Farin í frí

Vertinn í Víkinni ætlar í tveggja daga frí og skoða dásemd Vestfjarða og slappa af. Heydalur bíður og vonar að títtnefndur Vert  komi nú senn.                

Heyrumst !

 

Es: Munið samt Pétur og Einar í Einarshúsi á fimmtudagskvöldið kl. 20:00

 

 

 


Enn uppistandandi

Algjörlega hefur nánast klárast af rafhlöðum Vertsins í Víkinni eftir annasama tíma undanfarið. Allur gleðskapur sogaðist á eina hendi og það er búið að vera aldeilis og sérdeilis brjálað að gera. Það væri trúlega til að æra óstöðugan að ætla að fara ofan í saumana á öllu sem skeð hefur undanfarið hjá títtnefndum Vert og hennar skylduliði svo gripið verður rétt ofan í það helsta. Tveir og þrír viðburðir hafa verið á sólahring í Einarshúsi þar sem húsið hefur troðfyllst æ ofan í æ og atið hefur verið endalaust.

Sjóstangaveiðimenn settu sitt mót sitt á fimmtudagskvöldið og þá var húsfyllir eitt skiptið enn. Mikið kapp var í mönnum yfir því að fara á sjóinn og ná þeim stóra og tilhlökkunin sveimaði yfir vötnunum um kvöldið. Á föstudagskvöldið hittust þeir síðan eftir veiðiferðina um daginn og smökkuðu á þeirri albestu kjötsúpu sem nokkurn tíma hefur verið framborin í húsinu hin síðari ár.

Varla höfðu sjóstangaveiðimenn sporðrennt súpunni er kynstrin öll af kjarnakonum komu gangandi frá Tálknafirði og þáðu trakteringar af albestu sort. Þar í framhaldinu stigu Jómmi og Stjáni á stóra sviðið og slógu aldeilis í gegn eins og svo oft áður. Þar ómuðu gömlu góðu lögin um Kjallarann og það var frábært fjör og fólk dansaði og söng.

Markaðsdagurinn rann svo upp með rigningarsudda árla morguns og þungt var yfir byggðinni. Meðlimir Nýdanskrar biðu bljúgir á vellinum eftir Vertinum því þeir áttu að leika á hátíðarhöldunum um daginn og á balli um kvöldið. Títtnefnd þurfti að sjá um stórstjörnurnar á meðan á dvöl þeirra stæði og veita þeim húsaskjól og annað það sem manneskjunni er nauðsynlegt að fá sér til lífsviðurværis. Nýdanskir brunuðu beint í kjötsúpuna eftir að hafa tekið sér örlítinn lúr heima í íbúðinni sem leigð var þeim til handa. Þeir hefðu án efa ekki staðið sig eins vel og raun bar vitni ef þeir hefðu ekki fengið kjötsúpuna góðu og engu er logið þó sagt sé að einn aðalsjarmurinn í hópnum fékk sér fjórum sinnum á diskinn.

Er líða tók á morguninn fór sólin að skína svo glatt og Víkin var svo dásamlega falleg. Dagskráin á hátíðarsvæðinu tókst frábærlega og allt gekk eins og blómstrið eina og tíminn leið. Pétur og Einar var sýndur fyrir troðfullu húsi um daginn og Logi fór á kostum eins og ætíð. Hinn velþekkti og umdeildi gagnrýnandi Jón Viðar, sat sýninguna yfir kaffibolla og gulrótarköku og fylgdist með. Hann sagði síðar að sýningin hefði verið skítsæmileg og þótti Vertinum eðlilegt að spyrja hvort það væri gott eða vont og viðurkenndi karlinn að sýningin hefði verið stórskemmtileg. Það segir nokkuð um ágæti sýningarinnar að mati títtnefndarar og styður margnefnda í þeirri trú að hugmyndin um þennan einleik hafi verið mjög gáfuleg og vel til fundin.

Diddi Mummi með frænku sinniKvöldverður var síðan framreiddur í kvöldmatnum og þar sátu stjörnur af öllum toga að listakvöldverði. Þangað mætti móðurbróðir minn sem ég hef nýverið kynnst. Hann og mamma mín eru samfeðra en ólust ekki upp saman og því var samgangurinn enginn. Tekin var mynd af þessum skyldmennum eftir kvöldverðinn rétt í þann mund er Túpílakarnir fóru að spila og syngja í Kjallaranum og Vertinn varð að stilla sér upp við barinn í gömlu kolageymslunni í Kjallaranum. Þessa helgina hefði verið gott að þekkja Kára Stefánsson náið og véla hann til að klóna téðan Vert því hún hefði þurft að vera á mörgum stöðum í einu og stjórna herdeildum hér og þar en einhverra hluta gekk þetta einhvernvegin.

Skemmst er frá því að segja á Túpílakarnir voru alveg frábærir og fóru algjörlega á kostum enda stórskemmtileg og komu reglulega á óvart. Vertinn hefði svo gjarnan viljað Túpílakarnirheyra meira en skyldan kallaði á títtnefnda í íþróttahúsið til að reka endahnútinn á skipulagningu fyrir ballið. Þetta er ekkert smámál að standa fyrir dansleik í slíku húsi sem er í raun varla í stakk búið til að bjóða upp á slíkt. Íþróttahús víðsvegar á landsbyggðinni eru þó notuð til slíks brúks svo það er ekkert nýtt að halda ball í viðlíka húsakynnum.  Félagsheimilið á staðnum er í endurgerð og ekki nothæft sem stendur svo því varð að fara þessa leið að þessu sinni til að geta boðið upp á dansleik á Markaðshelgi. Vertinn hefur reyndar rúllað upp heilu þorrablóti með öllu sem því fylgir svo það var vitað mál að þetta gengi upp með góðra vina hjálp enda kom það á daginn. Það var brjálað stuð á ballinu en allt gekk þó eins og við var að búast. Um 300 manns dilluðu sér takfast við óma Nýdanskrar og allt gekk eins og í sögu. Heldur kýs Vertinn þó að hafa sínar uppákomur í Einarshúsi og heldur áfram að bjóða upp á slíkt í framtíðinni.

NýdönskÞað var kominn sunnudagsmorgunn er Vertinn fór með sínu skylduliði heim á leið eftir annasama kvöldvakt. Þá voru fæturnir búnir og orkan á enda. Þá var atinu lokið í bili og æðislegt að fá að komast heim eitt augnablik. Ekki leið þó á löngu áður en hljómsveitarmeðlimirnir vöknuðu og þurftu að komast í flug. Horfðu til himins, heyrðist hljóma í bílnum á leiðinni og Landslag skýanna skoðað. Ekki sást Sól né Stjörnuryk og engar Flugvélar voru sjáanlegar í Ljósaskiptum enda blindaþoka. Nýdönsk tók því bílaleigubíl og æddi suður á bóginn í átt að Blómarósahafi en Vertinn horfði til himins og hugurinn fór á flug og veröldin Ilmaði. Á myndina vantar tvo af köppunum úr þessu sérdeilis frábæra bílskúrsbandi sem kennir sig við nýdanska og fá hinir því að njóta sín því enn frekar á myndinni fyrir vikið.

Hjartsláttur Einarshúss var því hægur í gær, sunnudag enda ekkert startsfólk á lausu sem gat staðið vaktina enda búið  að ganga á þrek allra og því var sannkallaður hvíldardagur . Einarshús mun þó verða gestum og gangandi til reiðu aftur á dag og líka á morgun og einnig á hinn.

 

 

 


Túpílakarnir í Kjallaranum

Túpílakarnir munu halda tónleika í Kjallaranum á laugardagskvöldið en þeir eru að fylgja eftir nýútkomnum diski sínum og halda uppá 10 ára afmælið í þokkabót - þannig að þeir ætla að svetta svolítið úr klaufunum í sumar. Loksins koma þeir til Bolungarvíkur en það er búið að standa til lengi að þeirra sögn. Tupílakar spila sumsé allt frá poppsmellum til kórlaga og er lagið þeirra BRENNIÐ ÞIÐ HÁLFVITAR væntanlega eitt þekktasta framlag þeirra á tónlistarsviðinu um þessar mundir og töluvert spilað á Rás2. Textarnir þeirra eru skrítnir og skemmtilegir og fjalla um allt mögulegt, nema helst ekki ælovjújejeje. Allajafna er gleðin í fyrirrúmi þegar þeir spila og leika og bíða Túpílakar fullir tilhlökkunar að fá að koma til Bolungarvíkur og spila og syngja fyrir gesti.
Tónleikarnir byrja kl. 21:00 og þeim líkur kl. 23:00 og aðgangseyrir er þúsundkall.

Pétur og Einar

Sýning á fimmtudaginn 26. júní kl. 20:00

Sjáumst Smile


Þar sem hjartað slær

Vertinn í Vikinni dvelur flestum stundum í  húsinu þar sem hjartað slær og blóðið svo ólgandi um æðar rennur. Yfirleitt yfirdrifið nóg að gera enda ferðamaðurinn farinn að líta við í auknum mæli. Þjóðverjar eru í meirihluta enn sem komið er og oftar en ekki væri gaman að vera fluga á vegg er téður Vert reynir að koma sögunni frá sér á framandi tungumáli. Ef viðmælendur gapa af undrun og ákalla guð sinn og skapara er talið að sagan hafi skilað sér þokkalega og allir virðast glaðir.

Leikarinn að hita upp

Reyndar má segja að viðkomandi Vert sé orðinn nokkuð blest á máli eftir miklar samningaviðræður við meðlimi hljómsveitarinnar Ný danskrar sem væntanleg er til Bolungarvíkur um markaðshelgi. Ein og ein dönskusletta gæti því slæðst með í textann þessvegna. Ef ég hafði það ekki fyrir helbera lygi mætti halda að innfæddur Dani væri að tala reiprennandi Íslensku með vestfirskum hreim er Vertinn hefur upp rausn sína. Kapparnir munu leika á dansleik í íþróttahúsinu og þeir ætla einnig leika nokkur lög á hátíðarsvæðinu fyrr um daginn og væntanlega þyggja einhverjar veitingar í húsi harma og hamingju, Einarshúsi.

IMG_3738

Markaðsdagur ber upp á 5. júli og menn eru hvattir til að heimsækja Bolungarvík og hafa gaman. Margt verður hægt að gera sér til skemmtunar þessa helgi og án efa verður líf og fjör í bænum. Jómmi og Stjáni munu mæta galvaskir í Kjallarann á föstudagskvöldið 4. júlí líkt og undanfarin ár og hita upp fyrir herlegheitin og einleikurinn Pétur og Einar mun einnig verða í boði á laugardaginn 5. júlí og byrjar kaffileikhúsið kl. 17:00. Túpílakarnir halda svo tónleika í Kjallaranum kl. 21:00 á laugardagskvöldið og hita upp fyrir Ný dönsk, auk þess sem í boði verður þriggja rétta kvöldverður í Einarshúsi á laugardagskvöldið.

Helga Svana í kaffileikhúsi

Ansi er ég hrædd um að lífið væri mikið fábrotnara í Bolungarvík ef Einarshúsið iðaði ekki af lífi. Sumir hafa þá skoðun að Bolungarvík blæði, en innan veggja Einarshúss slær hjartað í taktföstum slögum hverja stund og ólgandi blóðið rennur svo heilbrigt um panelklæddar æðar hússins sem geymir svo mikla sögu og lífsklukkan gengur í takt við taumlausa gleði gestanna. 

Hraunberg að teygja þvottinn þvottinn

Sagan heldur áfram að óma og einleikurinn Pétur og Einar heldur áfram að slá í gegn. Sýning var á fimmtudagskvöldið síðasta og hún heppnaðist fullkomlega. Leikarinn fór á kostum og allt gekk eins og í sögu. Mikil ánægja er með þetta framtak okkar og nú setjum við allt á fullt við frekari vinnu við að koma einleiknum og sögunni frekar á framfæri. Vonir standa til að hægt verði að sýna einleikinn einu sinni í viku í allt sumar en þá þarf að trygga einhverja aðsókn á hverja sýningu fyrir sig og mun vinna hefjast við að selja sýninguna hópum, félagasamtökum, vinnustöðum og bara hverjum þeim sem áhuga hafa á sögu þeirra manna sem stóðu að uppbyggingu staðarins. Einnig tel ég upplagt fyrir forsvarsmenn ættarmóta að hafa samband og panta eina sýningu og jafnvel sjávarréttasúpu eða annan unaðslegan rétt í leiðinni.

Söngur sjómannsins

Ljóst er nú orðið að stór samtök á landinu hafa ákveðið að veita frekari styrk til þess að gera meira úr sögu hússins og það er vel. Formlega afhending verður á næstu helgi og þá verður þetta gert opinbert og þá verður enn einn gleðidagurinn hjá Vertinum í Víkinni.


Biskup vísiterar Einarshús

 karl sigurbjörnsson

Biskupinn yfir Íslandi, herra Karl Sigurbjörnsson, vísiteraði Einarshús í hádeginu ásamt fríðu föruneyti. Kveðja hans í gestabók hússins er svohljóðandi:

Þökkum yndislegar móttökur. Guð blessi þetta hús og alla sem hér eru, hingað koma og héðan fara.

 


Pétur og Einar í kvöld kl. 20:00

Elfar með þvottabalannEinleikurinn Pétur og Einar verður sýndur í kvöld kl. 20:00 í Einarshúsi. Þar fer Elfar Logi á kostum í hlutverkum fyrrum íbúa hússins og glæðir söguna lífi svo um munar. Þetta kaffileikhús er einstakt í sinni röð og hefur slegið  í gegn. Aðgangseyrir er kr. 1.500 kr. og hægt er að kaupa kaffi og meðlæti af bestu sort á sýningunni. Á myndinni má glögglega sjá gleðisvipinn úr andliti þvottakonunnar er hún kemur fagnandi með þvottabalann. Rennandi vatn var þá komið í húsið og vinna við þvottinn mun auðveldari fyrir vikið. Sýningin fær sex stjörnur af fimm mögulegum að mati Vertsins í Víkinni og menn eru hvattir til að mæta.

Hnallþórur á 17. júní

Hnallþórur af bestu sort verða í boði í Einarshúsi á 17. júní. Það telst því tilvalið að koma og gæða sér á góðgætinu um miðjan daginn og njóta þess að láta stjana við sig. Kaffi er á boðstólnum og hugsanlega súkkulaði ef einhver vill. Fólk á öllum aldri er velkomið og þá sérstaklega blessuð börnin og  mælt er sérstakleg með því að þið leyfið börnunum að koma til mín, og bannið þeim það ekki. Þessi fleygu orð mæli Jesús Kr. á sínum tíma og hafði nokkuð til síns máls. Hann hafði einnig lag á að breyta vatni í vín og segja má að Vertinn í Víkinni láti þokkalega af því að afgreiða vínið líkt og Jesús gerði forðum. Reyndar hefur téður Vert ekki lag á að breyta bolvíska Gvendarbrunnsvatninu í brennivín enda væru flestir hífaðir í tíma og ótíma ef að það gengi eftir. Það má þó geta þess í framhjáhlaupi að vínið var reyndar gefið á dögum lærisveinanna en er selt frekar dýrum dómum á öldurhúsum nútímans enda hefur launavísitalan stigið ótrúlega síðan í þá dag og skýrir það mismuninn að flestu leiti. Það virðist þó takast með undraverðum hætti að láta matinn ávallt duga ofan í alla hjörðina sem kemur í hádeginu og ætla má að handayfirlagning Vertsins ráði það einhverju um enda átti Jesú að duga örfáir fiskar til að metta allan lýðinn og ætla má að það hafi erfst að einhverju leiti. Eitt er víst að það verður nóg fyrir alla á morgun, krakka með hár og kalla með skalla eða amk. á meðan byrgðir endast.

Lofgjörð til þín

Vertinn gaf sér tíma til að skjótast inn í Ísafjörð í gærkvöld. Erindið var að fara á tónleika Þorsteins Hauks í Ísafjarðarkirkju. Fuglarnir flugu hærra á altarinstöflunni við hvern tón sem ómaði um salinn og hjartað í mér sló örar við hljómfallið sem gerði það að verkum að ég kom heim endurnærð á sál og líkama.Tónleikarnir voru Þorsteini Hauki  og Gospelkór Vestfjarða til mikils sóma og mig langar að nota tækifærið og óska þeim til hamingju og færa þeim bestu þakkir fyrir að leifa mér að njóta með þeim stundarinnar í þessu fallega og hljómfagra húsi.


Kæruleysi

Ásdís, Helgi og ÞuraHelgin að líða undir lok. Vertinn búin að vera nokkuð kærulaus og látið vinnuhjúin standa vaktina. Það er aðeins að lærast að vera ekki alveg ómissandi og Einarshúsið virðist reka sig að mestu leiti þrátt fyrir að títtnefnd standi ekki nótt sem nýtan dag. Það verður þó að segjast alveg eins og er að oft reynist erfitt að slíta sig frá fjörinu ef margir eru samankomnir í Kjallaranum á góðu kvöldi og þrátt fyrir að eiga frí togar töfrandi tónlistin í margnefnda sem nýtur þess að valsa um svæðið við taktfastan hljóminn. Einn og einn dans fylgir oft í kaupbæti ef dansherrar eru á lausu og ekkert nema gott um það að segja. Það er afskaplega gaman að dansa og ef gömlu góðu íslensku lögin líða um Kjallarann þá er Vertinn yfirleitt til í tuskið. Eins og sjá má á myndinni hér til hliðar birtast kúrekar þegar minnst varir í Kjallarann og vænta má að þeir komi ríðandi til samkundunnar á skjóttum klárum til að geta farið fetið á heimleiðinni.

Einar Örn og VertinnTrúbadorinn stóð sig með stakri prýði og spilaði og söng af hjartans list út í bjarta sumarnóttina. Því hafði svo sem verið lofað og enginn kom því að tómum kofanum í Kjallaranum frekar en fyrri daginn. Einar Örn átti salinn og gestir dönsuðu af hjartans list allt frá súludansi til vangadansa. Salsa og ræl var einnig dansaður í hita leiksins og það var fjör á fróni. Danskortið hjá títtnefndri var drekkhlaðið en þrátt fyrir það læddist margnefnd út áður en dansinn væri stiginn að neinu marki því viðkomandi var víst í "fríi" og varð að komast heim fyrir myrkur. Fyrir myrkur!! Þessi mynd er tekin um miðja nótt í Kjallaratröppunum er Vertinn var á leið heim og nóttin er björt og hrein og ekki er síður bjart yfir þeim tveim sem stilltu sér svo brosmild fyrir framan myndavélina. Þau eiga það sammerkt þessi tvö að hafa farið á "snúruna" svokölluðu sem staðsett er á sjúkrastöðinni Vogi. Viðkomandi Vert fékk að hanga þar til þerris fyrir rúmum 19 mánuðum síðan og hefur hangið þurr síðan og það er vel. Einar Örn á styttri þurrkunartíma að baki en ber vonandi gæfu til þess að sneiða fram hjá allri óreglu í framtíðinni og ég óska honum góðs gengis.

Mynstur míns lífs hefur breyst til muna frá því að ég fór í afvötnun. Orkan virðist endalaus og tímanum er varið í allt annað núna en áður. Til að mynda hefur títtnefndur Vert varla kveikt á sjónvarpi eina einustu stund frá því að áfengið var lagt á hilluna og telja má á fingrum annarrar handar þær bíómyndir sem títtnefnd hefur horft á og útvarpið hefur hlotið sömu útreið. Einhverra hluta vegna verður alltaf að vera eitthvað móment í gangi og endalaust verður viðkomandi að hafa eitthvað fyrir stafni. Markmiðið virðist að hafa einhverju hlutverki að gegna og geta hlaupið í það í tíma og ótíma og helst þegar síst skildi. Það er semsagt allt í góðu ef téður Vert hefur eitthvað fyrir stafni er hún er á útstáelsi í Kjallaranum en ef hún bara situr og gerir ekki neitt verða varnirnar veikari og ókyrrð myndast hið innra. Þá er nú sérdeilis, aldeilis gott að geta tjúttað og trallað í góðra vina hópi og dansað við taktfasta óma trúbadoranna sem sækja Einarshúsið heim.

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 635843

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband