5.10.2010 | 21:42
Sýnið stillingu um stund
Það væsir ekki um Vertinn í Víkinni um þessar mundir meðan dvalið er í Noregi hjá Idu og hennar fjölskyldu í góðu yfirlæti. Óþarfi þótti þó að mótmæla með þessum ósköpum á Austurvelli þótt títtnefnd og hennar skyldulið yfirgefi landið um tíma og vert er að sína stillingu um stund. Einarshúsið er þó lokað þennan dyntinn fyrir utan að reynt verður að halda úti hefðbundnum dagskrárliðum eins og vanalega og var prjónakvöldið á sínum stað í kvöld og spilavistin verður á föstudaginn að vanda og er það þriðja og síðasta spilakvöldið í þessari röð spilakvölda.
Það er einkar skemmtilegt að upplifa lífið hjá venjulegri norskri fjölskyldu og forréttindi að fá að kynnast þeirra fjölskylduhögum. Búið er að heimsækja farfar og morfar auk þess að kíkt var í kaffi til mormor í dag og veitingar voru svo sannarlega ekki af skornum skammti. Heimili föðurforeldra Idu er í miðri Stafangri og húsið byggt 1890 og opnaðist ævintýraveröld er farið var upp í betri stofuna og sá Vertinn fyrir sér betri stofuna í Einarshúsi í svipuðum stíl.
Farið verður í stóra mollið á morgun sem er nokkuð stærra en Bjarnabúð og Eg til samans eða stærsta mollið í Noregi öllum og vænta má þess að hægt verið að versla eitt og annað því fatnaður virðist töluvert ódýrari hér en í verslunum heima. Matvara og önnur nauðsynjavara er þó talsvert dýrari og bregður títtnefndri stundum í brún er borga þarf brúsann og er hún nú vön dýrtíð svona í seinni tíð.
Fjölmargt er á dagskránni og ævintýrin bíða handan hornsins og fjölmargt sem búið er að ákveða að gera á meðan títtnefnd dvelur hér í vikutíma eða svo. Kannski koma fréttir af því síðar svo sýnið stillingu um stund.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2010 | 17:59
Drepa tímann
Höfuðborgin fóstrar Vertinn um þessar mundir eða þar til íslenska flugfélagið hefur sig í háloftin með títtnefnda innanborðs og skyldulið áleiðst til Noregs. Brugðið var á það ráð svona rétt til að drepa tímann að vagga sér í lendunum og snúa sér í hringi í stórmörkuðum borgarinnar og þar var ekki hægt að sjá að kreppa hafi hreiðrað um sig því þar var kjaftfullt hvert sem litið er og fólk að versla sem mest það mátti. Vertinn passaði að sjálfsögðu upp á budduna enda er innihald hennar frekar rýrt um þessar mundir og vel við hæfi að barma sér þess vegna á blogginu því barlómur getur verið ágætur á stundum þó innistæðan fyrir honum sé kannski ekki alltaf til.
það er þó handleggur að komast frá rekstri eins og Einarshúsi og þar má segja á Vertinn sé algjörlega ómissandi, margt þarf að skipuleggja og hina og þessa hnúta þarf að hnýta. Hin og þessi vinnuhjú taka þó vaktina þegar þau geta en síðan ekki söguna meir. Einarshúsið verður því lokað frá og með mánudegi í eina viku eða svo en samt sem áður munu hefðbundnir dagskrárliðir eins og prjónakvöld og spilavist halda sínu striki að vanda. Vertinn kemur svo alltaf aftur svo það er til einhvers að hlakka fyrir heimamenn og aðra, en svo er það aftur á móti annað mál hvort títtnefndri takist að vera nógu lengi í burtu til að það þyki nokkuð varið í það að hún komi til baka. Það er nú einu sinni svo að nýir vendir sópa ætíð best og lítið varið í þá gömlu amk. svona stundum.
Þjólagahljómsveitin Rósin okkar er á leiðinni vestur til þess eins að leika fyrir heimamenn og aðra gesti. Títtnefnd vildi svo gjarnan að sem flestir myndu sjá sér fært að mæta svo þau hafi amk. upp í ferðakostnað. Þau halda tvenna tónleika eins og áður hefur komið fram og best væri ef allir myndu mæta sem vettlingi geta valdið og skemmtilegast væri ef það yrði fullt hús á báðum tónleikunum. Það er nú kannski til of mikils vænst....en það er alltaf gott að láta sig dreyma.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2010 | 02:22
Hátíð í bæ
Bolungarvíkurgöng voru opnuð með pompi og prakt um helgina og sannkölluð hátíð var í bæ. Vertinn hafði í nógu að snúast þann daginn enda þurfti að elda dýrindis máltíð fyrir mann og annan í hádeginu á sjálfan opnunardaginn. Af þeim sökum gafst ekki tóm til að klippa á neina borða þó svo að það sé auðvitað vita mál að Vertinn átti auðvitað allan heiðurinn af borun þessara jarðganga þó svo að allir vilji Lilju kveða í kútinn núna með eintómum fyrirslætti.
Forsetinn heiðraði títtnefnda og fékk sér snæðing í húsi sorgar og gleði ásamt öðrum fyrirmönnum þjóðarinnar á opnunardaginn. Nú þykir bara enginn maður með mönnum nema hafa komið í þetta merka hús og Ólafur Ragnar verður miklu meiri maður fyrir vikið og betri forseti fyrir íslenska þjóð því nú getur hann breytt út fagnaðarerindið og borið hróður Einarshúss út um allan heim ásamt því að standa upp í hárinu á stjórnvöldum að passa að þau komi ekki öllu á kaldan klaka.
Vertinn brá svo undir sig betri fætinum og fór út að borða um kvöldið ásamt fjölmörgum heimamönnum og öðrum gestum og stundin var eins og um jól, mikil gleði ríkti og þetta var eins og eins stór fjölskyldusamkoma. Títtnefnd gleymdi sér svo í trylltum dansi fram á morgun og dagurinn hafði verið fullkominn þegar hann rann sitt skeið á enda.
Síðan þá hafa göngin holað fjallið og eru til taks ef á þarf að halda. Sagt er að leiðin hafi styst um fjórar mínútur og óþarfi er að véfengja það á nokkurn hátt. Það munar þá einna helst um öryggið á leiðinni fram og til baka og þægilegheitin að geta bara ekið beint af augum en ekki í eintómum sveigjum út og suður.
Hollenskur ljósmyndari tók myndir af fjölskyldu Vertsins á tröppunum svo forsetinn var ekki bara myndaður í bak og fyrir um helgina. Þá bætist þriðja myndin í safnið sem sýnir húsið frá mismunandi tímabilum með eigendum sínum í það og það skiptið og mun þessi þrenning mynda vera upp á vegg um ókomna tíð með hinum. Brýnt er að bera það til bæjaryfirvalda að ekki eru komnar neinar brjóstmyndir á títtnefndri og húsbóndanum en hafa ber í huga að slíkar myndir eru til af fyrirrennurum Vertsins í húsinu og standa bæði við félagsheimilið og sparisjóðinn. Þeirri hugmynd er komið á framfæri að slíkt verði gert ( auðvitað löngu eftir að við erum dauð) og tilvalinn staður er á lóðinni þar sem Hafsteinsstaðir standa nú, fáum til ánægju og yndisauka.
Næsta ferðalag er handan hornsins því Noregur bíður í andagt. Fyrirhuguð er ferð þangað næstkomandi sunnudagsmorgun og þá verður kærkomið frí með fjölskyldunni í vikutíma eða svo. Ida skiptineminn okkar getur varla beðið eftir íslensku verstfamilíunni sinni og búið er að skipuleggja dagskrá. Þá verður hátíð í Stafangri og vænta má þess að gleðin þá yfir komu margnefndrar verði álíka og ánægja heimamanna með göngin. Því má sjá að áfram verður hátíð í bæ og borg.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.9.2010 | 01:08
Þjóðlagahljómsveitin "Rósin okkar" í Einarshúsi

Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.9.2010 | 15:25
Einar Örn !
Einar Örn gefur síðasta tóninn fyrir opnun Bolungarvíkurganga föstudagskvöldið 24. september er klukkan slær miðnættið. Þá verður óhætt að mæta og syngja gamla slagara með kappanum og hita sig upp fyrir herlegheitin en jarðgöngin verða formlega opnuð daginn eftir, þann 25. september og þá verður mikið um dýrðir í bænum
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.9.2010 | 13:06
Mikið um dýrðir í Einarshúsi um helgina
Mikið verður um að vera í Einarshúsi um komandi helgi. Kjallarakeppnin eða pub-qiuz" hefst á ný á föstudagskvöldið kl. 21:00 og verður Kristinn H. Gunnarsson spyrill að þessu sinni. Hann mun án efa ekki spyrja neins nema að vel ígrunduðu máli og keppendur verða því að vera vel með á nótunum og undirbúa sig vel. Biggi Olgeirs stígur á skokk laugardagskvöldið og spilar og syngur út í nóttina svo vænta má gleði og glaums í Kjallaranum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2010 | 12:05
Fréttir af viðburðum
Prjónakvöldinu sem ýtt var úr vör sl. þriðjudagskvöld var nokkuð vel sótt en það mættu sex handavinnukonur sem munduðu prjónana af miklum móð. Stefnt er að því að tvöfalda fjöldann næsta prjónakvöld og þá fær tólfti gesturinn vöfflu Völusteins og kaffi alveg frítt svo það gæti borgað sig að mæta. Guðný Hildur heldur utan um prjónana þessi kvöld og bryddar kannski upp á einhverju skemmtilegu annað slagið.
Spilavistin hélt einnig sínu striki á föstudagskvöldið og spilað var á þrem borðum. Vífilfell gefur skammarverðlaunin í vetur en Sibba í listasmiðjunni mun hanna verðlaunagripi fyrir hvert spilakvöld fyrir sig, en einnig ætlar hún að brenna stór glerlistaverk í þriggja-kvölda-verðlaun. Það gefur auga leið að þau verðlaun verða í samræmi við fjölda þeirra sem mæta og því brýnt að fá sem flesta til að spila og borga 500 kall inn á vistina og þá er hægt að gera stærri verðlaunagrip og glæsilegri. Það voru Gummi Addýjar og Maggi múrari sem fóru með fyrstu glerlistaverkin heim eftir fyrstu spilavistina
Lionmenn héldu sinn fyrsta fund í bakgarði hússins í hádeginu á laugardag í sól og blíðu og var stemningin eins og í útlöndum. Þetta veðurfar er alveg sérstakt þá sérílagi á þessum árstíma.
Kjallarakeppnin verður haldin næsta föstudagskvöld kl. 21:00 (athugið breyttan tíma) og verður spyrill auglýstur síðar.
Biggi Olgeirs mætir svo galvaskur á stóra sviðið á laugardagskvöld en það er þó háð því að hægt verði að fljúga vestur á sem hagstæðustu kjörum og vindar blási úr réttri átt en við vonum það besta í þeim efnum því Biggi er alltaf góður.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.9.2010 | 13:02
Fréttir
Góður gangur í Einarshúsi
Góður gangur hefur verið í rekstri Einarshúss í sumar og mikil aukning á komu ferðamanna. Ætla má að rúmlega þrjúþúsund manns hafi sótt húsið heim frá því í maí og er það töluverð aukning frá síðasta ári. Bakgarður hússins, sem tekinn var í notkun í vor og er allur hinn glæsilegasti, hefur verið nýttur til hins ýtrasta af gestum enda hefur verið einmunablíða hér vestra í sumar. Boðið hefur verið upp á matseðil að hætti húsfreyjunnar í Einarshúsi en lagt er upp með að hafa ferskt fiskmeti og heimagert bakkelsi og brauð á boðstólnum og fer það vel í svanga ferðalanga.
Uppbyggingin
Unnið er nú hörðum höndum að endurgerð efstu hæðarinnar en þar verða fimm herbergi með handlaug í útleigu næsta ár þar sem níu manns geta gist með góðu móti. Þar fer hagleikssmiðurinn höndum sínum um hverja fjöl og hvergi má sjá misfellur enda þarf saga hússins að lifa áfram í innviðum hússins næstu áratugina svo vel þarf að vanda til verka. Allur gamall panell er látinn halda sér eins og frekast er kostur og upprunalegu litirnir prýða veggi í hverju herbergi fyrir sig. Svalirnar hafa fengið sinn sess á suðurhlið hússins og þaðan er útsýnið inn Syðridal og Tungudal og langt upp á Skálavíkurheiði auk þess sem hægt er að gægjast inn djúp og gott ef ekki sést til tunglsins á góðum degi. Nauðsynlega þarf að lýsa upp umhverfið við húsið þegar húmar að og til stendur að setja niður ljósastaura fyrir svartasta skammdegið og helluleggja gangstétt fyrir framan húsið sem mun verða til mikilla bóta.
Vantar
Gömlu stássstofuna á efstu hæðinni þarf að mubla upp svo að sómi sé að og bráðvantar antik húsgögn og aðra gamla muni sem prýða myndu þessa fornu stofu. Sófasett Einars Guðfinnssonar hefur þó verið tekið til handagangs en húsráðendur fengu það að gjöf en vænta má þess að fleiri munir úr eigu Péturs eða Einars og fjölskyldna þeirra séu til víða og myndu hvergi sóma sér betur en einmitt í Einarshúsi. Myndir úr húsinu og af fólkinu sem þar bjó og munir væru vel þegnir og er fólk góðfúslega beðið um að gæta að slíku í fórum sínum. Myndir úr versluninni eru einnig nauðsynlegar enda er verið að vinna sögusýningu um húsið í samvinnu við Menningarráð Vestfjarða og þá skal sögu verslunarinnar gerð skil á miðhæð hússins, auk sögu fjölskyldunnar á efstu hæðinni og sögu sjósóknar í Kjallaranum. Einnig mætti hugsa sér að myndir úr Bolungarvík og af mannlífinu í bænum fyrripart síðustu aldar færu vel á veggjum hússins og taka húsráðendur flestu fagnandi sem laðað gæti fram þá stemningu sem ríkti í húsinu á tímum uppbyggingar.
Vetrardagskráin
Ætlunin er að hafa áfram opið í vetur að einhverju marki. Boðið verður upp á prjónakvöld annan hvern þriðjudag í vetur og mun Guðný Hildur Magnúsdóttir halda utan um prjónana á þeim kvöldum. Fyrsta prjónakvöldið hefst þriðjudaginn 7. september kl. 20:00. Spilavistin heldur sínu striki að vanda og hefst fyrsta spilavistin föstudaginn 10. september kl. 21:00 og er það fyrsta kvöld í þriggja kvölda keppni. Kjallarakeppnin verður á sínum stað í vetur annan hvern föstudag og hefst hún 17. október kl. 22:30. Vöfflukaffi verður í boði alla sunnudaga frá kl. 14:00-17:00 en Vöfflur Völusteins þykja einstakt sælgæti og bragðgóðar með eindæmum. Kjarngóðar kjötsúpur í hádeginu alla föstudaga með einu besta heimabökuðu brauði sem völ er á og plokkfiskur og heimabakað rúgbrauð í hádeginu alla miðvikudaga en rúgbrauð Einarshúss er eitt hið besta brauð sinnar tegundar á landinu. Betra er þó fyrir hópa að panta svo það nægi örugglega fyrir alla. Réttur dagsins verður í boði allan september eða eins lengi og þurfa þykir og vísir að sumarmatseðlinum ætíð til reiðu fyrir svanga maga.
Opnunartími
Opið verður alla virka daga daga frá klukkan 11:00 til 22:00 nema annað sé auglýst sérstaklega. Opið verður á laugardögum frá 13:00 til 22:00 en Kjallarinn verður einungis opinn á laugardagskvöldum frá kl. 22:00 - 03:00 nema annað sér auglýst sérstaklega. Á sunnudögum er opið frá 14:00 - 17:00 og þá er tilvalið að koma og fá sér vöfflukaffi.
Viðburðir
Ennþá verður reynt að halda áfram menningardagskrá í Einarshúsi eins og undanfarin ár. Tónleikar og trúbadorar verða í boði ásamt bókaupplestri og vinnustaðakynningum sem haldnar verða endrum og eins í hádeginu á föstudögum. Einarshús verður áfram brúkað undir fundi af öllum gerðum og stærðum og tilvalið til að halda árshátíðir og afmæli og þeir sem huga að slíku eru hvattir til að setja sig í sambandi við rekstraraðila hússins.
Göngin opnast
Nú er ljóst að markaðssvæði Einarshúss fer stækkandi og með tilkomu jarðganganna á milli Ísafjarðarbæjar og Bolungarvíkur má vænta þess að 3000 manns bætist við flóru þeirra sem vilja sjá veg hússins sem mestan. Því verða tilboð á allskonar fyrir gamla og nýja viðskiptavini frá opnun jarðganganna þann 25. september og út mánuðinn og af og til eftir það.
Lokaorð
Eins og sjá má á framansögðu verður uppbyggingunni haldið áfram og hvergi hvikað frá þeirri stefnu að láta húsið iða af lífa alla daga. Mikil og spennandi verkefni eru í bígerð sem gera rekstrargrundvöll hússins betri á næstu árum og nokkuð tryggan. Það er þó umfram allt velvilji fólksins til uppbyggingarinnar sem ræður för, því það er fólkið sem gerir staðinn að því sem hann er og því mikilvægt að láta hjartað áfram slá Einarshúsi við Lækjarbryggju og nýta hvert tækifæri sem gefst til að sækja húsið heim.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2010 | 10:42
Siggi Daða i Kjallaranum
Trubadorinn Sigurður Daðason trubador fra Þingeyri sem i daglegu tali er nefndur Siggi Daða ætlar að mæta i Kjallarann um miðnættið a laugardagskvöldið. Hann ku vera storgoður trubador og tekur Vertinn heilshugar undir það þvi hljomur af lögum hans hefur omað i eyrum tittnefndrar i formi frumsaminna laga. Tveir kolamolar verða a verði eins allt kvöldið eða a meðan birgðir endast og aðgangseyrir er enginn svo vænta ma þess að einhverjir lati sig ekki vanta i Einarshusið nk. laugardagskvöld.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2010 | 18:55
"Kynlíf á ströndinni" á tilboði í kvöld
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm