17.8.2009 | 15:01
Fleygustu orð sumarsins
komu frá einum þeim þúsunda ferðamanna sem sóttu Einarshúsið heim í sumar og eru svohljóðandi:
" Þetta hús á ekki að standa í Bolungarvík, þetta hús á að vera í Reykjavík 101 og það á að vera fullt af fólki alla daga, allan ársins hring".
Vertinum þótti í þessum orðum hin mesta speki og vill nota tækifærið og óska Bolvíkingum og nærsveitugum til hamingju með að eiga þessa perlu hér vestra með óskum um að íbúar nýti sér húsið til hins ýtrasta á komandi vetri og út í nánustu framtíð
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.8.2009 | 21:21
Veraldarvinir vísitera
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.8.2009 | 12:31
Garðurinn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.7.2009 | 02:10
Upplyfting
Leiðin lá til höfuðborgarinnar rétt eitt augnablik til að lyfta sér upp. Heydalur þótti tilvalinn áfangastaður til snæðings þrátt fyrir að Mjóifjörðurinn væri eitt drullusvað og holurnar hæddust að téðum Vert á leiðinni. Mjóafjarðarbrúin beið við fjörðinn og þótti miður að geta ekki flutt títtnefnda yfir á örskotstundu og stytt vegalengdina um heilan helling en ferðalangar verða víst að hinkra eftir þeim munaði eitthvað lengur. Ekki er reiknað með öðru en að Vertinn í Víkinni fái það hlutskipti að klippa á borðann og opna þar með Mjóafjarðarhaftið í eitt skipi fyrir öll enda veit títtnefnd ekki um neinn annan sem væri betur til þess fallin. Ekki efast margnefnd um það eitt augnablik að flestir ef ekki allir sem yfir brúna fara eru á leiðinni í Einarshús með einum eða öðrum hætti þ.e. ef þeir eru á leiðinni að sönnan og vestur en ekki öfugt svo því þykir tilhlýðilegt að fá frúnna sem öllu ræður í húsi sorgar og gleði til að víga mannvirkið sem margir héldu að yrði aldrei tilbúið.
Brunað var í Reykjanesið þegar klukkan var komið kvöld eftir indælan málsverðinn í ævintýradalnum og herbergið beið mátulega heitt og notalegt. Sundferð beið morgundagsins því klukkan sló miðnættið áður en varði og orðið og seint að bleyta tánna. Tilefni ferðarinnar er að mestu að minnast þess að tuttugu ár eru liðin frá því að téður Vert gekk glaðbeitt upp að altarinu með húsbóndanum, en einnig skal haldið í smá bisnesstúr vegna Einarshússins, auk þess sem nauðsynlegt þótti að skipta um gír eitt augnablik.
Geitabóndinn í Borgarfirðinum var heimsótt en henni kynntist títtnefnd á námseiði í Hólum í Hjaltadal og efndi hún loforð sitt í sumar um að koma í heimsókn í Einarshús. Nú er Vertinn einnig búin að efna loforðið um að heimsækja hana til baka í sumar svo hægt er með réttu að segja að Vertinn og geitabóndinn séu kvitt í bili. Geiturnar eru einstaklega mannelskar og þessi litli kiðlingur gældi við títtnefnda og kúrði í hálsakotinu og lét fara vel um sig.
Skræpótti unglingurinn hún Lilja var kominn heim frá Noregi og bjó hjá Andra bróður sínum og Þórunni kærustu hans og var þar í afar góðu yfirlæti. Á meðan vann Elsa baki brotnu í Einarshúsi og tók á móti fjöldanum öllum af gestum og eldaði dýrindismat eins og ekkert væri.
Fyrst minnst er á dýrindismat þá snæddu hjónakornin á Argentínu í tilefni brúðkaupsafmælisins og hægt er að segja það með sanni að kvöldverðurinn var frábær og einstaklega góður endir á góðum degi.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 02:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.7.2009 | 18:29
Athugið!!!
Vertinum varð heldur betur á er send var út dagskrá versunarmannahelgar. Þar frestaði títtnefnd verslunarmannahelginni um heilan mánuð og bauð upp á Hjört Traustason seint og síðarmeir í ágúst. Hið rétta er að Hjörtur Traustason leikur og syngur í Kjallaranum föstudagskvölið 31. júlí árið 2009.Lesendur eru vinsamlega beðnir að láta fagnaðarerindið berast sem víðast.
Tónelsku systkinin frá Bolungarvík með Hjört Trausta í broddi fylkingar
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.7.2009 | 02:07
Hjörtur Trausta í Kjallaranum
Það er enginn annar en Hjörtur Traustason sem treður upp í Kjallaranum á föstudagskvöldið. Hann hefur svosem áður mátað sig við stóra sviðið og passaði svona líka akkúrat. Reyndar komust öll tónelsku systkini hans fyrir á sviðinu með honum og í sameiningu héldu þau uppi þvílíku stuði að það hálfa væri heill hellingur. Það er sérstakt tilhlökkunarefni að fá að hlusta á þennan eðaldreng taka lagið en það er reyndar ætíð sérstak gleðiefni að geta boðið tónlistarfólk velkomið í þetta hús sorgar og gleði í Bolungarvík alltaf jafn gaman og spennandi og ræður Vertinn sér varla fyrir kæti.
Síðasta sýning um sögu frumkvöðla í Bolungarvík verður flutt á fimmtudagskvöldið að vanda og væntanlega má ætla að þeir sem ekki hafa barið hana augum nýti tækifærið og fari í leikhús. Upplagt er að mæta snemma og fá sér dásamlega sjávarréttasúpu eða kaupa sér kaffi og eina þá bestu gulrótarköku sem fyrirfinnst á landi hér með kaffinu og njóta sýningarinnar í leiðinni.
Guðlaug vinnukona hefur varla haft undan við að baka þessa dásemdaruppskrift af gulrótarkökunni og þykir hún hið mesta afbragð. Rúgbrauðið er einnig feikivinsælt og ríkur út eins og heitar lummur þó það sé bakað í stærðar bökunarformi sérsmíðað af Finnboga í Tungu dugar það varla til að metta mannskapinn. Vinnukonunni hefur stundum verið skapi næst að hætta bara og fara því það sé ekki til neins að vera að baka öll þessi kynstur ef þau hverfa jafnóðum ofan í sársvanga ferðalanga.
Gaman er að geta þess að rabbbaraísinn sem er sérlagaður í Einarshúsi virðist einnig vekja stormandi lukku og koma heilu hóparnir sérstaklega til þess að bragða á ísnum. Vertinn er eilítið upp með sér þegar ókunnugt fólk kemur og spyr hvort þessi margfrægi ís sé framleiddur í Einarshúsi og virðist fólk gera sér sérstaka ferð langa leið til að smakka hann. Títtnefnd telur tilvalið að geta þess að húsið er opið alla daga ennþá og hægt að kaupa mat af matseðli en einnig er hægt að kaupa dýrindis kaffi og meðþví alla daga einnig. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur og eru bæjarbúar hvattir til að nýta sér það sem er í boði í húsinu svo hægt verði að hafa það opið eitthvað lengur fram á haustið.
Spegill hvarf á undursamlegan hátt í húsinu á sl. helgi sem merktur var bjórnum Stellu. Það eitt og sér er ekkert stórmál en vegna þess hve Vertinum í Víkinni er sérlega uppsigað við þjófa er málið litið alvarlegum augum. Það þarf auðvitað að koma þeim sem geta ekki látið eigur annarra í friði bak við lás og slá og fá þá til að skilja að slíkt þykir ekki til eftirbreytni að stela frá öðru fólki. Þykir títtnefndri það sérlega bagalegt að fá ekki að hafa hluti hússins í friði og hefur nú lagt höfuðið í bleyti til þess eins og finna út hæfilegar refsingar þrjótunum til handa. Í sumum löndum fá þjófar það óþvegið og hendin er jafnan höggvin af eftir slíkar yfirsjónir og hægt er þá að treysta því að þjófurinn steli ekki aftur eftir að hendin hefur verið höggvin. Ekki má þó vænta þess að Vertinn grípi til þess örþrifaráðs í bráð amk. Títtnefnd hefur þó spæjaranef og hefur vissa aðila grunaða og telur það er næga refsingu að liggja undir slíkum grun þeirrar sem þess ritar. Húsgítarnum góða hefur þó ekki enn verið skilað og guð hjálpi þeim þegar Vertinn birtist í gættinni eftir að sumarvertíðinni líkur og heimtar hann á ný. Þjófnaðir og skemmdarverk eru reyndar alveg nýtt fyrirbrigði í húsinu enda hefur ekki verið hróflað við einu né neinu stórvægilegu frá því að Kjallarinn opnaði fyrir fjórum árum og fram til dagsins um daginn þegar farið var yfir strikið. Fólk ber að jafnaði mikla virðingu fyrir uppbyggingunni og hefur gengið sérlega vel um húsið alla tíð og fara þar heimamenn fremstir í flokki enda heiðarlegir upp til hópa.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.7.2009 | 01:44
Satt best að segja
Helgin var einstök enda hélt stóra systir upp á afmælið sitt og mikið var um dýrðir. Líkja má afmælinu við ættarmót þeirrar ættar sem tilheyrir títtnefndri og því komu margir saman sem allir eða flestir voru af einni og sömu ættinni. Veðrið í Víkinni lék svo sannarlega við hvern sinn fingur og hitinn í hallargarðinum við Einarshúsi ætlaði hvern mann að drepa og lífið var ljúft. Hópurinn sem var samankominn að fagna með systurinni var nokkuð stór og rétt komst fyrir í tröppum hússins eins og sjá má á myndinni en auðvitað hefði verið pláss fyrir unglinginn sem spókar sig nú í Noregi og var því fjarri góðu gamni og gat því ekki verið með.
Það þurfti hvorki meira né minni en einkaflugvél undir soninn sem flaug vestur með kærustuna og tvo aðra farþega í farteskinu í brakandi sól og blíðu til að geta tekið þátt í afmælisfagnaðinum. Frændurnir voru báðir klipptir í hanakamb er þeir lentu á Ísafjarðarflugvelli síðla föstudags og glöggt mátti sjá stælinn á þessum nýju útrásarvíkingum norðursins enda var lífinu tekið létt.
Farþegarnir brostu einnig í kampinn og létu sér fátt um finnast þó smellt væri mynd af þessum stelpum sem komu á einkaflugvél þessa leið enda voru þær á leið í heljarinnar partý í Einarshúsi.
Auðvitað þurfti að nýta flugvélina og flugmanninn svo ekki sé talað um veðrið sem lék við hvern sinn fingur um helgina svo systurinni var boðið í flugtúr
Stóra systir Vertsins fékk svo útsýnisflug um Vestfirði í afmælisgjöf og naut sín í botn.
Viðskiptafræðineminn, atvinnuflugmannsneminn og verðandi næringarfræðineminn sátu í samlyndi í hallargarðinum. Grunnskólaneminn gekk Prekestólen í staðinn hjá frændum vorum í Norge og átti glaða daga eins og hinir.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2009 | 09:01
Fuglinn er floginn

Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2009 | 02:10
Lok, lok og læs
Einarshúsi verður lokað fyrir gestum og gangandi sem hyggjast sækja húsið heim beint af götunni á laugardaginn frá kl. 17:00 vegna einkasamkvæmis. Kjallarinn mun opna stundvíslega kl. 23:00 að íslenskum tíma að vanda enda mun Biggi Olgeirs halda upp fjöri er klukkan slær miðnætti og fram á nótt. Kolamolinn mun verða á kostakjörum á krepputíma og lag er að gera sig klára fyrir kvöldið.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2009 | 22:02
Pétur og Einar á miðvikudagskvöld
Einleikurinn um þá Pétur og Einar verður haldinn á miðvikudagskvöldið 15 júlí kl. 20:00. Þeir sem hafa ekki fengið að njóta sögu mestu frumkvöðla í Bolungarvík eru hvattir til að mæta og upplifa sögu sorgar og gleði. Í sýningunni fer kómedíuleikarinn á kostum í hlutverkum fyrrum íbúa hússins og er sýningin einstök í sinni röð. Aðgangseyrir er 1500 krónur
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm