30.3.2009 | 14:10
Tveir heimar
Ef marka má fréttir dagsins þá lemur iðulaus stórrhríð Víkina fyrir vestan og varla sést milli húsa. Þessar fréttir bera sólargeislarnir hér syðra með sér í hita dagsins og hvísla fréttum um drunga og dimmu í veðurfarinu fyrir vestan. Gærdagurinn kom þeim boðum áleiðis í gær að messufall hefði orðið í kirkjunni á Hólnum heima vegna veðurs og því hefði Jesú bróðir besti ekki verið sóttur heim þennan sunnudaginn. Það kom þó ekki í veg fyrir það að Vertinn gengi til altaris og fengi að bragða á líkama krists og alkóhólblönduðu blóði hans í leiðinni því ferming var innan fjölskyldunnar og Hjallakirkja í Kópavogi bauð heim fermingarbörnum og fjölskyldum þeirra.
Vertinn gistir höfuðborgina þessa stundina í góðu yfirlæti og lætur vel að ljúfum blænum sem leikur um vangann. Hugurinn hugsar þó heim og furðar margnefnd sig á því hvernig á því geti staðist að títtnefnd skuli geta spókað sig hér í brakandi blíðu á háhæluðu þegar veturinn lemur Vestfirðina með hörku og hlífir hvergi. Veðurguðirnir verða þó að fara að hugsa sinn gang og hleypa vorinu að í rjóðrinu heima og losa klakakrumlurnar sem nú hafa hert takið um byggðina og leyfa sólinni að þýða hugskotið og húsasundin í leiðinni.
Vertinn hefur setið landsfund sjálfstæðismanna og hefur það tekið drjúgan tíma frá Smáralindarrambi og Kringlukúldri. Það verður þó að segjast alveg eins og er að það er ekki að sjá að mikil kreppa skeki pyngju landans því yfirgengilegt kaupæði virðist eiga sér stað í hverri verslun. Kannski hafa verið gefin út ný eyðslukreditkort af kortafyrirtækjunum til að steypa kaupóðum Íslendingum endanlega í glötun og gera þá gjaldþrota fyrir lífstíð.
Pyngja Vertsins er þó galtóm þessa stundina því dóttirin losnaði við spangirnar og tannréttingasérfræðingurinn tók andvirði eins indversk smábíls að launum fyrir ómakið. Vænta má þess að sú sem tók við aurunum hafi getað keypt sér eitthvað fallegt fyrir afganginn
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2009 | 01:28
Hugfangin
Vert er að geta þess í framhjáhlaupi að Kjallarakeppnin er á sínum stað í kvöld eins og venjulega aðra hvora helgi. Einar Ægir Hlynsson mun ekki láta sitt eftir liggja og mætir í öllu sínu veldi þegar klukkan er rétt rúmlega 23:00 en það er ívið seinna en oft áður. Það þarf ekki að geta þess að verðlaunin eru drukkur frá Vífilfell sem Þorsteinn Haukur staðarstjóri Vífilfells hér vestra lætur bera í Vertinn með reglulegu millibili sem leggur það á borð með sér í keppnina. Einar Ægir ætlar að spyrja um bíómyndir og leikara og ætla má að þátttakendur verði vel með á nótunum þegar kemur að því að svara einu og öðru því tengdu. Það þarf svo að komast vel til skila að Gummi Hjalta tekur lagið að keppninni lokinni og leikur og syngur fram í rauða nóttina svo enginn ætti að vera svikinn af kvöldinu. Kolamolinn verður á kostakjörum að vanda til miðnættis.
Drjúgur tími Vertsins í Víkinni fer í að undirbúa sumarið og vinna að markaðssetningu Einarshússins. Það trúa því án efa fái hve mikil vinna er fólgin í slíku en vinnan handan barsins er bara augnablik í tíma og rúmi í erli dagsins. Reikna má með því að ferðamaðurinn leggi land undir fót í sumar og ferðist um Ísland og er þvi tilhlíðilegt að Íslendingar setji stefnuna Vestur en þar er í boði sannkölluð Veisla að Vestan sem engan lætur ósnortinn. Markaðsmál eru reyndar mjög skemmtileg og gefandi og halda margnefndri hugfanginni daga langa. Það verður þó að segjast alveg eins og er að tíminn er ekki nægur og merkilegt má teljast að oftnefnd er varla vöknuð að morgni mánudags en háttatíminn bankar upp á á kvöldi föstudags.
Dagarnir eru þó fallegir enda er vorið að koma og vorvindar glaðir, glettnir og hraðir líða hjá. Birtan nær ekki bara að lýsa upp umhverfið heldur varpar hún birtu í sálartetrið líka og sveipar lífið enn meiri ljóma en áður. Það er í raun merkilegt hve veðráttan getur skipt miklu máli hjá þeim sem búa að staðaldri svona norðarlega og búa við svo mikið skammdegi á vetrum. Þó hafa allar árstíðir sinn sjarma sem gott er að halla sér að í það og það skiptið.
Pottablómin fá nýja mold eitt af öðru og hafa lofað að dafna vel fyrir vikið. Það er þó kraftaverk að þau skuli ekki hafa þornað upp og skrælnað vegna ofþornunar því Vertinn hefur ekki verið örlát á vökva í vetur nema síður sé. Þó hafa þau lifað veturinn af líkt og aðra vetur og eru nokkur borubrött og tilbúin að gefa títtnefndri eitt tækifæri til viðbótar til að sanna það og sýna að hún sé þess verð að umgangast plöntur af öllum toga og halda þeim á lífi
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2009 | 10:28
Kjallarakeppnin
Það verður að sjálfsögðu að geta þess í tíma að Kjallarakeppnin verður á sínum stað á föstudagskvöldið en þá mun einn af tengdasonum Bolungarvíkur spyrja gesti spjörunum úr. Einar Ægir Hlynsson ætlar að hafa þemað bíómyndir og leikara svo nú er lag að fara að lesa sér til um þau efni. Gummi Hjalta mætir svo í brjáluðu stuði með gítarinn eftir keppnina og heldur uppi fjöri fram á rauða nóttina. Einarshúsið er taumlaust er kemur að því að halda uppi menningarlífi í bænum og hefur eitt það markmið að laða að sér sem flesta til að njóta sem sem þar fer fram. Það má allt eins búast við að kolamolinn verði á kostakjörum að vanda til miðnættis svo allt mun verða eins og blómstrið eina þá eins og endranær.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2009 | 14:22
Kjallarinn kjaftfullur
Það var eins og við var að búast að kjaftfullt var í Kjallaranum í nótt og stemningin afar góð. Trylltir dansar voru stignir á gólfinu við stóra sviðið að vanda þegar kvöldið var í hámarki og allir skemmtu sér hið besta. Auðvitað má segja það fullum fetum að furðu vekur hve mannmargt er í Kjallaranum um þetta leyti árs en risandi gleði fylgir hækkandi sól og bjart er því framundan hjá Vertinum í Víkinni. Gestir frá nágrannabyggðarlögum eru tíðir gestir og það er vel til fundið að leggja leið sína í hús sorgar og gleði á kvöldum sem þessum. Jómmi og Stjáni héldu dampi kvöldið út í gegn og Stjáni fékk bæði reyk og pissupási amk einu sinni sem þykir nokkuð gott ef miðað er við aldur og fyrri störf. Það telst þó til reyndar til tekna að hafa samkvæmisblöðru á kvöldum sem þessum enda lítill sem enginn tími til að tæma blöðruna í miðju lagi hvað þá þegar dillandi dansbossar vilja ekki hætta að dansa við fjörugt lag. Hverjum manni er það ljóst að það iðandi líf sem í húsinu er helgi eftir helgi lyftir bæjarfélaginu á hærra stall enda væri fremur rólegt yfri staðnum ef ekki væri Einarshúsið. Það er líka sem húsið hrífist með gleðskapnum því augljóst má finna fyrir daðurslegum og töfrandi tilburðum húss sorgar og gleði enda er andardrátturinn ör og hjartslátturinn dillandi og í takt við dansinn og taktfastan hljóm þeirra sem spila á stóra sviðinu.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2009 | 13:32
Kolamolinn á kostakjörum
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2009 | 00:28
Jómmi og Stjáni mættir á svæðið
Jómmi og Stjáni eru mættir á svæðið
og tóku þeir æfingu með Höltum og blindum í kvöld til hita sig upp fyrir laugardagskvöldið
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2009 | 21:44
Annað sætið
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2009 | 12:33
Gómsæt gúllassúpa í hádeginu á morgun
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2009 | 00:34
Háskaðræðistíminn
Fregnir hafa borist með vindinum ofan úr Gili af lífi og fjöri í Einarshúsi nýafstaðna helgi. Þuríður og Þjóðólfur hafa leitað í snjósköflum að óskilamunum sem týndust er geymið stóð sem hæst í húsi gleðinnar og vonandi hefur það borið árangur sem erfiði. Enginn týndi þó tönnunum og því síður ærunni enda voru menn saman að hafa gaman og hreint ekkert út á það að setja. Kvöldið var hreint frábært í alla staði og gleðilegt að sjá hve mannskapurinn var í góðum gír. Það þykir auðvitað tilhlýðilegt að bregða sér í allra kvikinda líki ef því er að skipta til að þóknast kúnnanum sér í lagi núna um háskaðræðistímann og Vertinn og vinnukonan víluðu það ekkert fyrir sér að breyta sér í vel vaxna karlmenn til að sveipa stundina ævintýraljóma. Dindlarnir voru fylltir tróði sem orsakaði það að svunturnar voru bornar með reisn og unaðsstunur fóru um salinn sem gerði það að verkum að karlarnir á efri hæðinni duttu alveg úr stuði og fóru út af laginu í eitt skipti fyrir öll. Þó má geta þess í framhjáhlaupi að með þessu svuntu tiltæki var að sjálfsögðu verið að leggja höfuðáherslu á hreinlæti við matargerðina enda þykir ótilhlýðilegt að vera að hantéra mat án þess að bera svuntur. Bláu gúmmíhandskarnir voru heldur ekki langt undan enda berast síklar bæði af höndum og fótum þeirra sem ekki nota vínil vanalega. Þetta er auðvitað allt gert til að þóknast heilbrigðisfulltrúanum og það að þessar svuntur hafi orðið fyrir valinu var einskær tilviljun eins og gefur að skilja enda eiga þær ekkert erindi inn á kvennakvöld í Kjallaranum nema síður sé.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm