22.6.2009 | 10:26
Pétur og Einar
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.6.2009 | 01:55
Ferðasaga rituð í Röðli
Rjómalogn er í Röðli þegar þessi orð eru rituð og Brúaráin bylgjast blíðlega í dalbotni suðurlands. Vertinn er nú stödd í sumarparadís í Spóastaðarlandinu þar sem Gísli frændi og Sigga hafa byggt upp unaðsreit inn í skógarlundi þar sem ávextir vaxa í gríð og erg í gróðurhúsinu og potturinn er hæfilega heitur fyrir ferðalanga vestan af fjörðum. Lognið fær trén varla til að bærast í kvöldinu og kvöldroðinn lýsir upp himininn og kyrrðin er einstök.
Téður Vert hefur sótt heim bæði Hóla og Skálholtsstifti í þessu ferðalagi sínu og gegnið til altaris í hvorri kirkjunni fyrir sig eða fast að því. Bænastund í Hólakirkju róaði hugann og tilvalið þótti að stíga upp í prédikunarstól Skálholtskirkju og blessa söfnuðinn í eitt skipti fyrir öll. Ekki var frítt við það að allir fengu skírn í rabbat og blessun, auk þess sem fyrirgefning syndanna fylgdi í kjölfarið svo sunnlendingar eru seif í einhvern tíma fyrir utanaðkomandi óvættum.
Safn er í kjallara Skálholtskirkju þar sem má sjá líkkistur fornra biskupa og grafskriftir hinna og þessa. Nokkuð ljóst má telja að það hefur ekki verið auðvelt starf að vera kistusmiður í denn og því síður kistuberi því ein kistan sem er til sýnis á safninu hefur að geyma bein biskups til forna og er kistan höggvin út úr móbergsklöpp og níðþung í kaupbæti svo ætla má að það hafi tekið í að bera hana síðasta spölinn.
Bloggið hans Jóns Wídalíns er á aldagömlum tréhlera sem haganlega er fyrirkomið á safninu í kjallara kirkjunnar. Þar má sjá ævagamla grafskrift sem hefur að geyma lofsorð um látinn mann. Ekki mátti þó miklu muna að sérlega óheppilegur klaufaskapur títtnefndrar yrði þess valdandi að þessa merka grafskrift dytti af veggnum þegar Vertinn missti fæturna og " datt" utan í myndina af einhverjum óskiljanlegum orsökum svo minnstu munaði að illa færi. Skjálfti fór um Suðurlandið í kjölfarið en ró færðist yfir á ný er það þótti sýnt að myndin myndi hanga á veggnum einhver árþúsund til viðbótar og bloggið varðveitast eitthvað lengur.
Gullfoss stóð sína plikt en glotti út í annað er títtnefnd gekk fram á ystu brún á háhæluðu skónum og fólk gerði hálfpartinn grín af fótabúnaðinum. Vertinn vissi þó betur því hællinn var einkar góður viðspyrnustoppari og gerði það að verkum að téður Vert varð stöðugri fyrir vikið og hélt góðu jafnvægi. Geysir stóð vaktina og gaus svona rétt til að sýnast og þóknast ferðalöngum sem koma vítt og breytt úr veröldinni til að sjá þetta undur og hjarta landsins sló taktfast.
Rabbarabóndinn á Löngumýri var sóttur heim og rabbabarakarmellan Rabarbía keypt í þónokkru mæli og gert er ráð fyrir að hægt verði að kaupa hana í húsi sorgar og gleði þegar heim verður komið þ.e.a.s ef Vertinn verður ekki búin að eta hana sjálf.
Sérleg heppni þótti það að fá soninn og tengdadótturina í heimsókn í Röðul yfir nóttina. Heitt sunnlenskt auðlindarvatn var látið renna viðstöðulaust í pottinn og ekki var frítt við það að Suðurlandið væri öfundað af jarðhitanum. Heppilegra hefði verið ef slíkum munaði hefði verið dreift vítt og breytt um landið í jöfnum skömmtum til landsmanna en taka verður því eins og hverju öðru hundsbiti í hæl. Tíminn í pottinum var því nýttur til hins ýtrasta í bústaðaferðinni og bleytt var vel í mannskapnum til að njóta herlegheitanna í botn.
Vínviðurinn í gróðurhúsinu í Röðli samanstóð að kirsuberjatrjám, eplatrjám og perutrjám auk þess átti bláberjatré og kryddjurtir af öllu tagi heimkynni þar inni. Það var einkar gott að fara rétt út í gróðurhúsið og þar var kryddið á kjötið og salatið allt á einum og sama staðnum. Útigrillið var brúkað eins oft og þurfa þótti og lostæti framreitt af fingrum fram og ekkert var til sparað í mat og drykk. Vertinn drakk auðvitað einungis lindavatn og ekkert sterkara en það og enda er títtnefnd með ofnæmi fyrir sterkum drykkjum. Það var vissulega til baga að geta ekki bragðað á bjórnum sem bruggaður er í Ölvisholti en mjög fróðlegt að fá að sjá brugghús Sunnlendinga og fá að fylgjast með hvernig framleiðslan fer fram. Ekki hefði þó veitt af smá hjartastyrkingu er draugar og mórar voru sóttir heim á Stokkseyri en segjast verður alveg eins og er að það var bara nokkuð skemmtilegt að heyra sögur af draugum og þeirra háttarlagi til forna í Draugasafninu. Það vildi til að Garún..Garún hringdi kirkjuklukkunum svo allir voru óhultir á þessu ferðalagi meðal hrekkjóttra afturganga.
Einarshúsið kallar nú háum rómi því vinnuhjú er að fara í frí og stórveisla á mánudaginn þar sem hópur fyllir báðar hæðir svo ekki þýðir að vera að leika sér lengur í bili og heimferð er fyrirhuguð í fyrramálið. Þingeyri hefur svo boðið téðum Vert að dæma söngvakeppni á 17. júní svo heimahagarnir kalla hástöfum.
Vertinn kveður því Suðurlandið þetta sinnið og segir bless, ekkert stress og verið hress líkt og Hemmi Gunn hefði sagt við svipaðar aðstæður. Vel á minnst þá fór fyrrnefndur Hermann Gunnarsson á mis við margnefnda í Bylgjulestinni um helgina er þeir voru fyrir vestan á ferðalagi en kappinn hringi og tók þeim tíðindum að títtnefnd væri utan þjónustusvæðis með grátstaf í kverkum. Ef marka má hversu oft hann kallaði Vertinn i Víkinni "Ástina sína" má ætla að tekið verði spjall við tækifæri.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2009 | 22:34
Heim að Hólum
Guðmundur Arason biskup hinn góði draup höfði er Vertinn renndi í hlaðið á Hólum í Hjaltadal um hádegisbilið og vottaði títtnefndri þar með lotningu sína. Guðbrandur Þorláksson lét upp úr biblíunni rétt á meðan og fagnaði ákaft hinum til samlætis og kirkjuklukkunum var hringt í ákafa. Hér að Hólum áir téður vert á námskeiði í Krásum sem er hluti af verkefni sem ma. styður við frekari þróun matseðils í Einarshúsi og drekkur í sig visku og vísdóm því tengdu. Hér eru ferðaþjónustuaðilar vítt og breytt af landinu auk þeirra sem eru í matvælaframleiðslu af ýmsu tagi og sjúga að sér fróðleik af ýmsu tagi. Hólableikjan var á matseðlinum í kvöld sem bragðaðist guðdómlega en sökum ofnæmis fyrir áfengi situr Vertinn ekki að sumbli með hinum sem nú gæða sér á hvítvíni og öðrum eðaldrykkjum og eru nú orðnir málglaðir í meira lagi því títtnefnd komin í koju og ætlar bara rétt að blogga fyrir svefninn.
Helgin var brjálæðislega viðburðarík enda margir í bænum og gaman að vera til. Kjallarakeppnin var á sínum stað á föstudagskvöld að vanda og spyrill var Bjarki Friðbergsson sjómaður með meiru. Jóhanna Bjarnþórs bar sigur úr bítum ásamt liði sínu og fékk því kassann að launum. Rétt er þó að árétta að einungis tveir og tveir eru saman í liði í Kjallarakeppni sem svara skulu þessum 30 spurningum skriflega þó sú undantekning sé gerð að maður geti verið einn í liði með sjálfum sér og engum öðrum telji hann sig sérlega gáfaðan.
Guðrún Snæbjörg kom sá og sigraði á stóra sviðinu eftir Kjallarakeppnina en þetta var í fyrsta sinn sem konan sú tekur að sér að leika opinberlega og má hún vera stolt af því hvernig til tókst. Vertinn var nokkuð montin er hún tók danska lagið sem títtnefnd textaði en textinn var birtur á blogginu ekki alls fyrir löngu. Var Guðrún búin að láta skella inn gítargripum og stelpan fór létt með að syngja það og spila og það kom nokkuð flott út. Alveg er það merkilegt hvað stóra sviðið í Kjallaranum rúmar alla jafnt, bæði krakka með hár og kalla með skalla því kvöldið eftir steig hljómsveitin Hermann og hásetarnir á stokk og stóð fyrir trylltu stuði fram á morgun. Vertinn var búin á því og hafði ekki tök á að fylgjast með þessum köppum spila en hefur heyrt því fleygt að laugardagskvöldið hafi verið frábært. Á markaðshelgi spilar hljómsveitin "Baldur og Bolvíkingarnir" sem samanstendur af sömu gæjunum að mestu en húsbóndinn mun þó leika á trommurnar af hjartans list.
Raggi var stórgóður kokkur og stóð "bak við eldavélina" allan liðlangan daginn. Samvinnan gekk snurðulaust og einstaklega gaman að vinna með svo samhentu liði sem vann í Einarshúsinu. Gestakokkur á markaðshelgi verður Laddawan Dagbjartsson og ætlar hún að töfra fram hlaðborð guðdómlegra rétta fyrir gesti.
Toppurinn var svo auðvitað Mugison sem mætti óvænt. Hann söng með sínum einstaka stíl og sló á gítarinn og stappaði niður fótunum til að undirstrika rithman í sínum frábæru lögum. Það má eiginlega segja að heimsviðburður hafi átt sér stað í húsi sorgar og gleði sem geymir nú sögu Mugisons ásamt sögum allra hinna. Einarshúsið réð sér ekki fyrir kæti þessa helgi og bíður spennt þeirrar næstu
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2009 | 11:14
Sjóaramálsverður með Ragnari Edvards
Vertinn telur tilhlýðilegt að minna með afgerandi hætti á Sjóaramálsverðinn sem í boði verður á laugardagskvöldið fyrir sjómannadaginn í Einarshúsi, þeim annálaða veitingastað í Bolungarvík. Þar mun enginn annar en Ragnar Edvardsson sem stundum gengur undir nafninu "Raggi bróðir" enda er hann bróðir Önnu Edvarsd sem verið hefur systir hans til margra áratuga. Raggi er matreiðslumeistari auk þess að vera fornleifafræðingur en þó mun hann notast við glænýtt hráefni í matseðilinn og láta allar fornleifar lönd og leið þetta kvöldið. Allir eru hjartanlega velkomnir á hvaða aldri sem er enda ætlar Ragnar ekki að aldursgreina mannskapinn að neinu skapi enda upptekinn yfir pottunum.
Hljómsveitin Hermann og hásetarnir munu svo leika fyrir dansi eftir kvöldverðinn og það mun verða rokna stuð fram eftir nóttu.
Verð er 5000,- fyrir trakteringarnar og ennþá eru nokkur sæti laus
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2009 | 10:30
Heilsufarið
Heilsufarið er ekki gott á téðum Vert um þessar mundir. Útafliggjandi með óstöðvandi hósta og aðra vanlíðan þar sem svitastrókarnir spretta út á ólíklegustu stöðum verða þess valdandi að taugar títtnefndrar eru þandar til hins ýtrasta. Ástand sem þetta fer í þær fínustu enda ekki til eftirbreytni né til þess fallið að auka jafnaðargeð þeirrar sem þetta ritar því næg bíða verkefnin. Til öryggis er náttkjóllinn hvítur og minnir um margt á líkklæði svo það ætti því að vera hægur heimagangur að leggja margnefnda til í kassann ef um ótímabært andlát verður að ræða og spara þannig tíma og fyrirhöfn. Vonir standa þó til að þetta ástand vari ekki um aldur og æfi heldur taki sig upp og hverfi innan tíðar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.5.2009 | 16:35
Flensan
Leið gærkvöldsins lá til kvöldverðar handan fjallsins. Stundin leið með eldingarhraða enda flýgur tíminn hratt í góðra vina hópi. Sveitarstjórinn í Súðavík sem jafnframt er stórfrændi títtnefndrar og hárgreiðslumeistarinn sem hann er kvæntur, sem jafnframt er stórvinkona Vertsins, eru einkar skemmtilegt fólk sem getur spjallað um allt og ekkert út í gegn. Vertinn og vinkonan eiga það sameiginlegt að vera stakar reglumanneskjur á áfengi og tóbak og lifa því sérlega heilsusamlegu líferni í hvívetna eða svona fast að því . Það eitt og sér kom þó ekki komið í veg fyrir það að margnefnd var hóstandi og hnerrandi gærkvöldið út í gegn og lagðist sárlasin í rúmið strax við heimkomuna og liggur þar enn.
Milli hóstakasta var þó kíkt inn á öldurhús Ísafjarðarbæjar rétt sem snöggvast í gærkvöldi. Einhver megn fnykur barst þangað inn eitt augnablik sem vakti einhver ónot en sem betur fer hvarf óþefurinn jafn fljótt og hann lagðist yfir. Þessi ólykt hreinsaði þó ekki nasaholur títtnefndrar sem hefði verið betra og best hefði verið að flensubakterían hefði drepist í eitt skiptið fyrir öll en það væri trúlega glapræði að ætlast til þess. Flensan mun trúlega lifa álíka lengi og langrækni margnefndrar sem er þó ekki langrækin að jafnaði nema í algjörum undantekningartilfellum. Títtnefnd tekur flensuna afar sjaldan en sýkillinn lifir víst um aldur og ár þó hann liggi niðri endrum og eins.
Það fór því lítið fyrir því að Vertinn sem jafnframt er fréttaritari og bæjarfulltrúi færi að hreinsa rusl í bæjarlandinu um hádegisbilið eins og til stóð, enda hlýtur heilsan að vera í fyrirrúmi hjá hverjum og einum. Nýja vinnukona Einarshúss tekur því við vaktinni seinnipartinn og heldur merki staðarins uppi með Guðlaugu yfirmatráði og vinnuhjúi Vertsins í Víkinni og hver veit nema unglingurinn og dóttirin hefji sína fyrstu vakt þeim til aðstoðar en hún kemur til með að hafa atvinnu í Einarshúsið í sumar. Margir hafa boðað komu sína í mat í kvöld og því verður að tjalda öllu því sem til er.
Allt kapp skal þó lagt á að fara í Holt í fermingarsamsæti síðar í dag hjá dóttur fjármálastjóra kaupstaðarins og vinkonu Vertsins til marga áratuga. Bara rétt að kíkja og segja hæ og bæ og sjá yngsta barnið hennar feta sig áfram í fullorðinna manna tölu. Ein eða tvær hitalækkandi, bólgueyðandi og dáleiðisdrullulosandi til að róa hóstann og innvortis óþægindi, best er svo að bera smá kinnalit og meik í andlitið, klæðast hvítum kjóll og gallajakka til að hylja kroppinn og brosa eins og ætíð og láta sem ekkert sé.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2009 | 00:33
Dagskrá sjómannadagshelgar í Einarshúsi
Föstudagur 5. júni kl. 22:30 - Kjallarakeppnin og trúbador á stóra sviðinu
Bjarki Friðbergsson sjómaður spyr í Kjallarakeppni spurninga sem tengjast sjómennsku. Sjómenn eru því sérstaklega hvattir til að mæta og vera með. Guðrún Snæbjörg Sigþórsdóttir mætir frá Þingeyri með gítarinn og spilar og syngur sjóaravalsa í bland við lög sem hljóma vel í eyrum landkrabba.
Laugardagur 6. júní kl. 20:00 - Sjóarakvöldverður með Hermanni og hásetunum
Forréttur: Rækjur í feta með grískri tómatsósu
Aðalréttur: Lambalund í sveppasósu m/ gratineruðum kartöflum og salati
Eftirréttur: Skyrterta með ananas og sítrónu
Matreiðslumeistari kvöldsins er Ragnar Edvardsson fornleifafræðingur
Borðapantanir í síma 456 7901 og 864 7901
Verð. 5000,- per mann.
Panta þarf borði í sl. lagi 2. júní
Hljómsveitin Hermann og hásetarnir leika í Kjallaranum að loknu borðhaldi. Hermann Ási Falsson fer þar fremstur í flokki ásamt Baldri Hannesar og Benna Sig. Hver veit nema fleiri komi til með að leika með þeim félögum um kvöldið
Brýnt þykir að geta þess að þeir fermingarárgangar sem áður höfðu boðað komu sína í mat þetta kvöld staðfesti þátttöku sína
Dægurmál | Breytt 1.6.2009 kl. 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2009 | 02:01
Ríkidæmi
Það verður að segjast alveg eins og er að helgin sem nú hefur runnið sitt skeið á enda var stórkostleg. Unga konan útskrifaðist með pompi og prakt frá MÍ og gestir komu langt að til að fagna með stúdínunni. Þó má það undrun sæta hve Vertinn á orðið fullorðin börn ef miðað er við aldur og fyrri störf og ætíð er það jafn merkilegt þegar þau ná hverjum áfanganum á fætur öðrum. Títtnefnd á erfitt með að skilja hvernig getur staðið á því að þetta skuli getað gerst á sama tíma og aldur þeirrar sem þetta ritar stendur algjörlega í stað þrátt fyrir að árin líði miskunnarlaust hjá án þess að nokkur fái rönd við reist. Einhver hugsar eflaust að þetta sé gangur lífsins og væntanlega megi búast við því að Vertinn verði komin undir græna torfu áður en yfir líkur en það gerist nú varla einn tveir og þrír.
Sonurinn bar sína stúdentahúfu frá árinu í fyrra og tilvonandi tengdasonurinn bar sína útskriftarhúfu en unglingurinn var húfulaus enda er hún ekki búin að útskrifast úr grunnskólanum ennþá. Hún lét rauða makkann bylgjast niður á herðarnar og þóttist einnig full af visku er hún naut sín milli myndarsveinanna sem sátu beggja vegna við hana í kirkjunni og veittu henni styrk og aðhald. Að útskrift lokinni var stórveisla haldin á heimili margnefndrar og nánustu fjölskyldu boðið til teitis og samfagnaðar vegna tímamótanna og dagurinn var stór.
Grillið var tekið fram og dýrindis réttir framreiddir af húsbóndanum sem stóð hnarrreistur við matseldina og töfraði fram gómsæta munnbita sem bráðnuðu í munni sérhvers manns. Reyndar varð hann að töfra fram hljómfagra tóna úr trommunum síðar um kvöldið á Patreksfirði en hljómsveit allra hljómsveita var það að spila á stórdansleik svo hann fór snemma úr veislunni. Hvorutveggja tókst afar vel og Haltur leiðir blindan lék blindandi af fingrum fram fram á rauða nóttina fyrir íbúa svæðisins og þrátt fyrir einhver slagsmál sem ollu glóðaraugum kom það ekki að sök við undirspilið.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 635843
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm