Alveg eins og er

Ylfa MistÞað verður að segjast alveg eins og er að ekki er hægt að kvarta yfir neinu þegar kemur að því að gera upp kvöldið og nóttina sem nú ræður ríkjum. Framúrskarandi skemmtun var í boði í húsi harma og hamingju og lífið leik við gesti hússins í hvívetna. Ylfa Mist og hennar skyldulið sló í gegn svo um munaði og Vertinn ætlar svo sannarlega að vona það að þessi uppákoma hennar verði endurtekin fljótlega aftur. Húsfyllir var í fínu stofunni og allir komust vel fyrir þó hvert rými væri tekið og ómurinn bergmálaði um panelklædda veggi hússins sem kunni að meta uppátækið. Ljóti hálfvitinn var snoppufríður með eindæmum og Margrét og Hjördís skömmuðu sko alls ekki upp á er þær tónuðu með Ylfu. Þessir tónleikar fara svo sannarlega í topp þeirra kvölda sem hafa toppað öll kvöld hingað til sem verið hafa á toppnum..eða þannig.

 

Eftir tónleikanna færðist fjörið niður í Kjallarann sem tók öllum fagnandi og Guðrún Snæbjörg og Jón Sigurðsson smellpössuðu við stóra sviðið eins og þau hefur verið fædd þar og uppalin líkt og sjá má á myndinni hér neðar

Guðrún og Jón

Þau kunnu réttu lögin sem fólkið kunni

Arnar blúsari

blúsarinn blés ekki heldur úr nös er hann tók í gítarinn en Arnar á kannski eftir að taka lagið aftur við tækifæri en hann dvelur nú hér vestra um þessar mundir

óli popp

þessi söng um fjöllin og hafið

Elfar Megas

þessi spáði í mig að hætti Megasar

Lýður

Lýður gaf syngjandi résept

Grímur

Grímur vildi syngja sig inn í hjörtu heimamanna á ný

Grjóthrun´

og Jónselli kraup við altarið og bað guð að hjálpa sér.

Það sem toppaði þó auðvitað kvöldið voru sýnishornatónleikar heima í eldhúsi fyrr um kvöldið þar sem dóttirin sló taktinn á litla gítarinn sinn sem nefnist "ugulele" og spilaði og söng meðan húsbóndinn trommaði undir. Lagt hefur verið blátt bann við því að birta myndir af því tilefni og því fá lesendur einungis að gera sér það í hugarlund hvernig það hefur ómað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 635427

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband