13.2.2009 | 22:44
Dæmisaga
Konan vefur um sig handklæði og hleypur til dyra.
Hún opnar hurðina og úti stendur Biggi úr næsta húsi.
Áður en henni tekst að koma upp orði segir Biggi: "Ég gef þér hundraðþúsund ef þú lætur handklæðið falla".
Hún hugsar sig um smá stund og lætur svo handklæðið falla og stendur nakin fyrir framan Bigga. Eftir nokkrar sekúndur lætur Biggi hana fá hundraðþúsund og fer.
Konan vefur handklæðinu aftur utan um sig og fer aftur inn.
Þegar hún kemur inn á bað spyr eiginmaðurinn: "Hver var þetta?"
"Þetta var Biggi í næsta húsi", svarar hún.
"Frábært", segir maðurinn, "nefndi hann eitthvað um þessi hundraðþúsund sem hann skuldar mér?"
Boðskapur sögunnar:
Ef þú deilir mikilvægum upplýsingum varðandi lán og áhættu með hluthöfum tímanlega geturðu verið í aðstöðu til að koma í veg fyrir óþarfa afhjúpun
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.2.2009 | 11:59
Brandari á föstudegi
Vertinn, Guðlaug og Gunna voru á leiðinni í mat þegar þær fundu fornan olíulampa.
Þær nudduðu lampann og út kom töfraandi. Andinn sagði: "Ég veiti hverju ykkar eina ósk".
"Ég fyrst! Ég fyrst!", segir Gunna. "Ég vil vera á Bahamaeyjum á hraðbát algerlega áhyggjulaus". Og púff! Hún hvarf.
"Næst ég! Næst ég!", segir Guðlaug. "Ég vil vera á Hawaii að slaka á með einkanuddara og endalausar birgðir af Pina Colada og ástinni minni". Og púff! Hún hvarf.
"Allt í lagi, það er komið að þér", segir andinn við Vertinn.
Vertinn sagði þá: "Ég vil að þessar tvær konur verði komnar aftur í vinnu í Einarshús eftir mat".
Boðskapur sögunnar:
Alltaf láta yfirmanninn tala fyrst.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.2.2009 | 01:15
Hlutverk
Það má teljast nánast öruggt að Kári nokkur Stefánsson hefði viljað eins og eitt eintak af Vertinum, fréttaritaranum og forseta bæjarstjórnar Bolungarvíkur sem allt í senn er sami einstaklingurinn, upp á sitt borð til frekari rannsóknar eftir dagskrá dagsins. Títtnefnd var þríklónuð er hún steig á stokk í íþróttamiðstöðinni Árbæ í dag til að veita gjöfum viðtöku fyrir hönd bæjarstjórnar. Þá hafði margnefnd ný afklæðst klæðnaði Vertsins í Víkinni en veisluföng og trakteringar voru frá Einarshúsi á þessari merku samkomu. Múndering ljósmyndara Víkara.is var lögð til hliðar ásamt myndavélinni rétt á meðan hæstvirt gegndi trúnaðarstörfum fyrir bæjarfélagið og allt í einni svipan var allt þegar þrennt var og allar runnu þessar hrokkinhærðu kerlingar aftur í sama kroppinn að öllu þessu afloknu. Ekki þurfti að hræra í litningum og láta þá gerjast í glasi til að hægt væri að framkvæma þessa flóknu athöfn enda eru Vestfirðingar þekktir fyrir galdra og brellur og enginn sá trixið sem að baki bjó. Sama brosið var brúkað í öll skiptin enda þurfti engu að breyta til að framkvæma gjörninginn og birtist íslensk erfðagreining í öllu sínu veldi við hliðina á þrektækjum íþróttasalarins. Þetta ætti vissulega að teljast til tíðinda ef það væri ekki alþekkt fyrirbæri í litlum sjávarþorpum að sami einstaklingurinn gegni mörgum störfum og sé eins og landafjandinn út um allar trissur. Hver er sinnar gæfusmiður og uppsker eins og hann sáir og á að vera ánægður með hlutskipti sitt í hvívetna þó hann þurfi endrum og eins og sinna mörgum hlutverkum í einu á sama tíma.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.2.2009 | 23:58
Spilavist föstudaginn þrettánda
Lokakvöld í þriggja kvölda keppni fer fram föstudagskvöldið 13. febrúar kl. 21.00. Veitt verða verðlaun fyrri stigahæstu konu og karl en einnig fá þeir sem fara heim með öngulinn í rassinum smá glaðning. Verðlaun fyrir stigahæsta keppendann eftir þrjú spilakvöld verður listaverk unnið í listasmiðju staðarins
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2009 | 01:02
Allt klink afþakkað
Bókhald á hug Vertsins í Víkinni þessa dagana enda er tilhlýðilegt ef staðið er í fyrirtækjarekstri að bóka tölur þvers og kruss í þar til gert kerfi. Frumskilyrði fyrir slíkri vinnu er að allar tölur stemmi við sérstök yfirlit frá sparisjóðnum og haka þarf við allar oddatölur og endatölur sem sýna nákvæmlega jafn háa upphæð miðað við dagsetningu og eru á reikningunum. Þetta er verkefni þessa dagana að mestu leiti og þess vegna gerist lítið sem ekkert á netsíðum þeim sem títtnefnd ber ábyrgð á. Lesendur þeirra verða að sýna þolinmæði og þrautseigju því þrátt fyrir það að sólin sé að hækka á lofti og daginn sé tekið að lengja virðist sólarhringurinn alltaf verða styttri og styttri hjá margnefndri sem kemur mest litlu í verk. Trúlega borgar sig ekki að biðja almáttugan skapara himins og jarðar um lengingu á sólarhringnum, því væntanlega myndi téður Vert misnota viðbótina óspart sem gerði það að verkum að sá aukatími sem bættist við yrði einnig of stuttur áður en varði.
Þó má reyndar segja að stundum vekur það undrun hve títtnefnd getur afrekað að vera nánast ámörgum stöðum í einu því varla var búið að funda með Bjarna Ben. tilvonandi formannsefni sjálfstæðisflokksins á föstudag þegar margnefnd var komin í gervi ljósmyndara inn í jarðgöngum. Þetta nær auðvitað engri átt en samt er alveg hægt að dást að því hvað lífið er fjölbreytilegt á köflum í lífi þeirrar sem hér ritar. Í allri yfirferðinni gleymist auðvitað að segja frá einu og öðru því minniskubburinn yfirfyllist oft á ögurstundum og lítill tími er til að dílíta því sem engu máli skiptir svo því fer sem fer. Ber þó að geta þess í framhjáhlaupi að oftar en ekki gerir Vertinn ekki neitt og það verður bara að hafa það.
Þó þarf að líta við í Einarshúsi við og við til að halda utan um viðburði hvers dags fyrir sig eins og gengur. Kjallarakeppnin á sl. föstudag var stórskemmtileg að vanda og stóðu spyrlarnir sig með stakri prýði. Það er engin önnur en Ylfa Mist sem spyr í keppninni að hálfum mánuði liðnum og vænta má þess að hún tóni spekingslegar spurningar ofan í gesti svo þeir sem telja sig vita allt um bráðnauðsynlega hluti og líka um það sem er mjög ónauðsynlegt að vita, mæta auðvitað og taka þátt og reyna að vinna eðalmjöðinn frá Vífilfelli. Oftar en ekki er kolamolinn á tilboði úr gömlu kolageymslunni svo lag er fyrir drykkfelda að mæta en einnig afar kærkomið að sjá hina líka sem bara fá sér súkkulaði eða sviss mokka.
Laugardagskvöldið leið í söng og dans því Vertinn brunaði með allt sitt starfsfólk á leiksýningu Litla leikklúbbsins sem ber heitið " Við heimtum aukavinnu" og er sniðin eftir lögum þeirra bræðra Jóns Múla og Jónasar Hallgrímssonar. Skemmst er frá því að segja að sýningin er alveg frábær og allir þeir sem vettlingi geta valdið hér vestra eru hvattir til að mæta og berja hana augum. Það er í raun undravert hve menningin blómstrar hér vestra svo ekki sé talað um alla þá sem eru í aukavinnu hér og þar og allstaðar og miðar þá títtnefnd við margnefnda og ber sig saman við höfðatölu vestfirðinga og mannfjölda. Það viðurkennist þó hér að þeim fáu gestum sem heimsóttu Kjallarann á laugardagskvöldið var eiginlega kurteislega vísað inn á Ísafjörð því einhver fiðringur greip bardömurnar enda brunuðu þær á eftir gestunum og litu við í öldurhúsi handan fjallsins í "starfskynningu". Það er nauðsynlegt við og við.
Sunnudagurinn rann upp með hljómsveitaræfingu haltra og blindra. Nú er þetta fyrst að verða alvöru hljómsveit því orgel hefur bæst í hópinn. Þeir eru því fullfærir í kirkjulegan tónlistarflutning í bland við graðhestarokk og ról af öllu tagi. Mest er þó auðvitað gaman að sjá hve þessi síungu töffarar hafa gaman af þessu spilerýi. Lagt var hart að þeim að koma og spila um páskana því auðvitað verður eitt gott gigg að vera í boði þá. Vertinn á eftir að fá svar þess efnis og berst það án efa um leið og réttir aðilar lesa þetta blogg. Auðvita má ekki skyggja á rokkhátíð alþýðunnar sem gjarnan er haldin á Ísafirði um páskana enda gengur ekki að varpa skugga á hana með einum eða neinum hætti. Verður giggið í Kjallaranum því að vera það kvöld sem ekkert er að gerast hjá þeim sem aldrei fóru suður og geta þeir því mætt í Kjallarann um leið og um hægist.
Krúttmagakvöldið
Svona rétt til að æsa stelpurnar fyrir krúttmagakvöldið 28. febrúar þá getur Vertinn með mikilli gleði upplýst það að stripparinn er í höfn og mun hann dilla sér taktfast við súlurnar. Hann vill gjarnan fá 500 kalla í nærbuxnastrenginn en allt klink er afþakkað.
Meira um það innan skamms
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.2.2009 | 10:44
Kjallarakeppnin

Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.2.2009 | 01:05
Krúttmagi
Þessi dansari er að hugsa um að koma á krúttmagakvöldið í febrúar, Vertinn á bara eftir að leysa þetta með svellið.....
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.2.2009 | 02:34
Nótt
Nú er niðdimm nótt og húmið er allsráðandi er títtnefnd fer yfir atburði helgarinnar. Helgin er búin að vera stórkostleg þrátt fyrir það að mikið hafi verið umleikis hjá Vertinum og hennar skylduliði. Stórveisla var haldin í tengslum við kjör á íþróttamanni ársins á laugardag og allt gekk eins og blómstrið eina. Ekki þarf að fjölyrða neitt um það að annað eins bakkelsi hefur varla verið á borðum fyrr né síðar og þær guðdómlegu kræsingar sem fram voru bornar og fengu borð til að svigna voru æðislegar svo ekki sé meira sagt. Það er auðvitað ekki við öðru að búast því færustu smörrebrauðsdömur og tertuskreytingameistarar á þessari breiddargráðu eru í vinnu hjá téðum Vert. Guðlaug, Gunna og Elsa unnu baki brotnu við að útbúa veisluna og eiga heiður skilið fyrir hversu vel tókst til. Félagar eldri borgara á staðnum fengu svo að njóta afgangsins af tertunni á þorrablóti þeirra á laugardagskvöld í safnaðarheimilinu og vonandi hafa þeir notið þess í hvívetna.
Bátur einn frá Drangsnesi áði við höfnina nokkra stund og tilskipanir komu frá skipper í plássinu um hvar kútterinn ætti að leggja að bryggju svo sem styðst væri að fara á barinn. Báturinn var því festur við Lækjarbryggjuna og kompásinn stilltur til móts við kompásinn úr Hafrúnu sem er í Kjallaranum og radarinn stilltur í humáttina að Einarshúsi. Það var eins og við manninn mælt að fjörið jókst til muna er príðispiltar úr fjarlægu byggðarlagi blönduðust flóru fastagesta og þeirra sem koma endrum og eins til að sýna sig og sjá aðra í bland við síkáta sjóara. Stefnan var svo tekin í háaustur og beina leið um borð er komin var nótt og fjörið á enda
Vertinum er ljúft að geta þess að töluverður áhugi er á krúttmagakvöldi sem haldið verður í þessum mánuði og þegar er farið að panta þrátt fyrir að það sé varla farið að auglýsa herlegheitin. Undirbúningur er þó þegar hafinn og reyndar kominn vel á veg. Líkt og hefð er fyrir á klúrum kvennakvöldum mætir strippari á svæðið (þ.e. ef hægt verður að véla einhvern í verkið). Nokkrir eru þó að hugsa málið og talið er nokkuð öruggt að einhver loðinn og lokkandi karl stigi á stokk áður en yfir líkur en Vertinum var tjáð, að sökum kuldans hér vestra yrði viðkomandi að vera í loðnari kantinum . Það skál þó tekið fram að hið allra heilagasta mun ekki sjást enda mega bolvískar konur ekki vamm sitt vita eins og alþjóð veit og þess vegna er það sett sem skilyrði að g-strengurinn verði ekki látinn fjúka af í hita leiksins. Fjölmargt annað og skemmtilegt verður í boði á þessu kvöldi sem verður auglýst sérstaklega um leið og það er komið á hreint
Annað kvöld bíður undirbúnings en Signstar keppni fer fram þann 21. febrúar. Þegar hefur heyrst af búningasaumun og þess háttar en verðlaun verða veitt fyrir besta búninginn auk besta söngsins. Það verður einkar spennandi
Þess ber að geta í framhjáhlaupi að ómur hefur heyrst af stífum æfingum hljómsveitarinnar "Ixnu" en þar er Muggi í fararbroddi ásamt öðrum síungum skallapoppurum. Stóra sviði bíður þeirra með eftirvæntingu
Svona eru nú hugleiðingar Vertsins um nótt
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 02:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2009 | 13:58
Skyldumæting
Algjör skyldumætin er á spilavistina í kvöld og eru spilasjúkir hvattir til að baða sig og klæða sig upp fyrir kvöldið. Hinir sem nú þegar hafa skólpað af sér eru einnig velkomnir og hvattir til að láta sjá sig og taka spil þó auðvitað megi segja það hér í framhjáhlaupi að baðferðir eru ekki settar sem skilyrði heldur meira sagt í gríni. Þetta er annað kvöldið í þriggja kvölda keppni og nú þegar hafa listhneigðar konur listasmiðjunnar á staðnum hafist handa við að hanna listaverk úr gleri fyrir sigurvegarann eftir þrjú spilakvöld og spennandi verður að sjá útkomuna.
Þorrablótinu sem halda átti annað kvöld hefur verið aflýst vegna ónógrar eða nánast engrar þátttöku, merkilegt nokk .
Dægurmál | Breytt 31.1.2009 kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2009 | 00:35
Metta af mat og menningu
Vertinn í Víkinni er uppfull af menningu þessa dagana enda er þetta eitt mesta menningarpláss sem stendur við nafla alheims. Það væri synd að segja að bæjarbúar fái ekki nóg af afþreyingarefni þessa stundina sem léttir og kætir andann og gerir það að verkum að lífið virðist enn léttbærara en endranær. Títtnefnd vissi bara hreint ekki að svona margri ættu heima í Víkinni og undraðist allan þann fjölda fólks sem mætti á árshátíð Grunnskólans og naut þess að taka þátt í því sem fyrir augum bar. Það þarf ekkert að fjölyrða um það að krakkarnir stóðu sig með prýði og bolvísk æska var til fyrirmyndar eins og ætíð. Hér á myndinni má sjá Lilju taka lagið í söngleiknum Grease.
Ekki má gleyma að minna á spilavistina í kvöld, föstudag, kl. 21:00 og menn eru hvattir til að mæta og spila með og hafa gaman saman. Því fleiri sem mæta því meiri stemning skapast og andrúmsloftið verður kynngimagnaðra. Á laugardag verður stórveisla vegna kjörs íþróttamanns ársins sem fram fer í Einarshúsi á laugardag. Unnið er hörðum höndum að bakstri fyrir herlegheitin og nóg er að gera hjá þeim sem vettlingi geta valdið og eru að undirbúa veisluna.
Alltaf bætist í hljómsveit hússins. Hljómborðleikari hefur óskað eftir því að fá að leika með og án efa bætast bjöllur, sagir og allskyns búkhljóð við undirleikinn áður en yfir líkur. Stóra sviðið rúmar þó alla sem tilheyra húsbandinu enda laðar húsið sig að öllum þeim sem vilja troða upp. Sama er að segja um matinn í hádeginu því það er sama hvort það koma 10 manns í mat eða 50, alltaf er til nógur matur fyrir alla svo undrun vekur. Halda mætti að skaparinn stæði við hægri hönd Vertsins og hennar skylduliðs og breytti vatni í vín og brauðfæddi lýðinn með einungis einu brauði og nokkrum fiskum. Metta þarf hungraða bæði af mat og menningu og af hvorutveggja er hægt að fá nóg af í henni Bolungarvík..
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm