Pétur og Einar á miðvikudagskvöld

Elfar með þvottabalannEinleikurinn um þá Pétur og Einar verður haldinn á miðvikudagskvöldið 15 júlí kl. 20:00. Þeir sem hafa ekki fengið að njóta sögu mestu frumkvöðla í Bolungarvík eru hvattir til að mæta og upplifa sögu sorgar og gleði. Í sýningunni fer kómedíuleikarinn á kostum í hlutverkum fyrrum íbúa hússins og er sýningin einstök í sinni röð. Aðgangseyrir er 1500 krónur


Sagan í máli og myndum

Einhverjar athugasemdir hafa borist þess efnis hve fáum myndum er varpað á bloggið af þeirri uppbyggingu sem á sér stað í Einarshúsi um þessar mundir. Því telst tilvalið að leiða lesendur áfram að húsi sorgar og gleði með smá myndaseríu.

Skiltin

Skiltin vísa vegfarendum á þrjá af merkari stöðum í Víkinni. Glöggir geta séð að gisting verður í boði í húsinu í fyllingu tímans auk þess er hægt að fá prýðisveitingar en heitur reitur er einnig í boði.

Einarshúsið með bíókassann og flaggstöngina

Þarna neðst í vinstra horni norðurgafls er bíókassinn kominn þar sem geymdar eru auglýsingar um hina og þessa viðburði sem í húsinu eru auk þess sem matseðill hússins fyrir allra augum.

Einarshúið norðurgafl

Flaggstöngin er komin upp og búið að klæða glugga á norðurgafli og komin brunastigi.

Einarshúsið svalir á byrjunarstigi

Þarna sést móta fyrir svölunum og byrjað var að slá þeim upp í dag. Búið er að klæða meðfram þrem gluggum á efri hæðinni og slétta úr í garðinum en þar á að helluleggja og girða eins og fyrr segir og loka garðinn af.


Hábjargræðistíminn

Það væri til þess eins að æra óstöðugan að ætla að nefna allt það sem drifið hefur á daga títtnefndrar undanfarna daga svo hér skal einungis stiklað á stóru í æsilegri frásögn af uppákomum. Markaðsdagar skóku Bolungarvík um helgina auk ættarmóta, fermingarafmæla, brúðkaupa og afmæla sem öll báru upp á þessa sömu helgi. Bærinn var því fullur af fólki og sungið var og dansað í hverju skúmaskoti og lífið var gott. Iðandi fjörið bjó um sig í Einarshúsi alla dagana og það var brjálað að gera svo ekki sé meira sagt. Baldur og Bolvíkingarnir komust allir fyrir á stóra sviðinu eða því sem næst og Kjallarinn var kjaftfullur á föstudagskvöldið og andartakið fullt af ævintýrum hvar sem litið var. Hinir og þessir pöruðu sig saman og svo sundur eftir því sem við átti og allt var eins og blómstrið eina en flestir héldu sig þó á mottunni eins og gengur og allt var undir kontról undir trommuslætti húsbóndans sem jafnframt er smiður hússins og nýverið settur í embætti kokks þegar nauðsyn ber til. Hermann Ási, Benni Sig og Baldur léku einnig af fingrum fram og hvergi var slegið af.

Eyþór og Andri

Það verður þó að segjast alveg eins og er að öllum öðrum ólöstuðum að Eyþór Ingi og Andri Ívars voru framúrskarandi góðir um helgina og heilluðu margnefnda algjörlega upp úr skónum. Eyþór hefur röddina í lagi og ber aldrei feilnótu á borð fyrir hlustendur hvar svo sem í tónstiganum hann tiplar og er í þokkabót einkar góður performans, eins og sagt er á bjagaðri engilsaxnesku. Andri kunni heldur betur á gítarinn og þekkti gítargripin betur en nokkuð annað. Þeir voru algjörlega meiriháttar og á Vertinn án efa eftir að leggja sig fram um að fá þá aftur við gott tækifæri. Til allrar hamingju þótti þeim einnig mikið til Kjallarans koma og vilja ólmir koma aftur við fyrsta hentugleika og vonandi á sá tími eftir að koma hið fyrsta.

Það skildi þó ekki vera að þeir yrðu í hópi þeirra sem boðið verður að víga Garðinn við Einarshúsið en nú er unnið hörðum höndum að því að klára Einarshúsið og vonir standa til að bakgarðurinn verði tilbúinn fyrir haustið. Helluleggja á allt svæðið bakatil og há girðing mun stúka Garðinn frá öðrum görðum í bæjarfélaginu til að aðgreina svæðið frá öðrum svæðum í bænum. Nokkrum stórsveitum hefur verið boðið að leika á pallinum við húsið til að fagna þeim tímamótum og hugmynd af lítilli tónlistarhátíð er að myndast í kolli títtnefndir og auðvelt er að fá tónelska til að hrífast af hugmyndinni. Það er þó eitt að fá hugmynd og annað að framkvæma hana af einhverju viti og téðum Vert er það fullljóst að betra er að ætla sér minna og standa við það en að færast of mikið í fang og geta svo ekki staði neitt við neitt. Því mjatlast þetta í hugarfylgsninu enn um sinn.

Reyndar verður það þó að segjast alveg eins og er að nú þegar er allt of mikið að gera hjá marnefndri enda stendur vertíðin sem hæst og heimsóknir í Einarshús hafa margfaldast milli ára. Vertinn hefur færra starfsfólki á að skipa nú í sumar en í fyrra og stendur því alla daga á haus, venjulega frá morgni til kvölds og jafnvel langt fram á nóttina. Það verður svo að vera meðan endapunkturinn á uppgerð hússins er sleginn en þegar húsið hefur fengið uppreisn æru á ný, standa vonir til að hægt verði að ráða fleiri til fastra starfa og títtnefnd fái frið til að sinna því sem áhuginn leitar. Oft á tíðum vildi títtnefnd fá frí til að geta verið eins og annað fólk en frí er ekki til í orðabók Vertsins í Víkinni um hábjargræðistímann. Af þeim sökum er ekki bloggað eins oft og vonir hefðu staðið til að gera í eðlilegu árferði og ritræpunni því haldið niðri rétt á meðan.

 

 


Blessuð börnin

Blessuð börnin eru út og suður þegar þessi orð eru rituð. Elsa nýtur sín á Írlandi með Einari Jóni sínum og er að taka út útskriftargjöfina sem hann gaukaði að henni í tilefni af útskriftinni. Lilja er við þröskuldinn á draumaheimum enda starfar hún sem stendur sem vinnukona í Einarshúsi og þarf að mæta til vinnu á morgun og hún er einnig tekin við starfi þáttastjórnanda á ruv og á að sjá um útvarpsþætti í vetur sem fjalla eiga um barnasáttmála sameinuðu þjóðanna en í því starfi er hún á réttri hillu. Andri flaug hringinn í kringum landið í dag með vini sínum en lenti í því að flugvélin bilaði á flugi en til allrar lukku í grennd við flugvöllinn á Akureyri. Þar áir hann til morguns og sefur í íbúð í flugskýli og borðar Dominos pizzu til að koma ró á garnagaulið. Á meðan reynir Þórunn hans að sofna hálf vængbrotin yfir flugbrölti kærastans. Sem sagt...allt í orden hjá börnunum eins og glöggt má sjá.

Vertinn er á hvolfi alla daga frá morgni til kvölds og getur hreint ekkert einbeitt sér að neinu öðru. Vinna í Einarshúsi tekur allan kraft enda er bókstaflega brjálað að gera og allir hafa fangið fullt af verkefnum. Hátt í 250 manns komu í hús sorgar og gleði um helgina og margfalt fleiri hafa boðað komu sína næstu daga svo það er ekkert lát á heimsóknum í þetta merka hús.Steinbíturinn og sjávarréttasúpan er að slá í gegn svo ekki sé meira sagt og heilu þjóðflokkar útlendinga af erlendu bergi brotnir koma æ ofan í æ til að geta fengið að bragða á þeim trakteringum sem í boði eru. Vertinn er þess fullviss að bæjarbúar verða hálffeimnir er þeir sjá hverja rútuna á fætur annarri stoppa við húsið og glaðbeitta ferðamenn fara inn í húsið og trúlega upplifa íbúar bæjarins stemninguna sem ævintýri, sem það vissulega er.

Flaggað var í heila stöng á Einarshúsi í dag í fyrsta skipti í áratugi. Húsbóndinn sem jafnframt er smiðurinn að húsinu reisti stöngina og dró fánann að húni og lét hann blakta við hún. Það var stórkostleg sjón og téður Vert fylltist lotningu er íslenski fáninn bylgjaðist á þessu merka húsi á ný. Pétur og Einar stóðu við hlið títtnefndrar og brostu í kampinn og gleðjast þeir án efa yfir endurbyggingunni enda má ætla að þeir hafi komið að því að leiða verkið áfram. Oftar en ekki læðist sá grunur að húsráðendum í Einarshúsi að allt það verk sem þar hefur verið unnið hafi verið fyrirfram ákveðið því það er ekki einleikið hve vel uppbyggingin hefur gengið og sú hugmynd að reka bar og veitingastað í húsinu einstaklega vel heppnuð. Frumkvöðlarnir Pétur og Einar hafa örugglega haft mikið um það að segja hvernig til hefur tekist og því var flaggað fyrir þeim í dag og svo auðvitað Vertinum í Víkinni, húsbónda hennar og vinnuhjúum og svo náttla blessuðum börnunum sem eru tvist og bast, um víðan völl en heil á húfi.

 


Kveðjustund

Það var komið að kveðjustund og norski skiptineminn yfirgaf bæinn sem hefði fóstrað hana undanfarna tíu mánuði. Ida var valin mesti Íslendingurinn af öllum þeim skiptinemum sem verið hafa hér á landi undanfarið enda þótti hún hafa samlagast vel af mati AFS samtakanna hér á landi svo hún er orðin með sanni norskur Bolvíkingur.  Hún aðlagaðist fjölskyldunni sinni fullkomlega og var orðin ein af oss og því var hún kvödd með eftirsjá. Hún talaði málið nær fullkomlega og var orðin afar íslensk í hugsun og háttum. Svaf stundum fram á hádegi og allt hvað eina en það var eitt af því sem hún undraðist hvað mest þegar hún kom hve heimilismenn gátu sofið lengi frameftir. Nú er herbergið autt og engin Ida.

DON'T MESS WITH THE VERT!

Aðrir sem heimsóttu Einarshús um helgina kvöddu ekki með kurt og pí líkt og skiptineminn heldur létu greipar sópa um muni hússins og skemmdu og eyðilögðu í ölæði. Vertinn varð því að leggjast í rannsóknir og segja má með sanni að hvorki Herkjúl Peró né Sjerlokk Hólms komust hvorugir með hælana þar sem títtnefnd hafði tærnar þegar kom að því að leysa þetta einstaka glæpamál. Hringurinn þrengdist æ meira um tiltekna aðila og loks var látið til skarar skríða og meintir teknir tali af téðum Vert. Svona til glöggvunar fyrir lesendur þá skal það tekið fram að heimsóknin til þeirra sem lágu undir grun var engin sérstök kurteisisheimsókn enda gaf hún ekki tilefni til slíks. Heimsóknin skilaði þó tilætluðum árangri og þýfinu var skilað er dagur var allur og glögglega sást glitta á tár er beðist var afsökunar á tiltækinu og iðrunin virtist augljós.  Það ætti því að vera hverjum manni ljóst sem les þessa frásögn af þessu einsæða sakamáli að betra er að haga sér vel og lifa eftir þeirri grundvallarreglu að ganga vel um hús sorgar og gleði og bera virðingu fyrir þeirri uppbyggingu sem þar á sér stað.

 

 

 


Þetta er vegur

Vertinn rakst á ljóð Magnúsar Gíslasonar sem birtist í ljóðabók hans sem ber heitið Rúnir sem gefin var út fyrir mörgum áratugum. Hefði mátt halda að hann hefði ort kvæðið á dögunum og gefið bókina út í gær. Ljóðið kallast "Þetta er vegur"

Steldu, svíktu, rægðu, rændu

reyndu að þræða frægðar stig.

Grimma að þér hunda hændu

heimska láttu verja þig.

Sníktu fæði, húsrúm, hita

hremmdu bjargir snauðum frá.

Síðan skaltu ræða og rita

réttlætisins stefnuskrá!

 


Af gefnu tilefni...

...vill Vertinn í Víkinni geta þess að Einarshús er veitingastaður sem bíður upp á heimabakað bakkelsi í stórum stíl sem bakað er að einni bestu húsfreyju staðarins sem jafnframt er vinnukona í Einarshúsi og ættuð úr Þjóðólfstungu. Einnig eru í boði dýrindisréttir á matseðli sem unnir eru að miklu leiti úr hráefni sem verkað er í heimabyggð og bragðast guðdómlega. Allskyns kaffi og súkkulaði býðst á kostakjörum og hægt er að bragða á heimabökuðu konfekti með. Staðurinn er afar kósý og aðlaðandi og tilvalin stoppustaður fyrir gesti og gangandi og upplagt að koma einn og sér og í hópum til að njóta.

Vertinn nefnir þetta í forundran vegna þess að einhverjir bæjarbúar virðast ekki vita hvorki upp né niður af þessu og líta hugsandi til hafs ef ferðamenn spyrja hvar sé hægt að kaupa mat og drykk í byggðarlaginu og beina jafnvel fólki til nærliggjandi byggðarlaga. Kannski ættu Bolvíkingar af fara að kíkja við og sjá hvað er í boði til að geta dreift fagnaðarerindinu sem víðast.


Tónleikar til styrktar Raggagarði

Eggert og frúin hansLaugardaginn 27.júní, kl. 21:00 munu hjónin Eggert og Michelle Nielson frá Bandaríkjunum halda styrktartónleika í Einarshúsinu  í Bolungarvík. Eggert og Michelle leika og syngja cantry-söngva og einnig blandaða tónlist af ýmsum toga. Þau hafa gefið út geisladisk með tónlist sinni í Bandaríkjunum og eru Súðvíkingum að góðu kunn þar sem þau eru orðin hluti af sumarbúum Súðavíkur.  Allur ágóði tónleikanna rennur óskipt til Raggagarðs, Fjölskyldugarðs Vestfjarða í Súðavík. Verð: Kr. 1000.- fyrir 12 ára og Kr. 500.- fyrir 5 til 11 ára

Hægt er að sjá heimasíðu Raggagarðs hér á bloggsíðu Vertsins í Víkinni en í Súðavík er verið að byggja upp fjölskyldugarð Vestfjarða með miklum sóma. Garðurinn ber heiti Ragnars Freys Gunnarssonar sem bar nafn ömmu sinnar, Rögnu á Laugarbóli, sem skírð var eftir Ragnari Jóhannssyni sem jafnframt var afi títtnefndrar sem einnig ber nafnið hans með stolti.


Bíókassinn kominn upp

Bíókassinn sem var og hét og stóð lengi vel við Félagsheimilið og auglýsti nýjustu bíómyndirnar er nú kominn á sinn stað á norðurgafl Einarshúss þar sem hann stóð áður fyrr og gengdi hlutverki auglýsingakassa fyrir verslunina. Nú munu auglýsingar um viðburði sem verða í Einarshúsi birtast í bíókassanum jafnóðum svo brýnt er að fylgjast vel með því sem þar er auglýst. Einnig gefur að líta matseðilinn og fleira fróðlegt svo bæjarbúar eru beðnir að hafa vakandi auga með kassanum ef þeir hafa áhuga á að vita hvað gerist í húsi sorgar og gleði 

 


Hlaðborð með Laddawan

Vertinum þykir fram úr hófi eðlilegt að geta þess í tíma að Laddawan Dagbjartsson verður gestakokkur í Einarshúsi á Markaðshelgi eða á laugardaginn 4. júlí. Hlaðborð dýrindis tælenskra rétta mun verða á boðstólnum sem munu bragðast guðdómlega því Laddawan er snilldarkokkur og enginn verður svikinn af matseldinni hennar. Gaman er þó að geta þess að það er nánast að verða fullbókað á hlaðborðið enda eru fermingarmót í massavís hér vestra og árgangar hittast hver um annan þverann. Fjölmargir leggja leið sína til Bolungarvíkur þess Markaðshelgi og það mun verða mikið líf og fjör í bænum og gaman að vera til.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 635843

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband