Ekki Humphrey Bogart....

...heldur Einar Jón og Elsa

Einar Jón og Elsa


Sæl eftir frábært kvöld

krúttmagarÞað er auðveldlega hægt að segja frá því að Vertinn er búin á því eftir helgina og vinnuhjúin hennar líka eftir akkorð gærdagsins. Þetta var ein mesta törn í húsi sorgar og gleði frá upphafi eða því sem næst og fjörið var æðisgengilegt og stöðugt frá upphafi til enda. Aldrei leið sú mínúta þar sem ekki var yfirdrifið nóg að gera og þrátt fyrir að títtnefnd væri á háhæluðu kvöldið út í geng var vaktin staðin með bros á vör allan tímann. Segjast verður þó alveg eins og er að dagurinn í dag fer ekki út úr rúmi enda virkileg þörf á því að hvíla sig eftir úthaldið helgarinnar og ná sér á strik aftur fyrir komandi viku.Krúttmagar skemmtu sér hið besta eftir því sem best er vitað og dúndurstuð var frameftir ölli.

 

Þrátt fyrir að vera Vert í Einarshúsi og þurfa að sjá til þess að allir hnútar væru hnýttir, varð Vertinn á krúttmagamargnefnd að sinna módelstörfum og sýna tískufatnað frá Monroe á Ísafirði með hárið uppsett í krullur eftir hárgreiðslumeistara Hárstofunnar í Bolungarvík og máluð í bak og fyrir með hársnyrtivörum frá Volare. Það þykir að sjálfsögðu sjálfsagt að fórna sér fyrir málstaðinn og gera það sem gera þarf í það og það skiptið og að bregða sér í gervi módels er eins og að drekka vatn þegar svoleiðis stendur á. Segjast verður þó alveg eins og er að títtnefnd er ekki í sæs núll og aðeins meira en beinin ber og ekki lengur blá úr hor og því varla gjaldgeng á tískusýningar út í heimi miðað við það útlit sem einhverjir tískusýningardólgar þar ytra sjá með augum sem sjá hlutina ekki í réttu ljósi. Allt gekk þó vel fyrir sig þrátt fyrir að plássið í starfsmannaaðstöðunni til að skipta um föt væri nánast ekkert þá var stundin skemmtileg og hrífandi.

Breytt útlit var á sínum stað að vanda og varð Lilja á Hóli eins og ný eftir breytinguna, happdrætti var í boði og brandarar flugu um salinn. Erótíski dansarinn var fínn þrátt fyrir að kellurnar vildu auðvitað sjá meira af kappanum en raun bar vitni, þær settu á hann olíu og rjóma og gáfu honum vínber í svanginn og sáu til þess að hann færi ekki svangur heim sem hlýtur að teljast honum til happs. Svokölluð skaufabrauð voru borin fram með pastaréttunum í stað laufabrauða og sagt var að þau hafa smakkast hið besta. Ekki skal hér látið uppi hvaðan fyrirmyndirnar af þeim voru fengnar enda var það bara gert til gamans og til að létta krúttmgunum lífið.

Haltur leiðir blindanHaltur leiddi svo blindan á stóra sviðinu síðar um kvöldið ómaði taktur hljómsveitarinnar um nærliggjandi svæði og dansað var látlaust allan tíma sem þessir miðaldra skallapopparar sungu og léku. Þeir viðast ná því að halda upp stemningu frá upphafi til enda, enda er lagaval þeirra með þeim hætti að hægt er að dilla sér við hvert einasta lag. Það er í raun ótrúlegt hvað þessir hljómsveitagæjar ríma vel saman hver við annan og halda vel lagi. Vertinn fullyrðir að þetta sé ein besta hljómsveit hér vestra hvorki fyrr né síðar. Hljómsveitin IXNA á þó eftir að láta ljós sitt skína á stóra sviðinu í Kjallaranum og samanburðurinn er því ekki til staðar. Jómmi og Stjáni ætla þó að fanga alla athygli næstu helgar og eru Bolvíkingar og nærsveitamenn beðnir að slá ekki slöku við og mæta á þá frambærilegu og bráðskemmtilegu trúbadora sem spila og syngja í Kjallaranum laugardagskvöldið 14. mars

 

 


Örfá sæti laus

Betra er að geta þess að örfá sæti er laus á Krúttmagann sem haldinn verður á laugardaginn. Sá sem ætlar að afklæða sig í erótísum dansi fyrir kerlingarnar um kvöldið er að truflast af æsingi............................

Ætlar þú kannski að senda Vertinum í Víkinni skilaboð og netfangið ragna@einarshusid.is akkúrat núna svo þú getir líka barið hann augum og kannski komið við hann ef hann er í seilingarfjarlægð?

Þú getur líka hringt í síma 864-7901 og 456-7901.........þeas ef þú þorirWink


Sr. Agnes spyrill í Kjallarakeppni

Sóknarpresturinn mun spyrja gesti spjörunum úr í Kjallarakeppninni á föstudagskvöldið. Vertinn leggur svo um og mælist til þess að allir verði búnir að lesa biblíuna amk. einu sinni fyrir kvöldið og fari með faðirvorið á hverju kvöldi fram að keppni. Trúarjátninguna verða allir að kunna afturábak og áfram og upprisan verður að vera hverjum manni ljós enda er hún frumskilyrði fyrir því að allir hafi trú á því að leiðin liggi til himnaríkis. Vertinn mun svo að sjálfsögðu breyta vatni í vín og leggja sig fram um að veita hverjum manni syndaflausn sem á þarf að halda. Ætla má að nokkrar Maríubænir séu innifaldar í hverjum kolamola  úr kolageymslunni enda inniheldur hann 500 orð svo af nógu er að taka.

Volare

Styrkir Krúttmagakvöldið í Kjallaranum

Tískuvöruverslunin Monroe á Ísafirði

Styrkir Krúttmagakvöldið í Kjallaranum

Hárstofan í Bolungarvík

Styrkir Krúttmagakvöldið í Kjallaranum

Haltur leiðir blindan

Vert er að geta þess í tíma að stórsveitin Haltur leiðir blindan mun troða upp í Kjallaranum í Einarshúsi á laugardagskvöldið að afloknu kútmaga- og krúttmagakvöldinu. Hægt er að bóka þrumustuð enda hljómsveitin ein sú besta sem um getur á svæðinu og þótt víðar væri leitað. Ætla má að skemmtanaþyrstir Bolvíkingar og nærsveitamenn taki daginn frá og mæti galvaskir á þorpskránna og njóti lífsins út í ystu æsar.

Tími til kominn

Lilja og Ida í ReykjanesiÞað má svo sannlega segja með sanni að tími þótti vera kominn til að líta upp úr hversdagsleikanum og kíkja handan fjallanna er blasa við er litið er inn Ísafjarðardjúpið. Reykjanes kallaði háum rómi á Vertinn í Víkinni og hvatti hana til að heiðra svæðið með nærveru sinni og því var land lagt undir fót og rauða drossían fyllt viðeigandi farangri og leiðin ekin í humátt að áfangastað. Í Reykjanesi beið stærsti náttúrulegi heiti pottur veraldar þolinmóður eftir því að títtnefnd liti við og tæki sundsprett í heitu vatninu sem sem móðir náttúra velgir í rétt hitastig og lætur renna í laugina fínu. Gufan sem lagði upp úr sundlauginni sveipaði umhverfið ljóma ævintýra minnti á þúsund og eina nótt og sólin skein eins lengi á sundgarpana og hún hafði leyfi til miðað við árstíma. Öll þjónusta var til fyrirmyndar í Reykjanesinu og einstaklega vel tilfundið að heimsækja þennan forna héraðsskóla og á þar eina nótt. Vertinn er nú meira en tilbúin til að takast á við vikuna sem fer í hönd og skipuleggja helgina´sem samanstendur af miklu fjöri frá upphafi til enda.

Brúin héltÞað má auðvitað tilkynna það með mikilli gleði að brúin í Mjóafirði er vel mannheld því hún hélt Vertinum án braks og bresta og telst það verktökum til tekna. Þvílíkur lúxus það verður að geta ekið hana á leið sinni um Djúpið og tilhlökkunarefni að fá að stytta leiðina Vestur enn frekar en orðið er. Reyndar verður það að viðurkennast að vegmerkingum um svæðið er verulega ábótavant og mikil hætta myndast við nýja veginn sem liggur að brúnni en þar er vegfarendum ekki gert ljóst með óyggjandi hætti að beygjan á gamla veginum sem vísar leiðina inn Mjóafjörðin er stórhættuleg og þar hafa orðið slys. Eitt slíkt var í dag er Vertinn og hennar skyldulið var á ferðinni, en bíll hafði farið útaf og stórskemmst. Allir sem í bílnum voru sluppu þó með skrekkinn sem betur fer. Ætla má að vegagerðarmenn verði strax í býtið að leggja leið sína að þessum stórhættulega kafla á veginum og merkja hann betur til að koma í veg fyrir frekari slys.

Örninn í DjúpinuÖrninn þurfti þó ekkert að hafa áhyggjur af vegmerkingum er hann sat á steini í Skötufirði og horfði til hafs. Letilega leit hann á ferðlangana er ljósmyndarinn spratt út úr bifreiðinni til að smella af mynd af þessu stóra fugli. Ekki lét hann bramboltið í oftnefndri spilla þeim friði sem ríkjandi var við ströndina enda er hann án efa vanur fuglahærðum af ýmsum toga á túnum og engjum þar í sveitinni. Að endingu leiddist honum forvitnin og tók sig á loft og sveif vængum þöndum í átt til hafs er honum þótti myndavélin vera komin of nærri. Ekki flaug hann þó í áttina að Ísafjarðarkirkju enda er ekki til siðs að Ernir sitji á kirkjubekkjum og syngi sálma. Bróðurbörnin og systkinin Bjarni Kristinn og Bryndís Elsa aftur á móti sungu þar og spiluðu í messu í kirkjunni og hljómuðu undurblítt. Þar brást Vertinum bogalistin því myndavélin var ekki með í það sinnið og því eru engar myndir af tónlistarflutningnum. Þau eiga þó eftir að láta ljós sitt skína í Einarshúsi vona bráðar og þá fá fleiri að njóta


Kolamolinn á kostakjörum

Kolamolinn úr gömlu kolageymslunni verður á kostakjörum í kvöld, laugardagskvöldið 28. mars í tilefni af afmæli gerjaða drukksins frá Vífilfelli sem selja mátti óhikað fyrir 20 árum síðan eða svo. Kaldur og freyðandi kolamolinn mum kosta fimm-hundurð-kall meðan birgðir endast.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband