Mexikósk kjúklingasúpa í hádeginu á föstudag

Hin guðdómlega súpa ættuð frá Mexikó verður á boðstólnum í hádeginu á föstudaginn 4. júní. Þar munu vinnukonurnar Lilja og Bryndís leika og syngja yfir borðhaldi ljúf og falleg lög.

X við D

Vertinn í Víkinni gengur að kosningaborðinu í dag og er ekki í nokkrum vafa fyrir framan hvaða bókstaf exið ratar. Undanfarin ár hefur títtnefnd þurft að hlusta á bæjarfulltrúa minnihlutans tala um deyfð og drunga í bæjarfélaginu og hve lítilfjörlegt menningarlífið er í bænum og fólkið duglaust og enn heldur svanasöngurinn áfram hjá þeim sem nýjir bjóða sig fram. Það er eins og engin sé að gera neitt og allir bíði bara eftir nýju Félagsheimili svo menningin geti blómstrað Angry

Vertinn er orðin þreytt á þessari niðurrifsstarfsemi því hér er mjög öflugt menningarstarf og fjölmargt að gerast á sviði menningar og lista og frábiður títtnefnd sér því að kjósa yfir sig þá sem ekki koma auga á það góða sem verið er að gera í bænum heldur einblína ætíð á það sem verður kannski einhverntímann..

Títtnefnd hefur unnið mjög öflugt menningarstarf undanfarin fimm ár og er stolt af því enda búin að byggja upp menningarhús sem þykir einstakt á landinu. Stefnt er að því að halda því áfram frekari uppbyggingu og til þess að það sé metið af stjórnendum bæjarins ratar exið við D í dag.


Æ fleiri..

skrá sig á Þorskinn 2010....Óli Popp, faðir hafsins og fjallanna hér vestra hefur laðast að hátíðinni eða bara að fólkinu og stígur á stokk ásamt öllum hinum.

Gullna hliðið

Vertinn stendur eins lengi og þurfa þykir þennan dintinn enda hábjargræðistíminn að hefjast og allt að gerast. Títtnefnd hefur oft á tíðum ekki hugmynd um hvort sólin sé að ganga til viðar eða hefja sig á loft þegar vaktinni líkur enda skiptir það svosem engu máli því stundin er oftast nær mjög skemmtileg og spennandi. Þjóðverjar súpa íslenska mjöðinn óspart og setja sinn svip á mannlífið og lífga upp á tilveruna og allt lítur út fyrir að þeir verði sýnilegir í sumar sem er einkar spennandi. Næturlífið er á sínum stað og dansinn dunar út í nóttina. Skundi litli kom sá og sigraði í Kjallaranum á síðustu helgi og fólk gat ekki hætt að dansa og var margnefnd þar engin undantekning. Hann mun mæta galvaskur á laugardagskvöldið þegar úrslit kosninganna verða ljós og leika fyrir dansi í Kjallaranum og þá geta menn ýmist drekkt sorgum sínum eða fagnað sigri.

Garðurinn 6.Garðurinn er að verða næganlega tilbúinn fyrir tónlistarhátíðina Þorskinn sem haldin verður 5. júni næstkomandi. Smiðurinn sem jafnframt er trommari þjóðarinnar hefur hvergi slegið af til að allt verði klárt í tíma og Gullna hliðið er komið á sinn stað. Lykla Pétur mun standa við hliðið og hleypa þeim inn sem eiga það skilið og vænta má þess að flestir ef ekki allir fái inngöngu inn í himnaríkið sem Garðurinn við Einarshúsið er að verða. Útrásarvíkingar gætu þó þurft að sýna fangavottorð og greiða tolla til að mega líta dýrðina augum en sálin hans Jóns míns mun gæta þess að hreint sakarvottorð sé ofan í skjóðunni svo allt fari vel fram.

Það er mikill áhugi fyrir tónlistarhátíðinni og Vertinn reiknar með því að kynstrin öll af fólki mæti til að njóta þess sem þar verður í boði. Það er orðið fullt á sjávarréttahlaðborðið hjá Arnari Smára sem halda á eftri Þorskinn en enn er hægt að panta borð í Kjallaranum svo hópar jafnt sem einstaklingar eru hvattir til að panta borð í tíma. Hjörtur Trausta mun svo stíga á stóra sviðið eftir matinn og trylla gesti  fram á nóttina. Af framansögðu má glöggt sjá að hjartsláttur hússins er taktfastur og blóðið rennur um æðar þess og heldur þar iðandi lífi alla daga.


Þessir hafa nú þegar skráð sig

Þorskurinn lógó 
Lýður og Íris
Elfar Logi
Hjörtur Trausta
Einar Örn Konráðs
Muggi
Olgeir Hávarðar
Valdimar Olgeirs
Guðrún Snæbjörg
Nonni  
Jón Hallfreð
Steingrímur Rúnar
Hávarður Olgeirs
Elísabet Trausta
Bjarni Kristinn
Jón Bjarni
Gummi Hjalta
Arnar bluesmann
Benedikt Sigurðsson
Elli Ketils
Lilja og Bryndís
Óli Popp

Skundi litli leikur á kosninganóttina

Skundi litli stígur á stokk á laugardagskvöldið kemur og spilar og syngur út í kosninganóttina en Skundi sló í gegn á síðustu helgi enda spilar hann lögin sem allir kunna og vilja dansa eftir. Allir eru hjartanlega velkomnir hvort sem þeir vilja fagna sigri eða sorgum.

Trúbadorinn+Skundi+litli[1]


Galopið...

Einarshúsið í Bolungarvík hefur nú  tekið slagbrandinn frá eftir veturinn en opið verður alla daga vikunnar í sumar auk þess sem Kjallarinn verður opinn um helgar líkt og venjulega og þar verða trúbadorar á stóra sviðinu við og við að vanda.

Lilja og Bryndís vinnukonurGómsæta rétti má sjá á matseðli, hnallþórur og bolvískar vöfflur með belgísku ívafi munu verða í boði fyrir gesti og gangandi  en áhersla er lögð á heimabakað og rétti úr sjávarfangi. Útiveitingar verða í garðinum við húsið sem er allur orðinn hinn glæsilegasti og vænta má þess að sólin skíni þar í allt sumar og láti geisla sína leika um þá sem sækja húsið heim.  Lifandi tónlist verður leikin með reglulegu millibili alla virka daga á veitingastaðnum frá og með mánaðarmótum en tvær ungar starfsstúlkur munu hafa þann  starfa að leika og syngja fyrir gesti hússins gömul íslensk lög í bland við nýjast nýtt . Þar munu Lilja leika á gítar og ukulele og Bryndís Elsa syngja.  

Einleikurinn Pétur og Einar verður sýndur af og til í sumar en þar fer Kómedíuleikarinn á kostum í hlutverkum fyrrum íbúa hússins og túlkar ævi og störf frumkvöðla í Bolungarvík. Tónlistarhátíðin " Þorskurinn" hefur svo sinn sess á sjómannadagshelgi og svo mætti lengi telja.

Það má því hverjum manni vera ljóst að Einarshús verður iðandi af lífi í sumar og mun taka vel á móti þeim sem heimsækja Bolungarvík og vilja  njóta góðra veitinga í einu sögufrægasta húsi staðarins.


Tónlistarhátíð með meiru

Tónlistarhátíðin Þorskurinn 2010 verður haldin í bakgarði Einarshúss laugardaginn 5. júní kl. 17-20. Þar munu stígaá stokk listamenn héðan og þaðan af og spila og syngja af hjartans list en fjölmargir hafa skráð sig til leiks.

Þorskurinn lógó

Eftir að hátíðinni lýkur verður sjávarréttahlaðborð í Einarshúsi en þar mun eðalkokkurinn Arnar Smári bera fram dýrindiskrásir úr sjávarfangi. Borðapantanir í síma 864-7901
Kátir karlar á Kútmaga
Þegar allir eru mettir stígur Hjörtur Trausta á stóra sviðið í Kjallaranum og leikur fram á nótt.

P1040871


Garðurinn

GarðurinnUnnið er hörðum höndum að því að gera Garðinn við Einarshúsið að sælureit. Allt kapp er lagt á að það klárist að mestu fyrir tónlistarhátíðna sem kennd er við eina helstu útflutningsafurð Íslendinga, Þorskinn, og vænta má þess að það takist í tíma. Smiðurinn sem jafnframt er húsbóndinn og trommari þjóðarinnar í ofanálag leggur varla frá sér hamarinn um þessar mundir enda hefur hann harðan húsbónda sem þrælar honum áfram við smíðavinnuna. Mikið ríður á að garðurinn verði klár á sjómannadagshelgi svo hægt verði að gera sér glaðan dag í aldingarðinum og spóka sig þar með góðu fólki.

Vænta má þess að fleira verði í boði en Þorskurinn laugardaginn 5. júní því Vertinn hefur nú þegar lagt drög að því að fá eðalkokk til að elda dýrðarkrásir úr sjávarfangi fyrir gesti og gangandi ekki síður en hópa. Þess vegna geta útgerðir farið að gera sig klára og gera ráðstafanir svo hægt sé að bjóða hetjum hafsins og þeirra mökum út að borða og í fleira húllumhæ í framhaldinu.

Meira um það síðar

 

 


Megakukl í Einarshúsi

megakukl1-300x200Aftur og loksins -Megakukl í fyrsta sinn í Einarshúsi í Bolungarvík föstudagskveldið 14. maí. Megastuð og droppaðu því nojunni og smælaðu með okkur og við spáum í þig. Hefjum leik kl.23.04 eða þar um bil og höldum áfram inní nóttina.
Leynigestir munu stíga á stokk og leikin verður tónlist úr smiðju Megasar, KK, Bubba, Súkkat og eitt Álfa lag
Hljómsveitina skipa
Balli Hólm - Cajon og einn busta
Elfar Logi - Söngur
Gummi Hjalta - Gítar, kazoo og söngur
Hemmi Hressi - bassi

Aðeins þúsund krónur inn

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband