29.6.2007 | 22:26
Stund milli stríða
Tel ég núna tímabært að taka mér aðeins frí frá amstri dagsins og láta í mér heyra. Ég hef verið mjög upptekin við að gera hitt og þetta en mest hef ég þó dundað mér við að gera ekki neitt, það getur tekið á eins og allir vita. Sólin hefur ekki verið spör á sig undanfarið og látið ljós sitt skína dag eftir dag. Það fer að þykja sjálfsagt að spóka sig um í sól og blíðu hér í Bolungarvík. Mestur hitinn er á bak við Einarshúsið enda skín sólin þar hvað skærast sem eðlilegt er. Hún hangir á himnafestingunni hér beint fyrir ofan eins og ekkert sé sjálfsagðara og baðar mig og mína gesti með sólargeislum sínum. Himininn hefur verið heiður og blár og steinrunninn tröllin sem eitt sinn bjuggu í Erninum og Traðarhyrnu líta með velþóknun niður á Víkina fögru og hugsa með eftirsjá til þeirra gömlu góðu daga þegar þau gátu hlaupið um í sólinni og leikið sér. Mér finnst það er góð tilhugsun að geta leikið mér í sólinni án þess að eiga á hættu að verða að steini.
Hugurinn leitar þó stundum til fyrri sumra þegar grillið varla kólnaði á sumardögum sem þessum. Oftar en ekki var tappinn tekinn úr rauðvínsflöskunni og bjórsopinn var teygaður á slíkum sólskinsdögum og notalegheitin hrísluðust um kroppinn. Nú get ég það ekki lengur og það reynir stundum á og er stundum ansi erfitt en ég er ekki þekkt fyrir það að gefast upp og er staðráðin í að halda mínu striki. Mér þótti þrekvirki að komast yfir gamlárskvöld og þorrablótið var strembið. Sumarið á eftir að líða og það verður skrítið að fara til Grikklands og teyga appelsínusafa með röri er ég sóla mig í sandinum og læt brimsaltan sjóinn leika um fætur mínar. En allt gengur þetta eins og í sögu fyrir því og ekki undan neinu að kvarta. Í nóvember er árið liðið og hringurinn hefur lokast. Þá tekur bara við annað ár og fleiri þröskuldar til að komast yfir og ég klíf þá alla með glans.
Ég sit hér uppi í veitingasal Einarshúsi og lít til bátanna við Lækjarbryggjuna. Rólegheit eru við höfnina en fjör er að færast yfir mannskapinn í Kjallaranum og ég heyri hlátrasköll kráargesta niðri á barnum. Paparnir syngja sig hása og segja það í góðu lagi að vera sólstrandagæi og ég tek alveg heilshugar undir það. Ætli ég kíki ekki niður og segi hæ við gestina mína.
Heyrumst síðar
Dægurmál | Breytt 30.6.2007 kl. 01:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.6.2007 | 19:42
Tuttugu og eitt ár
Fyrir tuttugu og einu ári, þegar ég var tuttugu og eins árs fæddist lítill strákhnokki á fæðingardeild Landspítalans. Hann var 16 merkur og 56 sentímetrar. Þessi nýfæddi strákhnokki var afskaplega fríður sínum og fjarskalega fallegur enda töluvert líkur mömmu sinni ef vel var að gáð( í raun var hann ekkert líkur mér er samt fallegasta barnið sem hafði fæðst fram að þessu). Þegar hann leit í augun á nýbökuðum foreldrunum var ekki annað að sjá en að hann væri hæstánægður með að verða hluti af þessari litlu fjölskyldu. Hann var ljós yfirlitum og svo bjart var yfir þessu nýfædda barni að það birti yfir allri Reykjavík og næsta nágrenni. Þennan dag var sonurinn fæddur, þennan dag fæddist litli strákurinn minn.
Hann fékk nafnið Andri og það var vegna þess að okkur þótti það svo fallegt. Eitt nafn á einn lítinn strákpjakk töldum við vera nóg og stelpurnar mínar heita líka einu nafni.
Hann var ætíð nokkuð þægt barn en talaði mikið og gerir enn. Hann var mjög spurull um allt og ekkert. Öll hans skólaár var kvartað undan látlausum kjaftagangi í tímum en alltaf stóð hann samt sína plikt enda er strákurinn vel gefinn. Hann ætlar sér að verða atvinnuflugmaður en hann hefur haft mikinn áhuga á flugi frá því að hann var pínulítill.
Nú er hann orðinn rígfullorðinn og ráðsettur. Býr með sinni kærustu í Reykjavík og vinnur í mesta sollinum í löggunni og líkar vel. Hann er samt ennþá litli strákurinn minn og hann er ennþá hæstánægður með að vera hluti af fjölskyldunni sinni og er stoltur af systrum sínum og pabba sínum og mömmu. Honum finnst þó skrýtið hversu hratt hann eldist ef hann ber sig saman við mömmu sína sem staðið hefur í stað í mörg ár og hefur nánast ekkert breyst frá því að hún var tuttugu og eins. Ég er nokkuð viss að ekki líður á löngu þar til við verðum jafnaldrar. Mig langar að senda honum smá koss og knús í tilefni dagsins.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.6.2007 | 23:42
Sólarkoss á kalda klettavör
Enn og aftur er ég sest við tölvuna mína í Einarshúsinu og skrifa ykkur nokkrar línur. Óshólavitinn er hreinlega rauðglóandi í sólargeislunum sem hafa leikið við okkur hér í dag. Sólin hyggst nú taka sér sæti við sjóndeildarhring innan skamms og kveður okkur með því að kyssa Þuríði beint á ískalda klettavör. Dagurinn í dag var heitur og notalegur og meira að segja skugginn iljaði og greip mig í fangið þegar hann fékk færi á. Þetta eru góðir dagar og hvergi betra að vera í svona veðri en einmitt hér.
Í gærkvöldi komu vinkonur mínar frá þýskalandi sem dvalið hafa hér um hríð til að sinna listsköpun sinni. Ein þeirra var að mála gesti og gangandi á kránni um síðustu helgi og gerði það vel. Ég gerði stelpunum smágreiða og fékk að launum teikningu af sjálfri mér og gærkvöldið fór í fyrirsætustörf að mestu. Myndin var framúrskarandi fín og flott enda fyrirmyndin til fyrirmyndar en ég held þó að ég hefði ekki verið gott módel því ég er ekki nógu meðfærileg til slíks brúks. Á myndinni má sjá þrjá þjóðverja að finna út hvernig best sé að koma andliti Vertsins sem haganlegast niður á blað. Hárið var reyndar það fyrirferðamikið að myndin náði yfir á tvö blöð en það er önnur saga.
Vertinn varð aðsjálfsögðu að vera fram á nótt við hlið vinnuhjúanna sinna en þær Elsa og Gunna voru á vaktinni með mér. Í nógu var að snúast við að undirbúa sjávarréttahlaðborðið sem ég ætla að hafa á helgum í sumar. Ég er búin að koma því þannig fyrir að ég er bundin hér í húsinu í báða skó og kemst hvorki lönd né strönd. Sagt er að einhversstaðar verði vondir að vera og það er alveg eins gott að ég sé hér í húsinu í reyðileysi á vappi eins og hvar annarsstaðar. Mér finnst gaman að vera að stússa í þessu. Ótrúlegur reytingur fólks kemur hér inn og fær sér kökusneið eða súpu og ég er í raun undrandi yfir þessu öllu saman.
Sjávarréttahlaðborðið var frábært. Vertinn er búin að vinna að undirbúningi ásamt Guðlaugu, Gunnu og Elsu í allan dag og það gekk í alla staði ljómandi vel. Hátt á þriðja tug manna kom að borða sem er nokkuð gott ef miðað er við þetta góða grillveður sem var í dag. Steinbítspaté, laxapaté, grafin lúða og lax í bland við framúrskarandi fiskrétti voru á boðstólnum og féll þetta gúmmelaði vel í mannskapinn. Ekki má svo gleyma heimabakaða rúgbrauðinu hennar Guðlaugar og fiskréttinum hennar Gunnu sem bragðast svo ótrúlega vel. Ég er með Guðlaugu í trogi á þorrablótinu og vissi því vel hverning rúgbrauðið hennar bragðast og það réð úrslitum þegar ég var að ráða í stöðu smurbrauðsdömu í Einarshúsið. Á myndinni hér til hliðar má sjá hluta af sjávarréttahlaðborðinu. Á myndinni má sjá sjóara renna til fiskjar á bátnum sínum og þeir njóta sín einnig sem fínasta borðskraut í leiðinni.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.6.2007 | 16:16
Heitur reitur í Einarshúsi
Þau merku tíðindi hafa gerst að heitum reit hefur verið komið fyrir í Einarshúsinu fyrir gesti og gangandi. Hingað geta hverjir sem vilja komið með tölvuna sína og fengið samband við alheiminn eins og ekkert sé sjálfsagðara og sötrað sjóðheitt og seiðandi swiss mokka á meðan og bragðað á tertu eða gætt sér á heimabökuðu rúgbrauði með kæfu. þetta eru mikil tímamót í sögu Bolungarvíkur og nágrennis og ég vænti þess að heimsóknir til mín stóraukist í kjölfarið og menn nýti sér þessa aðstöðu sem boðið er upp á í fyrsta sinni. Þetta er fyrsta bloggið úr Einarshúsi og þið getið átt von á því að fá fleiri pistla héðan um hitt og þetta sem á huga minn og hjarta í það og það skiptið.
Gúllassúpan var frábær er enda ekki við öðru að búast. Ég er alveg himinlifandi yfir viðtökunum sem þessar hádegissúpur hafa fengið. Ferðamaðurinn er farinn að láta sjá sig í gríð og erg og við þurfum að tala allskyns tungum við allra þjóða kvikindi og það gengur allt framar vonum. Ef þeir skilja okkur ekki nógu vel þá tölum við bara hægar og hærra og þá gengur það alveg framúrskarandi og allir fara sáttir og sælir út.
Félagar á vegum fjórðungssambands Vestfirðinga gæddu sér á gómsætri gúllassúpunni og var Óli Kitt fyrrum bæjarstjóri hrókur alls fagnaðar að vanda. Hann sagði viðstöddum sögur af mönnum og málefnum af sinni alkunnu snilld og fór létt með það enda eru sögurnar meira og minna upplognar eins og menn vita sem þekkja kauða og er það trúlega þess vegna sem þær eru svona einstaklega skemmtilegar. Veðrið lék við gestina og sólin speglaði sig skælbrosandi í Djúpinu og allt var eins og blómstrið eina.
Næst á dagskránni er svo að útbúa fiskihlaðborð sem ég ætla mér að hafa á helgum í sumar og ég tel tímabært að fara og vinna lítillega við það og læt þetta því duga í bili.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.6.2007 | 22:28
Konan með hárið
Þá er hjartsláttur minn orðinn nokkuð eðlilegur og blóðþrýstingurinn farinn að verða normal á ný eftir annir helgarinnar. Ég er búin að vera vakin og sofin yfir kránni í Kjallaranum á nóttunni og kaffihlaðborðum á daginn og segjast verður alveg eins og er að Vertinn var orðinn frekar framlágr undir restina. Alltaf rís ég þó upp aftur með undraverðum hætti og fæ kraft til að halda áfram með verkefni dagsins og lít fram veginn með bjartsýni að leiðarljósi, staðráðin í því að gefast ekki upp þótt stundum gefi á bátinn.
Biggi Olgeirs mætti með gítarinn á laugardagskvöldið og var alveg frábær. Hann er stórskemmtilegur trúbador. Hann hefur öll góðu lögin á tæru og er jafnvígur á kvenmannsraddir sem karlmannsraddir svo ekki sé talað um englaraddir. Hann tók Queen eins og hann hefði aldrei gert annað og ég er nokkuð viss um að Freddy Mercury hefur sungið og trallað með fullum hálsi fyrir handan og gott ef ég fann ekki fyrir návist hans um tíma. Fólk lét óspart ánægju sína í ljós og skemmti sér konunglega. Ég á örugglega eftir að fá hann til mín aftur fljótlega. Annar sá tryllti og töfrandi tók eitt og eitt gítargrip við og við og vinnukonugripin léku í höndunum á honum þegar hann hafið rænu á að snúa gítarnum rétt.
Vertinn og Gunna stóðu vaktina báðar nætur langt fram á morgun og þurftu örugglega að vinna fyrir kaupinu sínu. Dansinn var þó stiginn fyrir innan barborðið jafnt sem fyrir utan það, en við eigum það til að dansa tryllta dansa milli þess sem við dælum gleðilvökva í mannskapinn enda höfum við oftast nær gaman af vinnunni og njótum þess að vera með skemmtilegu fólki. Það vill til að við erum svo skemmtilegar sjálfar að þetta fellur allt vel að hvort öðru og ætíð líða kvöldin áfallalaust og án vandræða enda vita flestir að menn halda sig innan velsæmismarka í mínum húsum.
Kaffihlaðborðið á 17. júní gekk frábærlega og bakkelsið hafði vit á því að duga á einhvern undraverðan hátt. Hátt i 70 manns kíktu við í kaffi og skoðuðu kvikmyndir frá Bolungarvík í Kjallaranum og höfðu gaman af. Ég hef sterkan grun um það að einhverjar hjálparhendur að handan hafið aðstoðað okkur við að láta allt ganga upp því allt gekk eins og í sögu. Við vorum ekki eins vel undirbúnar og lagt var upp með í upphafi vegna þess hve mikill erill var á barnum kvöldið áður. Það sannast enn og einu sinni hve vinnuhjúin mín í Einarshúsi eru frábær og þau gera hvert kraftaverkið á fætur öðru. Jón Bjarni var í uppáhellingum og fleiru tilfallandi, Gunna smurði rúgbrauð með síld og eggjum og allt mögulegt annað, Elsa og Lilja uppvörtuðu og gengu í önnur verk sem þurfti og ég gerði sem minnst enda húðlöt að eðlisfari.
Mér tókst svo með undraverðum hætti að neyða Elvar Sigurgeirs til að bjóða mér á rúntinn á flottasta bíl bæjarins og ég var eins og hefðarmeyja í framsætinu á Pontiac árg. 56 og naut mín ekkert smá. Það þótti nauðsynlegt að taka mynd af þessum tveim eðaleintökum hlið við hlið og ég get ekki annað séð en það fari vel á með þessum tveim gömlu gæðagripum.
Mánudagurinn rann svo upp með sól og hlýju og ég spókaði mig í sumarkjól og með hatt. Ég ber stundum hatt þegar þannig liggur á mér og mér finnst það æðislegt. Fólk á að bera hatta í ríkara mæli því það er svo tignarlegt og flott.
Ég set myndir frá helginni inn á síðuna fljótlega. Þar má sjá að hárið á mér leikur lausum hala allt um kring en það hefur hrokknast óskaplega undanfarið. Ég held ég hljóti að hafa fengið rugluna og hún hefur örugglega hlaupið öll út í hárið sem hringast nú í allskonar slöngulokka og lambakrullur vítt og breytt kringum andlit mitt. Hópur ungra þýskra stúlkna dvelja hér við listsköpun og ég aðstoðaði þær smávegis. Þær komu í Einarshúsið í dag og spurðu Guðlaugu vinnukonuna mína eftir konunni sem á staðinn, þær reyndu með miklu handapati að leggja áherslu á útlit mitt og atgerfi og sögðu að endingu að þær væru að leita að "konunni með hárið".
Dægurmál | Breytt 19.6.2007 kl. 00:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2007 | 19:22
Einarshús á þjóðhátíðardaginn
Þjóðhátiðardagurinn er væntanlegur og mikið um að vera í bænum að vanda. Vertinn verður með dýrindis kaffihlaðborð og opnar í leiðinni sýningu á gömlum myndum Lárusar Benediktssonar sem mun verða varpað upp á skjáinn í Kjallaranum í sumar fyrir gesti og gangandi. Lárus hefur verið að safna gömlum myndum af húsum, bátum og ýmsu fleira efni tengdu Bolungarvík í tíu ár og á orðin stórt safn mynda sem einstklega skemmtilegt er að skoða.
Kjötsúpan sló í gegn í hádeginu í dag og húsið fylltist enda var ég búin að lofa bragðgóðri súpu sem myndi kitla bragðlaukanna. Ég stend venjulega við það sem ég segi. Óveðursský skaut upp kollinum sem setti Vertinn út af laginu um stund. Bolungarvíkurkaupstaður auglýsir dagskrá þjóðhátíðardagsins í dreifibréfi sem sent er í hvert hús og notar tækifærið að auglýsa viðburði hjá samkeppnisaðila mínum í leiðinni. Það er súrt að þurfa að reka fyrirtæki í slíku umhverfi og mér féllust hendur eitt augnablik. Litlu munaði að ég semdi við Finnboga Bernódusson í Mjöllni og fengi hann til að smíða fyrir mig svo stór hjól að þau gætu passað undir Einarshúsið svo ég gæti tryllað því í burtu ásamt öllu mínu hafurtaski en ég veit að það myndi ekkert þýða að biðja Finnboga slíkrar bónar því hann vill hafa mig hér í bænum. Hann hefur á mér miklar mætur og virðir mig og það sem ég er að gera enda ríkir gagnkvæm virðing okkar á milli. Sem betur fer eru svo margir í Víkinni fögru sem eru traustir þegar á reynir og styðja við bakið á mér og leiða mig styrkri hendi þegar blæs á móti og það er ástæðan fyrir því að hér hef ég fest mínar rætur.
En maður brosir í gegnum tárin og heldur áfram enda ekkert annað að gera. Ég reyni að hafa það hugfast að bros getur dimmu í dagsljós breytt. Ég verð aftur komin með sól í sinni þegar ég blogga næst.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.6.2007 | 01:10
Klætt í kjól og hvítt

Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.6.2007 | 01:06
Kjötsúpa að hætti hússins
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.6.2007 | 23:35
Stúlkan sem starir á hafið
Ég fór í verstöðina Ósvör í dag og hitti vermanninn og fanggæsluna hans. Mikill gestagangur er búinn að vera hjá þeim undanfarið og mikið um að vera. Talið er að um sjö þúsund manns heimsæki Ósvör á hverju sumri og ég gerði mig ánægða með að fá 10% þeirra til mín í kaffi. Hnallþórurnar sem ég hef á boðstólnum eru alveg gríðarlega góðar og ég kræki mér í tertusneið við og við og set þá með henni mikinn rjóma. Ætli ég verði ekki orðin afmynduð af spiki í haust eftir sumarið en það væri ekki gott ef ég myndi líta út eins og strengdur köttur í sólarfötunum mínum úti á Grikklandi. Það skildi þá aldrei vera að ég þyrfti að láta sauma á mig sundföt í Seglagerðinni Ægi sem pössuðu á mig svo ég geti spókað mig á sólríkum sólarströndum. Þetta er auðvita bara sagt í gríni eins og svo margt annað sem ég læt frá mér fara þessa dagana, vikurnar og mánuðina. Allir segja að ég megi bæta aðeins á mig nokkrum kílóum en mér finnst ég svo fín svona horuð og rengluleg.
Lítill karl kom á kaffihúsið í dag en það er smápjakkur sem Lilja passar á daginn og heitir Guðmundur. Þessi litli herramaður kallar mig Rögnu ömmu eins og ekkert sé sjálfsagðara og ég tek því eins og hverju öðru hundsbiti í hæl. Vonandi rennur upp sá dagur eftir mörg, mörg ár að blessuð börnin mín geri mig að ömmu. Tilhugsunin um að fá lítið undurfallegt, saklaus og þægt kríli upp í hendurnar og gera það spólvitlaust af óþekkt og geta svo skilað því til baka þegar ég er búin að spilla því nægjanlega mikið er nokkuð sem ég væri alveg til í að upplifa.
Ég bókaði hópa í mat hægri vinstri í dag sem ætla sér í óvissuferð til Íslands í sumar. Skipstjórinn á Ramónu siglir með ferðamenn inn í Grunnavík og rekur þar ferðaþjónustu ásamt konu sinni og við vinnum saman enda er gott að vinna með góðu fólki og mjög gaman að taka þátt í að skipuleggja eitthvað skemmtilegt fyrir ferðamenn. Ég finn mig í þessu starfi á hverjum degi og mér finnst ég vera svo heppin að geta unnið við það sem mér finnst svo áhugavert og skemmtilegt.
Ég þarf reyndar að fara að spjalla við vinnuveitanda minn, sjálfanVertinn í Víkinni, undir fjögur augu fljótlega og tala við hana með tveimur hrútshornum ekki seinna en strax og sína henni í leiðinni í tvo heimana og láta hana vita í eitt skipti fyrir öll hvar Davíð keypti ölið...............því mig sárvantar hærri laun.
Dægurmál | Breytt 12.6.2007 kl. 00:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.6.2007 | 15:57
Heyskapur
Unnið var hörðum höndum við heyskap á Hólastíg í dag enda hefur grasið sprottið með ógnarhraða. Lilja bar sig mjög mannalega við sláttuvélina enda er stelpan mikið hörkutól þegar hún tekur sig til. Heilu fjölskyldurnar af túnfíflum hafa gert sig heimakomnar á túninu mínu mér til ama og leiðinda. Þó ég hafi gefið þessum túnfíflum sterklega í skin að þau séu engir sérstakir aufúsugestir á flötinni minni, láta þau sér ekki segjast og koma aftur. Þessir gulu síglottandi óæskilegu túnplöntur hreinlega hæðast að mér þegar ég lít yfir grasflötina mína með ólund og senda mér langt nef ef svo ber undir.
Slangur var að gera í Kjallaranum í nótt. Ég virðist vera búin að koma fólki upp á það að mæta á kránna til að sýna sig og sjá aðra. Það er bara gaman af því. Ég rétt kíkti og yljaði mér við sjóheita kamínuna. Andrúmsloftið var gott að fólk virtist hafa gaman af samverunni við hvert annað. Geisladiskur með gömlu góðu lögunum hljómaði í húsgræjunum og virtist fólk kunna að meta ljúfa tóna sem sungnir voru um dalanna rós, undir bláum himni af miklum móð. Ég þarf þó að fara að kaupa tónlist í safnið til að þóknast sem flestum. Vertinn kom við í Einarshúsinu í dag og fékk sér smakk af indælli tertusneið. Kolfinna Baldvinsdóttir kíkti í kaffi latte og við áttum mjög gott spjall. Hún er að vinna þátt um innflytjendur hér fyrir vestan og fannst jákvæðni þeirra sem hún hafði rætt við til eftirbreytni. Skemmtileg stelpa og þegar samtalinu lauk var eins og ég hefði þekkt hana til margra ára. Að sjálfsögðu var mynd smellt af þessum nýju vinkonum sem töluðu eins og þær hefðu þekkst frá barnæsku. Að endingu rákum við hvor annarri rembingskoss.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm