12.8.2010 | 13:49
Kjallarakeppni á föstudagskvöld
Íris Sveins læknir með meiru verður spyrill í Kjallarakeppni eða pub quiz í Kjallaranum á föstudagskvöld og hefst keppnin kl. 22:30. Sérstakt tilboð verður á kolamolum í gömlu kolageymslunni á meðan keppnin fer fram og verður Kjallarinn opinn jafnvel eitthvað frameftir nóttu eða eins lengi og þurfa þykir. Spurningakeppnin er haldin í tilefni Ástarviku sem nú er í Bolungarvík og búist er við að keppnin sé forleikur að því sem gerast mun síðar um nóttina.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.8.2010 | 13:10
Tilboð
Tilboð verður á vöfflum Völusteins alla ástarvikuna í Bolungarvík. Uppskriftin er seiðandi og sjóðheit og inniheldur hráefni sem eykur kynhvöt og áhuga á barneignum. Sultan og súkkulaðið er yfirfullt af kærleik og rjóminn sneisafullur af væntumþykju og náungakærleik. Kaffið er svo nýbrennt og malað og toppar vöffluna en það er auðvitað ekkert á afslætti og borgast sérstaklega og upp í topp.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.8.2010 | 18:24
Hljómsveit á stóra sviðinu
Hljómsveitin A band on að stage sem galvösk mætti vestur og hélt tónleika í Kjallaranum í gærkvöld, stóð svo sannarlega undir nafni. Þó má segja svona í framhjáhlaupi að þremenningarnir gátu ekki spilað á stóra sviðinu því þau voru öll frekar há í loftinu og urðu að færa sviðið svo þau rækju sig ekki uppundir. Þrátt fyrir það hljómaði söngkonan Sara Blandon svo ótrúlega að Vertinn hélt um tíma að þakið myndi rifna af húsinu þegar tónarnir fóru sem hæst en hún hafði einkar mikil lag á að beita röddinni sinni um allan tónstigann af mikilli útsjónarsemi. Þeir misstu af miklu sem misstu að þessu stórgóða þríeyki en þeir sem komu fengu svo sannarlega heilmikið fyrir sinn snúð. Vertinn og húsbóndinn stóðu svo vaktina fram eftir nóttinni, ekki þó lengur en svo, að komið var heim á svo til skikkanlegum tíma. Opnunartíminn spilast eftir hendinni á föstudagskvöldum en auglýstur lokunartími er kl. 23:00, sem er víst ekki öllum að skapi herma fregnir.
Kjallarinn verður þó opinn í kvöld eins og öll laugardagskvöld frá kl. 23:00 til 03:00 og nýjar bardömur standa vaktina enda brýnt að tjalda nýjum andlitum við og við. Ekki þarf því neitt endilega að líta títtnefnda augum lengur í gegnum botninn á bjórglasinu heldur blasa við mun yngri konur sem vonandi kalla á meira viský. Ekki það að Vertinum er einkar lagið að yngjast upp og fríkka með hverjum bjór sem seldur er úr gömlu kolageymslunni og þegar góðir kúnnar hafa drukkið mjög ótæpilega og fara að sjá tvöfalt og jafnvel þrefalt lítur Vertinn úr fyrir að vera heljarinnar skutla með allt á sínum stað. Það er auðvitað regin misskilningur og það sér sérhver maður þegar ölæðið rennur af.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.8.2010 | 10:49
Allt og Ekkert
Það er nú sérdeilis nýlunda að Vertinn í Víkinni gefi sér tíma til að blogga um daginn og veginn. Ekki er svosem margt í frásögur færandi þessa stundina annað en þá helst að segja frá því sem mallast í pottum Einarshúss og upplýsa hve margar vöfflur Völusteins komast í hið margrómaða vöfflujárn sem brúkað er óhóflega mikið á stundum í húsinu. Það er vægast sagt búið að vera brjálað að gera í sumar og þá sérílagi í júlímánuði sem toppaði algjörlega síðasta júlímánuð sem toppaði svo auðvitað júlímánuðinn þar á undan. Þetta hefur semsagt gengið vel þó svo auðvitað mikill vilji alltaf meira og vænst er frekari gestagangi fram í september og jafnvel lengur.
Aðdráttarafl Einarshúss og sá gríðarlegi fjöldi ferðamanna sem leið sína leggja um svæðið þar í kring er gríðarlegt og því sorglegt að sjá hvernig búið er að umhverfinu. Margumtöluð hús í niðurnýðslu í nágrenninu, ónýtar götur og ómáluð hús virkilega skamma upp á umhverfið, engin götulýsing er við húsið þar sem hvað mestur straumur fólkst dvelur þegar tekur að skyggja svo ekki sé talað um g-blettinn sem er afgirtur með appelsínugulum veifum til að varna utanaðkomandi. Gangstéttir rúmast ekki innan skipulags þessa svæðis enda vænta má þess að það teljist til óþarfa við þetta hús sorgar og gleði. Nú er óþarft að lesa milli línanna til að finna út fúllyndi títtnefndrar yfir ástandinu, nú fer mælirinn að fyllast og tími kominn til að láta í sér heyra.
Vertinn taldi sig eiga von á því að tekið yrði til hendinni þegar títtnefnd segði sig úr ábyrgðarstörfum fyrir bæinn en allt virðist koma fyrir ekki , amk. ennþá. Ætli sé ekki næsta skref að segja sig úr flokknum, þjóðkirkjunni, hagstofunni, fjölskyldunni og bara öllu því sem telst til trafala þegar taka á ákvarðanir sem lúta að því að fegrun svæðisins og öðru því sem hlúa þarf að þarna í kring . Kannski segir kella sig bara úr landslögum fyrst hún er farin að rífa kjaft á annað borð og færir lögheimilið til Timbúktú til að undirstrika önuglegheitin og óánægjuna ,nú eða sækjir bara um grænlenskan ríkisborgarrétt fyrst Grænlandssetrið er komið í næsta hús. Þá koma Danir kannski færandi hendi með nýja götu og nýja gangstétt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.7.2010 | 00:17
Draumur
Vertinn setti upp glitrandi glingrið á ný og lét hárið falla svo það gæti bylgjast blíðlega í sumarvindáttinni og lét sig hverfa út í guðsgræna náttúruna og lét drauminn rætast. Kærkomið frí var tímabært enda nauðsynlegt að líta upp úr amstri dagsins í Einarshúsi. Vinnuhjúin tóku alfarið vaktina og standa hana þar til títtnefnd mætir á ný og brosa sínu blíðasta að gestum og gangandi og standa sína plikt eins og ætíð. Áætluð heimkoma er á morgun og þá mun hjarta Vertsins slá í takt við brakið í gólffjölum húss sorgar og gleði og púlsinn taka mið af gestagangi í það og það sinnið.
Sonurinn og flugmaðurinn sótti systur sína á flugvöllinn á Ísafirði og hóf hana upp til skýja í flugvélinni og bar hana til höfuðborgarinnar og þar með gat Vertinn tekið húsbóndann beina leið í Baldur sem sigldi í brakandi blíðu og sól yfir Breiðafjörðinn. Þar sat títtnefnd á hliðarþilfarinu og dásamaði það sem fyrir augu bar og fylgdist með haffletinum bylgjast í samræmi við bátinn. Þar glitraði sólargeislinn við sjóndeildarhring og litlu eyjurnar gáfu títtnefndri vink í tilefni dagsins og stundin var alveg einstök. Fjölskyldan var því ýmist á lofti, láði eða legi þennan daginn og hver og einn naut sín til fullnustu enda veðurblíðan með eindæmum og dagurinn ævintýri líkastur. Andri flaug og Lilja samdi ótal fréttir af ferðinni í hugskotinu sínu á meðan Elsa hljóp í kappi við tímann til að ná lágmörkum í skólann og þar var hver á sitt hverri hillunni að vinna í því að láta drauminn sinn rætast.
Snæfellsnesið og höfuðborgin hefur því haft ánægju af heimsókn Vertsins þennan dyntinn og notið hverrar mínútu. Tíminn er þó alltof stuttur í þetta sinnið líkt og svo oft áður og lítið við því að gera. Það koma tímar og koma ráð þegar öll börnin verða flutt á mölina í haust, þá fær Sódóma ekki stundlegan frið og þá verða heimsóknir títtnefndrar suður á bóginn hreinn draumur í dós.
Heimkoma bíður morgundagsins eins og fyrr segir því skyldan kallar og vaktin bíður. Þá verður títtnefnd endurnærð og getur staðið vaktina restina af sumrinu eða væntanlega eitthvað fram á haustið.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.7.2010 | 10:51
Guðdómlegt
Það er ekki hægt að vera ósátt við gestagang undanfarinna daga í Einarshúsi. Ferðamenn eru farnir að dúkka upp í tíma og ótíma og það er vægast sagt stórskemmtilegt. Steinbíturinn er magnaður og smakkast einkar vel svo ekki sé talað um rabbsbarísinn með söfflei-inu sem slær ætíð í gegn. Þetta er allt guðdómlegt svo ekki sé nú meira sagt og vöfflur Völusteins himneskar og í stíl við guðdómleika aldinsgarðsins á bak við húsið þar sem sólin vermir gesti allan liðlangan daginn um þessar mundir. Það verður þó að segjast eins og er að það eru þreyttir húsbændur sem koma heim að kvöldi eftir langan vinnudag.
Það er ekki frítt við það að það ríki örlítil tilhlökkun eftir haustinu því þá verður hægt að fara í frí. Í augnabliks æsingi yfir yfirþyrmandi gestagangi á dögunum óskaði títtnefnd sér því að geta sest í helgan stein og helst komast á ellilífeyri en það er þó ekki tímabært að svo stöddu því eins og allir sjá því það á eftir að klára eitt og annað í húsinu og enn á reksturinn eftir að blása út og togna þegar gistingin á efri hæðinni verður orðin klár. Þar bíða mörg tækifæri sem verða að ævintýrum næsta sumar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.7.2010 | 11:41
Ævintýrin eru víða
Vertinum fannst hún vera frjáls er hún skellti slagbrandinum fyrir í gærkvöldi kl. 23:00 og fór á vit ævintýranna handan himinblárra fjalla. Þar var líf og þar var fjör og nýtt fólk í nýju umhverfi og það var hressandi. Tittnefnd hyggur á enn frekari breytingar en þær bíða í eitt ár eða svo og þá er nú um að gera að njóta þess sem í boði er þangað til. Kjallarinn verður sumsé opinn i kvöld frá kl. 23:00 - 03:00.
Síðasta sýning var á einleiknum Pétri og Einari í gærkvöldi og var sérstaklega gaman að upplifa stemninguna sem var, enda fór Elfar Logi á kostum í hlutverkum fyrrum íbúa hússins og húsið fullt af matargestum og leikhúsgestum. Leikaranum var þó gerður örlítill grikkur í þetta sinnið því ekta brennivín var sett í flöskuna í stað Gvendarbrunnsvatnsins sem er þar venjulega. Gúlsopinn var stór enda gerist það í miðjum klíðum í leikritum að leikararnir gerast þorslátir með afbrigðum og þurfa að væta kverkarnar. Einstaklega gaman var að fylgjast með því hvernig honum tókst með erfiðismunum að renna þessu einkar bragðvonda brennivíni niður.
Títtnefnd vissi upp á sig skömmina en skammaðist sín ekkert, akkúrat ekkert, enda hrekkjótt með afbrigðum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.7.2010 | 10:56
Síðasta sýning
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.7.2010 | 15:58
Enginn veit hvað átt hefur.....
Allt er í heiminum hverfult og nú er svo komið að Vertinn í Víkinni hyggur á breytingar. Ekki stórvægilegar svona fyrsta kastið en þó skal reynt að halda í þá línu sem leiðir títtnefnda í áttina á rétta braut í rekstri Einarshúss. Það er ljóst að Einarshúsið mun laga sig æ meira að heimsóknum sjóstangaveiðimanna sem dvelja í plássinu flestum stundum og þurfa sífellt meira á húsi sorgar og gleði að halda en einnig þarf að veita þeim ferðamönnum sem Bolungarvík sækja heim og staldra við í húsinu beina og það hertekur allan liðlangan daginn um hábjargræðistímann.
Næturnar hafa því ekki forgang í rekstrinum að svo komnu máli enda varla gerlegt að halda opnu að jafnaði allan ársins hring um helgar þegar sú þjónusta er ekki nýtt sem skyldi. Því verður slagbrandinum slegið fyrir Kjallarann aðfaranætur laugardaga fram á haust þar til annað verður ákveðið, en ef sérstakar uppákomur og tilboð í gömlu kolageymslunni verða í boði, skal það auglýst sérstaklega. Opið verður eftir sem áður í Kjallaranum á laugardagskvöldum frá kl. 23:00 til 03:00 í þeirri veiku von að þeir sem vilja fara á eina huggulegustu krá landsins nýti þá tækifærið, hópi sig saman og mæti.
Annars er vert að geta þess að húsið er opið alla daga í sumar og þar er í boði matseðill og allt hvað heita hefur. Títtnefnd telur upplagt fyrir heimamenn að nýta tækifærið og kíkja við og fá sér kannski heitt súkkulaði og vöfflu Völusteins svona rétt til að lyfta sér upp og nota tímann fyrst húsið er opið á annað borð og fá með því kærkomið tækifæri til að hittast og spjalla í einu glæsilegasta veitinga-og kaffihúsi landsins.
Gaman er að geta þess að oftar en ekki er glænýr fiskur í boði á kvöldin og ristaður karfi í hvítlauksrjómasósu var í boði í fyrrakvöld sem var einkar gómsætur. Það var sérréttur hússins þann daginn og sló í gegn svo um munaði.
Það væri einnig vel þegið ef heimamenn vísuðu gestum sínum á húsið svo þeir gætu sagt frá upplifun sinni í húsinu og auglýst staðinn. Það er nefnilega hagur allra sem hér búa að geta sagt frá því góða sem hér er gert.....Vertinum finnst þó satt best að segja að þar vanti töluvert upp á að það komi nógu vel fram í máli manna.
Ætlar títtnefnd því að beina þeim tilmælum til bæjarbúa og segja frá öllu því sem veitir sérstöðu í bænum eins og Bjarnabúð, Náttúrugripasafninu, Ósvör og Drymlu, Einarshúsinu og bara öllu því sem við megum vera stolt af hér í byggðarlaginu. Það er hagur íbúanna að allt þetta sé til staðar og því er mikils vert að styðja það og styrkja eins og frekast er unnt, því enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Ekki má svo gleyma sundlauginni, Skálavíkinni og Bolafjallinu en Skálavíkin stendur reyndar þótt enginn færi þangað úteftir og Bolafjallið mun væntanlega verja menn veðri og vindum áfram þó menn hættu að leggja þangað leið sína, en það eru ekki fjöll, dalir og víkur sem fólk setur í öndvegi þegar það hyggur á nýjan búsetustað til að setjast að á til framtíðar heldur sú þjónusta sem í boði er fyrir íbúanna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.6.2010 | 23:53
Trúbadorinn Skarpi í Kjallaranum á föstudagskvöld
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 635843
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm