.

 

Föstudagurinn langi á miðnætti.

Kl: 00:00 Benni Sig. og Maggi Hávarðar með dúndurstuð á stóra sviðinu í Kjallaranum.

 

Laugardagur 3. apríl:

Kl. 23:45 Hjörtur Trausta Fjallabróðir og Stebbi Jóns koma sér fyrir í Kjallaranum og halda uppi fjöri fram á nótt.

 

Frítt inn á alla viðburði í Einarshúsi um páska.


Eldhús sannleikans í húsi harma og hamingju

Það má með sanni segja að eldhúsið í Einarshúsi hafi verið eldhús sannleikans í gærkvöldi er Maggi Hauks og hans lið kokkaði dýrindis krásir á karlakvöldi. Guðdómlegir réttir urðu til á pönnum og í pottum og fiskmetið smakkaðist æðislega vel. Það var mikill handagangur í öskjunni og hröð handtök þurfti til að matreiða ofan í karlana sem virtust sársvangir og með tóma maga og einkar þyrstir í ofanálag svo það má nærri geta að unnið var í akkorði á öllum vígstöðvum.  Það var svo að Eyjafjallajökull gaus af þessu tilefni enda ærin ástæða fyrir Freyju að fagna á kvöldi sem þessu.

Fiskréttirnir voru nánast óteljandi hjá þessum meistarakokki og gæðin og bragðið eftir því og ekki var annað að heyra en að allir hefðu verið hæstánægðir. Samstarf Vertsins í Víkinni og kokksins í Tjöruhúsinu er þó rétt að byrja því haldið verður áfram með sjávarréttahlaðborð þar sem Maggi Hauks verður undir, yfir og allt um kring og stefnt er að einu slíku í apríl þar sem bæði karlar og konur geta komið og glatt bragðlaukanna í sameiningu. Þá mun verða selt í báða salina og því nauðsynlegt að fylla húsið af gestum og þá fá þeir fyrstu sem panta sæti stað í betri stofunni en hinir verður að láta sér næga sæti niðri.

Varla var hægt að þverfóta fyrir körlum af öllum stærðum og gerðum og salurinn í betri stofunni var stútfullur. Brandarar voru látnir fjúka og sami brandarinn sem sagður hefur verið í áratugi á karlakvöldi ómaði um salinn um ryðið í bílnum sem Elli Hólm kann orðið utanað og sú saga vann til  verðlauna þetta kvöld enda kominn tími til.  

Mikið líf og fjör var svo í Kjallaranum langt fram á nóttina og dansgólfið sannaði sig svo sannarlega og mikið var dansað eftir tónlistinni í húsgræjunum. Það var ekki fyrr en undir morgun sem títtnefnd komst heim algjörlega búin á því. Unglingurinn hún Gunna Ásgeirs var þó ekki þreytt fyrir fimm aura enda hefur hún úthald á við heilan her.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband