28.1.2009 | 16:45
Andri
Vertinn telur tilhlýðilegt að birta mynda af frumburðinum og einkasyninum uppáklæddum í einkennisbúning flugnema í Flugskóla Íslands.
Vestfirðingar þurfa ekki að kvíða því í framtíðinni að eiga ekki framúrskarandi flugmenn það eitt er víst.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.1.2009 | 01:26
Kannski
Með einhverjum óskiljanlegum hætti helltist einhver bolvískur rembingur yfir Vertinn í Víkinni í göngutúrnum í dag. Sólin lét geisla sína leika um bæinn í fyrsta sinn á þessu ári og fjallatopparnir bókstaflega grétu af fögnuðu yfir þeirri staðreynd að daginn sé tekið að lengja og sólin að stíga hærra á himni dag frá degi. Fjöllin í kring slógu taktinn í göngutúrnum og hjartsláttur margnefndrar sló einnig í takt við umhverfið. Einhverra hluta vegna varð bærinn sá besti í heimi og títtnefnd fylltist stolti yfir því að eiga hlutdeild í svona fallegum stað.
Það var eins og umhverfið allt um kring væri órjúfanlegur hluti af búknum. Kirkjan var eitt mikilvægasta líffærið og kirkjugarðurinn geymdi fjársjóð minninga um fólkið sem horfið er á braut til nýrra verka. Heilsað var upp á ömmurnar og afana og kross merktur með handayfirlagningu yfir leiðin. Gaui afi var traustur sem klettur nú sem þá og auga var litið til Árna Ella (pabba hennar mömmu) svona rétt í framhjáhlaupi. Hann nýtur þó ekki þeirrar virðingar sem hann ætti skilið vegna þess hve hann útilokaði okkur frá lífi sínu. Hann fékk því ekki krossmark yfir síðasta hvílustað sinn nú frekar en endranær en alltaf staldrar afastelpan hans við leiðið hugsandi yfir því hversvegna hann lét hana afskiptalausa alla tíð, það var mikil sóun á tíma sem hefði getað verið svo góður. Jónína og Per fengu aftur á móti hlýjar kveðjur eins og ætíð og gengið var á hvert leiðið á fætur öðru og heilsað upp á þá sem eru horfnir á braut. Það er kynngimagnaður kraftur sem býr í kirkjugarðinum og þrátt fyrir það að hann Óskar sé ekki lengur upplagður í dansinn er hæglega hægt að dilla sér við stef minninganna er farið er á milli leiðanna í garðinum.
Sumum finnst þetta auðvitað ekki ná engri átt að fara að tala um fólkið í kirkjugarðinum þegar ástandið í þjóðfélaginu er með þeim hætti sem raun ber vitni. Títtnefndri þykir þó betra að sneiða framhjá þeirri umræðu sem tröllríður öllu og minnast löngu horfinna ástvina sem upplifðu sannarlega kreppu og erfiða tíma. Ástvina sem þurftu að slíta sér út til að hafa í sig og á en áttu þó einhvernvegin alltaf nóg og nutu samvistanna hvert við annað.
Kannski kennir þetta ástand sem nú ríkir í þjóðfélaginu okkur að hlúa vel að því sem við eigum. Kannski verða gildin önnur og forgangsröðunin með öðrum hætti. Kannski förum við að standa saman sem einn maður. Kannski verslum í heimabyggðinni til að koma í veg fyrir að búðin hætti og verslunarfólkið missi vinnuna. Kannski förum við á verkstæðið í plássinu til að láta gera við bílinn til að halda bifvélavirkjanum við efnið. Kannski fær rafvirkinn, píparinn, smiðurinn, handlangarinn, málarinn, bílstjórinn endurskoðandinn, bankastarfsmaðurinn, verkamaðurinn og Vertinn bara nóg að gera. Kannski förum við að sjá skóginn fyrir trjám. Kannski látum við ástvini okkar ekki afskiptalausa í framtíðinni eins og afinn gerði við litlu afastelpuna sína.
Kannski signi ég yfir leiðið hans Árna Ella næst þegar leið mín liggur í garðinn..........já kannski...........
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.1.2009 | 11:49
Bolungur
Nú ber svo við í Einarshúsi verður boðið til þorrablóts næstkomandi laugardag þeim til handa sem eiga ekki greiðan aðgang að hinu hefðbundna blóti í Bolungarvík. Ekki það að segja að fjölmörg þorrablót eru haldin víðsvegar um svæðið enda keppast sem flestir við að blóta þorra sem mest þeir mega í allskyns átthagafélögum af öllu tagi svo vel flestir komast á blót sem það vilja. Blótið Bolungur verður þó í boði svo allir ættu að geta fengið eitthvað við sitt hæfi, meira að segja þeir sem sjaldan sækja viðburði í sinni heimabyggð þó þeir geti verið eins og landafjandinn um allar jarðir til að taka þátt í allskyns viðburðum annarsstaðar.
Mjög brýnt er að skrifa sig á að í síðasta lagi í dag til að fá að upplifa herlegheitin og símanúmerið í Einarshúsi er 456-7901 eða 864-7901 í gsm síma Vertsins.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.1.2009 | 01:48
Upphefð
Það var svosem eins og við mátti búast að Þorrablótið í Bolungarvík stóð alveg undir nafni nú eins og endranær. Vertinn í Víkinni fékk sína útreið eins og flestir þeir sem eru eitthvað áberandi í bæjarfélaginu og var höfð að háð og spotti og hædd sundur og saman. Múnderingin á þeirri sem lék téðan Vert var alveg til fyrirmyndar, makkinn rauðbrúnn, síður og krullinn og pilsið stutt og skórnir háhælaðir og minntu nokkuð á þá sem þetta ritar. Margnefnd var í óða önn að reyna að laða gangamenn í Kjallarann í atriðiðnu og Guðlaug og Gunna hlustuðu í andagt á hugmyndir Vertsins í þá veru að fjölga gestum. Að endingu var brugðið á það ráð að senda út af örkinni léttklæddar yngismeyjar á vegum títtnefndrar til að fá slóvenska sveina úr jarðgöngunum til fylgilags og virtist það ganga nokkuð vel. Kom það glögglega fram að þessar léttklæddur dömur hafi farið ríðandi til veiðanna með það eitt að markmiði að snara vesalings menninga í snurvoð og væntanlega veita þeim unað á alla lund. Þess ber þó að geta að í raunveruleikanum ganga kaupinn ekki þannig fyrir sig á barnum þrátt fyrir að bardömurnar virðist hinar fríðustu þegar víman tekur völd og villir sýn viðstaddra. Reyndar reyna þær að svala þorsta gesta eins og þeim frekast er unnt en láta aðra um að svala öðrum fýsnum. Það segir sig sjálft að ef einhver hefur áhuga á að gera heilan leikþátt um vesælan Vert eins og hér um ræðir sem má ekki vamm sitt vita, hlýtur viðkomandi að vera að gera eitthvað af viti. Þar sem títtnefnd hefur reynt eftir fremsta megni að halda sig til hlés í bæjarfélaginu (eða þannig) og haft sig lítið sem ekkert í frammi (eða hitt þó heldur) kemur þetta náttúrulega alls ekkert á óvart og alsendis viðbúið að slíkt gæti gerst.
Gangamunninn sem Vertinn og hennar skyldulið lét smíða í fyrra var notaður aftur í ár til að umkringja sviðið enda frábær leiktjöld sem eiga enn vel við og sköpuðu sama andrúmsloftið og þá. Á þorrablótinu í fyrra var Hrólfur Vagnsson undir, yfir og allt um kring og sá um hljóð, útsetningu og undirleik og kom skemmtuninni til hlustenda algjörlega óaðfinnanlega enda fagmaður á ferð. Óhætt að hrósa þeim sem vinna vel enda telur Vertinn sig hafa verið lánsama að hafa haft aðgang að honum í fyrra. Þetta þó sagt að öllum öðrum ólöstuðum því allir reyndu að gera sitt besta eins og endranær á þorrablótinu í Bolungarvík og þakka ber frábærum bolvískum konum og þeirra aðstoðarfólki fyrir þeirra framlag til menningar á staðnum.
Frá sjónarhóli óvirka alkans, í þessu tilviki Vertsins í Víkinni, er nokkuð erfitt að sitja skemmtun sem þessa því það var auðvitað stór partur af prógramminu að hella sig pínulítið fulla og finna á sér og geta sleppt fram af sér beislinu á þorrablótum í eina tíð. Vertinum líður þess vegna ótrúlega vel fyrir "innan" barinn því þá er ætíð hægt að hafa eitthvað fyrir stafni og hafa eitthvað markmið enda er þá eitthvað "point" í gangi, blanda drykki, þurrka af, raða í hillur og snatta eitt og annað í bland við kjaftagang við kúnnann. Núna á þorrablótinu var Vertinn reyndar það heppin að geta verið á sveimi um salinn og tekið myndir í gríð og erg sem birtast á Víkara innan tíðar. Það breytist óhjákvæmilega eitt og annað í kjölfarið á því að fara á snúruna og láta hengja sig til þerris og þetta er bara eitt af því. Sumir geta aldrei verið innan um fólk sem drekkur áfengi og draga sig út úr öllu slíku en margnefnd getur hæglega unnið með fólk sem slíkt gerir, sem betur fer enda væri slagbrandurinn kominn fyrir Kjallaradyrnar ef svo væri ekki. Ekki ber svo að líta á að þetta sé einhver akkilesarhæll en samt staðreynd útaf fyrir sig.
Kjallarakeppnin
Gestir Kjallarakeppni urðu að vera vel að sér í íslenska þjóðsöngnum auk þess að vita eitt og annað um hitt og þetta á Kjallarakeppninni á föstudagskvöld. Skemmst er frá því að segja að húsfyllir var á keppninni og enn meira gaman fyrir vikið. Setið var á öllum borðum og meira til og stemningin stórgóð. Segjast verður alveg eins og er að það má furðu sæta hve margir mættu á keppnina ef miðað er við mannfjölda þjóðarinnar og árstíma um þetta leiti enda virðast heimamenn og sveitungar úr nágrannabyggðarlögum miklu fleiri en í fyrstu var talið.
Hagbarður trekkti vel á Kjallarakeppnina og nú er að bara að vona að fólk fjölmenni þegar sigurvegarar kvöldsins,þær systur Kristín Teódóra læknir og Systa, systir hennar spyrja fólk spjörunum úr eftir tæpar tvær vikur. Vertinn lagði til að allir þeir sem kæmu á heilsugæslustöðina til læknishjálpar fram að næstu keppni ættu skilyrðislaust að fá uppáskrifað résept þess efnis að mæta á Kjallarakeppnina og taka þátt í skemmtilegum leik og fá í leiðinni örlítið betra geð og kannski eitt og eitt bros í kaupbæti og fara síðan heim stálhress á sál og líkama. Lýður læknir skaut eitt sinn fram þeirri staðreynd að þegar þorpskráin væri full af fólki í góðum gír að skemmta sér, þá væri hægt að vera öruggur um það að að bæjarbúar væru hraustir og hressir upp til hópa.
Þess ber að geta að enn einu myndasafni hefur verið bætt við flóru mynda á síðunni frá kvöldinu og lesendur eru beðnir að líta á myndirnar og setja sig í gírinn fyrir næstu keppni
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 03:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.1.2009 | 17:50
Á leið á blót
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.1.2009 | 18:38
Brýn áhersla..
....er lögð á það að guðdómlegur heitur matur verður fram borinn í Einarshúsi í hádeginu á morgun, föstudag en kjúklingar að hætti Guðlaugar í Tungu munu kitla bragðlaukanna svo um munar.
....er lögð á að í tilefni af sólarkomu verður vöfflujárnið heitt fram eftir degi og heitt súkkulaði og vaffla með rjóma verður á tilboði í Einarshúsi
...er lögð á að Hagbarður verður spyrill í Kjallarakeppninni annaðkvöld og tilboð verður á krepputíma í Kjallaranum
...er lögð á að sem flestir mæti í hús harma og hamingju og geri sér glaðan dag
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2009 | 01:33
Húlla í Búll
Allt hefur verið á fúllsvíng hjá Vertinum undanfarið þó kannski í fljótheitum sé ekkert sem bendi til þess að títtnefnd hafa haft eitthvað meira fyrir stafni en oft áður. Dagarnir líða engu að síður hjá með ógnarhraða og telja má til happs að einhverju skuli vera komið í verk. Vissulega má segja að þessi árstíð tilheyrir ekki beint hábjargræðistímanum í veitingabransanum hér vestra og er frekar rólegur að jafnaði en þó virðist oftar en ekki nóg að gera. Gaman er þó að geta þess að þegar er farið að panta fyrir næsta sumar og tveir hópar tilkynnt komu sína i trakteringar og tilheyrandi. Vissulega gleðst Vertinn yfir því að ferðafólk ætli að venja komur sínar í Einarshús næstkomandi sumar.
Vertinn stóð í stórræðum í kvöld er Lionsmenn héldu sinn venjubundna fund. Klæða þurfti gamalt net fyrir gluggann sem gegnir nú hlutverki gardína. Þurrkaðir krossfiskar og ígulker eru höfð til skrauts og undirstrikar gluggaútstillingin enn frekar sjómannayfirbragðið sem ríkir í Kjallaranum. Rauð ljós voru að endingu sett í gluggann til að varpa rómantískri birtu yfir svæðið og eiga þau án efa eftir að ýta undir allskyns þukl og káf á ögurstundum. Ekki er hægt að segja að ljóminn sem leggur frá ljósum hússins minni á Búllu í Húll, því frekar er hægt að segja að yfirbragðið sé í líkingu við Húllu í Búll ef því er að skipta og einhver er einhverju nær. Kjallarinn er að verða endanlega tilbúinn og algerlega æðislega kósý og krúttlegur, fullur að sjóminjum og dóti sem skapa góða stemningu. Hljóðkerfið komið á sinn stað og allt að verða eins og blómstrið eina. Næsta skref er að skrifa niður þá muni sem þegar eru í húsinu og segja sögu þeirra á prenti svo allir geti fræðst um það sem fyrir augu ber og sogið í sig sögu hvers munar fyrir sig.
Hægt er að segja frá öllum þeim munum sem í húsinu eru og er sagan svo heillandi að orð fá því varla lýst. Útidyrahurðirnar, sem eru nýsmíðaðar, eiga einnig stórkostlega sögu þó þær séu ekki gamlar því maðurinn sem smíðaði þær hvarf í Bermúda þríhyrningnum á síðasta ári á skútu og ekkert hefur til hans spurst. Hann hvarf á braut með mikla þekkingu á smíðum gamalla húsa enda var hann þekktur sem slíkur.
Viðburðir hrannast upp og það verður sko ekkert lát á uppákomum. Kjallarakeppnin er á föstudaginn og tilfinningin er sú að það verði kjaftfullt þegar Hagbarður fer að spyrja. Kolamolinn er á kjarapöllum á krepputíma. Þorrablót er einnig fyrirhugað í janúar og efast Vertinn ekki um það eitt augnablik að allir þeir bæjarbúar sem ekki komast á hið hefðbundna þorrablót í Bolungarvík fjölmenni. Þetta þorrablót mun kallast Bolungur og er bara byrjunin á árlegri hefð bæjarins um ókomna tíð.
Sungið verður í Singstar í febrúar og eitthvað verður gert meira úr þeirri uppákomu. Abba verður allsráðandi og fatnaður í stíl áskilin. Betra er því að finna klæðnað sem hentar fyrir kvöldið í febrúar og taka upp saumavélina og fata sig upp. Verðlaun verða veitt fyrir besta búninginn og bráðvantar þrjá dómara til að dæma. Eru áhugasamir beðnir að kommenta í athugasemdadálkinn hér neðar ef þeir hafa áhuga á að dæma búninga í Abba Singstar eða senda tölvupóst.
Það er orðið nokkuð ljóst að upphefð þykir að fá að leika í Kjallaranum og margir hverjir slá ekkert í gegn fyrr en troðið er upp í Einarshúsi. Það sýnir sig auðvitað best á hljómsveitinni "Haltur leiðir blindan" sem komst alla leið á síður Bæjarins besta nýverið og eru því heimsfrægir um allan kjálkann fyrir vikið. Sama má trúlega segja um Bubba Morthens, Hörð Torfa, Halla Reynis, Elín Ey, Gumma Jóns og Sigga Björns, að ógleymdum Jómma og Stjána auk margra annarra sem þekktir eru um allt land fyrir það eitt að spila í Kjallaranum. Nú ber svo við að margfræg hljómsveit miðaldra skallapoppara frá Ísafirði hyggst mæta á stóra sviðið í mars og tæta og trylla lýðinn svo um munar. Reikna má fastlega með því að gæjarnir í þeirri hljómsveit séu með sitt að aftan og með gullkeðjur niður á loðna bringu til að undirstrika atgervi sitt og útlit. Hljómsveitin IXNA er toppurinn þessa stundina og þar er Muggi aðalpopparinn eins og gefur að skilja. Á þessi hljómsveit eftir að mæta sterk til leiks í byrjun mars og lagt er til að skemmtanaglaðir einstaklingar setji sig í taumlausa gírinn og mæti fullir af þrótti, þori og þreki til að takast á við skemmtilegheitin.
Sem sagt af nógu verður að taka í framtíðinni og ljós að Vertinn í Víkinni ætlar sér ekki að leggja árar í bát.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.1.2009 | 21:31
Í samband
Gærkvöldið var glimrandi gott í Kjallaranum og fjölmargir sótti Einarshúsið heim. Eiginlega verður það að segjast að það hafi komið nokkuð flatt upp á téðan Vert því alla jafna er janúar frekar rólegur tími en nú viðist annað vera uppá teningnum núna. Það gleður hjarta margnefndrar að sjálfsögðu og brosið nær út í bæði munnvik að fólk skuli ætla að halda áfram að lifa lífinu lifandi og sína sig og sjá aðra í Einarshúsi. Gestir úr nærliggjandi byggðarlögum eru nokkuð duglegir að mæta og láta Óshlíðina ekki slá sig útaf laginu og það er vel.
Sérlega gaman er einnig að geta þess hve kúnnar Vertsins er umhugað um að allt sé undir kontról ef hitnar í kolunum í hita leiksins. Skjaldborg er slegið um húsið og það sem þar fram fer innandyra ef eitthvað bjátar á og út af ber. Engum líðst að raska því jafnvægi sem þykir einkenna staðinn og allir vinna sem einn maður að því að koma ró á andrúmsloftið ef neikvæðar bylgjur fara að búa um sig í skúmaskotum. Það respekt sem Einarshúsi er sýnt er án efa einstakt enda er húsið einstakt í sinni röð og einir bestu viðskiptavinir sem um getur gestir þar að jafnaði.
Spilavistin var stórskemmtileg á föstudag, þó vissulega fleiri hefðu mátt mæta svona fyrsta kastið á nýju ári. Það mun þó án efa fjölga þegar frá líður eins og venja er til. Úrslit spilavistar geta lesendur lesið á vef Einarshússins og velt þar fyrir sér útsjónarsemi hvers spilara fyrir sig og spáð í spilin. Spilavistin er haldin annað hvert föstudagskvöld á móti Kjallarakeppninni en spyrill í Kjallarakeppni föstudagskvöldið 23. janúar verður Hagbarður Marinósson. Búast má við að hann eigi einhverjar spurningar í handraðanum og Vertinn telur trúlegt að hann reki karlana á gat og spyrji kerlingarnar spjörunum úr svo menn eru hvattir til leiks.
Þorrablót verður haldið ef næg þátttaka fæst 31. janúar. Þá geta þeir sem verða að þreyja þorrann án þess að komast á hið hefðbundna þorrablót í Bolungarvík mætt og fengið að gæða sér á trakteringum sem hantéraður er eftir aldagömlum aðferðum og kúnstarinnar reglum. Auðvitað er það háð hve margir mæta, hvort þorrablótið verður haldið eður ei. Allar konur sem eiga órakahelda fataskápa og komast ekki fyrir nokkurn mun í íslenska þjóðbúninginn geta glaðbeittar mætt auk allra hinna sem eru misskyldir og fráskyldir, með legsig eða migsig og einhleypir og tvíhleypir og allt þar á milli meðan húsrum leyfir. Allra handa klæðnaður er leyfilegur sem þó verður að vera innan velsæmismarka.
Vertinn í Víkinni hefur fjárfest í hljóðkerfi í Einarshúsið og staðið við loforð sem gefið var þeim köppum Jónmundi og Kristjáni fyrir sl. markaðsdag og er þeim því ekkert að vanbúnaði að skipuleggja sín famtíðarplön í samræmi við nýja hljóðkerfi Kjallarans.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.1.2009 | 10:51
Spilavistin heldur áfram
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm