1.9.2009 | 23:51
Rækta garðinn sinn
Sól skein í heiði í Súðavík í dag er Vertinn kom úr yfirhalningu í Dekurhúsinu þar sem makkinn fékk sérstaka meðhöndlun. Hið nýja yfirbragð lífgaði heldur betur upp á ásjónu títtnefndrar sem varð eins og ný eftir að hafa fengið lit í hárið og allskyns krem til að ferska upp á lokkana sem vaxið hafa í hálfgerðri órækt undanfarið. Án efa hefur sólin lagst svo lágt af því tilefni og skotið nokkrum geislum á títtnefnda og ákveðið að gera sér dagamun og láta Vestfirðina ögn sjá sig en hún hefur verið ótrúlega spör á sig í sumar enda virðist hún hafa átt fullt í fangi með að skína á suðurhornið.
Sólin skein þó varla nema rétt augnablik og engin sérstök birta var yfir þeim fréttum er bárust títtnefndri í dag þess efnis að harði diskurinn væri farinn í viðhaldinu og því væru öll gögn og allar þær þúsundir mynda sem teknar hafa verið á undanförnum tveim árum glataðar. Það mun taka langan tíma að koma sér upp því safni sem haganlega var fyrirkomið í tölvunni og eftirsjá í mörgu. Þó má ætla að einhverjir sérfræðingar komi til með að reyna til hins ýtrasta til að ná gersemunum úr þessu töfratæki sem fylgt hefur Vertinum í Víkinni til langs tíma og betra er því að spyrja að leikslokum og vona hið besta. Þetta ástand er afar bagalegt þegar rita þarf fréttir og þvíumlík á vefinn því heimilistölva tók upp á því upp á sitt eindæmi að bila hinni til samlætis og tölva ungu konunnar fékk fyrir hjartað og er því utan þjónustusvæðis í augnablikinu og því eru nánast allar tölvur heimilisins illa nothæfar. Halda mætti að svínflensan herjaði á heimilistækin og leggði þau að velli eitt af öðru.
Rólegri tími fer nú í hönd í Einarshúsi sem gerir það að verkum að spýta þarf í lófana sem aldrei fyrr og hafa uppákomur á uppákomur ofan til að hafa ofan af fyrir þeim sem koma ofan af holtum og neðan af mölum svo ekki sé talað um þá sem búa á grundunum og bökkunum. Sú óbilandi bjartsýni sem einkennir Vertana í Einarshúsi hefur gert það að verkum að húsið iðar af lífi allan ársins hring og ekkert er í spilunum annað en að halda á. Í vetur verða eintóm grönd og tromp á hendi sem spilast jöfnum höndum þegar þarf.
Garðurinn á bak við er nú tilbúinn að mestu en eftir er að smíða girðingu sem stúkar gesti Einarshúss og gerir þeim kleift að vera útaf fyrir sig þ.e ef hitastigið verður ekki við frostmark eða því sem næst. Kuldaboli verður ekki einn af fastagestum garðsins ef títtnefnd fær einhverju ráðið og hvetur hann til að láta sig hverfa áður en garðurinn verður endanlega vígður. Stefnt er að því að hafa útisalerni í garðinum bæði fyrir karla og konur auk þess sem rabbabari og aðrar matjurtir verða gróðursettar í þartilgerðum beðum. Gróðurhús er einnig ofarlega á óskalistanum og ef vel gengur mun allt grænmeti og krydd sem notað er í rekstrinum ræktað þar því Vertinn er komin með grænar fingur og þykir einkar gaman af því að rækta garðinn sinn.
Dægurmál | Breytt 2.9.2009 kl. 00:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2009 | 01:19
Stutt blogg
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.8.2009 | 02:18
Í Víking
Það þurfti hvorki meira né minna en sannan Víking til að aðstoða við uppbyggingu Einarshúss. Hann kom vel vopnum búinn með sverð og skjöld meðferðis en auk þess bar hann klæði landnámsmanna Víkingatímabilsins í töskunni. Ekki hafði hann þó í handraðanum írska ambátt né þræl enda kom hann ekki til að nema land til frambúðar í Bolungarvík heldur til að vera húsbóndanum innan handar við endurgerðina eins lengi þó og þurfa þykir. Næg eru svosem verkefnin í húsi sorgar og gleði og mikilvægt að fara að komast fyrir endann á þessu mannvirki og ljúka því í eitt skiptið fyrir öll. Allt tekur þó sinn tíma og víst verður að sætta sig við það að góðir hlutir gerist hægt. Eitt má þó verða hverjum manni ljóst að lítið þýðir að ráðast til atlögu við bændur og búalið á meðan Víkingurinn úr bardagaliði Rymmugýgs dvelur hér vestra og því betra að halda sig á mottunni í tíma og ótíma enda engin ástæða til annars. Kappinn er vanur bardagalistum landnámsmanna og smíðar jafnvel vopn sín sjálfur og kann þar vel til verka. Friður sé því með yður.........
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.8.2009 | 23:40
Ástralskur saumur kenndur í Einarshúsi
Námskeið í svokölluðum Áströlskum saumi verður haldið í Einarshúsi um helgina eða fjórða, fimmta og sjötta september. Ástralskur saumur er m.a. silkiborðasaumur, upphleyptur saumur, þrívíddarsaumur og vöfflusaumur. Kennari verður Inga Ragna Holdö frá Selfossi en hún hélt tvö námskeið á Ísafirði árið 2006 þar sem færri komust að en vildu. Inga hefur farið nokkrum sinnum til London á námskeið hjá áströlskum kennara en er að öðru leiti sjálfmenntuð. Saumurinn er kenndur við Ástralíu því þar varðveittist hann best en annars er silkiborðasaumur uppruninn í Kína og margar aðrar gerðir voru mikið í Evrópu á dögum Lúðvíks X. Hægt er að skrá sig á námskeiðin hjá Vertinum í Víkinni í síma 864-7901
Dægurmál | Breytt 30.8.2009 kl. 01:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2009 | 10:52
Matseðill 7 - 11 sept
Mánudagur: Djúpsteiktur fiskur með salati og hrísgrjónum
Þriðjudagur: Pastasalat með salati
Miðvikudagur: Hamborgarar með öllu tilheyrandi
Fimmtudagur: Plokkfiskur með heimagerður rúgbrauði
Föstudagur: Sjávarréttasúpa
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2009 | 10:46
Matseðill vikan 31 - 4 sept.
Mánudagur: Steinbítur í hvítlauksmarineringu með kartöflum og salati
Þriðjudagur: Kjúklingur í hnetusósu með hrísgrjónum og salati
Miðvikudagur: Taco með grænmeti og sósum
Fimmtudagur. Plokkfiskur með heimabökuðu rúgbrauði
Föstudagur: Kjötsúpa
Plokkfiskur er ætíð í boði á fimmtudögum og einhver ljúffeng súpa á föstudögum. Ætíð er matseðillinn birtur með fyrirvara um breytingar og að sjálfsögðu kemur fyrstur og kemur fær eins og vænta má í bransa sem þessum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2009 | 10:43
Matseðill vikan 24-28 ágúst
Nú skulu birtir matseðlar hungruðum til handa vikulega á blogginu eða því sem næst. Hér kemur yfirlit vikunnar 24-28 ágúst:
Mánudagur: Saltfiskur með congassósu, salati og kartöflum
Þriðjudagur: Kjöötbollur í brúnni sósu með kartöflum og salati
Miðvikudagur: Kjúklingur í doritos með hrísgrjónum
Fimmtudagur: Plokkfiskur með heimabökuðu rúgbrauði
Föstudagur: Gúllassúpa með heimabökuðu brauði
Ætíð er súpa í boði með rétti dagsins og verð per máltíð er 1300,-. Ellilífeyrisþegar og öryrkjar greiða 1.200,-
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.8.2009 | 23:26
Sambandslaus
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.8.2009 | 01:39
Tímamótaviðtal
Enn eitt tímamótaviðtalið var tekið við títtnefnda í gærdag en sjónvarpsstöðin INN var á ferðalagi hér vestra væntanlega að gera þátt um veitingamenn hér og þar og jafnvel einhverja sem teljast jafnmerkilegir ef ekki merkilegri. Vertinn malaði viðstöðulaust og stjórnlaust um allt það sem bráðnauðsynlegt þótti að koma á framfæri við alþjóð um lífið í Víkinni og svitinn spratt af andliti þess er tók viðtalið er orðaflaumurinn vall út úr téðum Vert. Auðvitað réðst hann ekki á garðinn þar sem hann er lægstur því títtnefnd er töluvert þjálfuð í að taka viðtöl og tala við mann og annan svo spyrjandinn fékk því fyrirmæli um hvað ætti að spyrja títtnefnda um í viðtalinu svo það kæmist á ljósvakann sem skipti máli. Segjast verður þó alveg eins og er að ekki er vitað með vissu hvenær þátturinn verður sýndur en það er eins og miðvikudagur sé eitthvað inn í myndinni en þá verður trúlega varpað fram þætti um mannlífið hér vestra á þessari norðlensku sjónvarpsstöð sem er án efa sú ágætasta.
Geta verður þess að margnefnd fékk hvorki að setja á sig kinnalit né kyssitau fyrir viðtalið né renna kambi gegnum strýið svo væntanlega að útlit og atgervi sé ekki upp á marga fiska enda enginn tími fyrir pjatt um háskaðræðistímann. Ekki það að það ætti ekki að vera áhyggjuefni ef marka má orð unglingsins sem fullyrti að INN væri frekar slök sjónvarpsstöð þó hún ætti einhverja áhorfendur og því ætti að vera nokk sama hvernig títtnefnd liti út.
Salurinn var fullur af fólki í kvöldmatnum og þar fóru saman þræðir Bolvíkinga, Akureyringa, Pólverja og Ítala svo mannlífið var fjölþjóðlegt. Ennþá virðast ferðamenn leggja leið sína vestur sem er alveg frábært sérstaklega ef þeir slysast inn í hús harma og hamingju og ætíð er gaman að fá heimamenn í trakteringar. Húsbóndinn var klæddur úr smíðagallanum í svuntu og unga konan fékk að hjálpa til við fyrsta tækifæri. Rekstur Einarshúss er að vaxa eigendum þess yfir höfuð sem hljóta að teljast góðar fréttir í litlu þorpi fyrir vestan.
Í augnablikinu er þessi orð eru skrifuð logar glatt í kamínunni í Kjallaranum og rólegheit svífa yfir. Eftir dag eins og þennan býr sú von í brjósti að enginn komi til að bragða á kolamola úr kolageymslunni svo Vertinn og vinnuhjúið geti farið snemma heim því sængin sést í hyllingum í hugarfylgsninu og þreytan hefur sest uppá í eitt skiptið fyrir öll. Það er auðvitað forkastanlegt að eiga þá von að geta farið snemma heim og slá slagbrandinn fyrir aðeins fyrr en efni standa til en stundum er þó brýn nauðsyn á að hagræða opnunartíma þegar í harðbakkann slær. Vertinn minnist orða sóknarprestsins sem spurði hvort vertíðin stæði þar til títtnefnd yrði sjötug og sendi þar með tóninn að kannski væri lag að slaka aðeins á og lifa lífinu lifandi amk. svona endrum og eins.Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.8.2009 | 01:30
Sumarið er tíminn
Sumarið er tíminn í húsið sorgar og gleði og senn verður það kvatt með kurt og pí. Gestagangurinn hefur verið ævintýralegur og einstaklega gaman að taka á móti öllum þeim straumi ferðalanga sem hafa áð í Einarshúsi. Mörg þúsund manns hafa þegið trakteringar í húsinu í sumar og oftar en ekki hefur verið mikið um dýrðir. Nú fer þó í hönd krítískur krepputími og téður Vert á það til í taugatitringi að halda að nú fari allt norður og niður þegar haustar og senn verði að loka búllunni.
Það er auðvitað reginfirra enda engin ástæða til uppgjafar þótt á móti blási og metnaðarfull dagskrá að líta dagsins ljós fyrir haustið og komandi vetur. Fastir liðir eins og venjulega verða í boði þar sem spilavistin og kjallarakeppnin hafa sinn sess eins og ætíð.
Ný dagskrárliður sem Vertinn kýs að kalla Kósýkvöld með Ylfu Mist verða mánaðarlega eða því sem næst í vetur en þar ætlar Ylfa ma. að segja neðanmittisdjók og kenna fullorðinsleiki innan velsæmismarka á krúttlegum kvöldstundum. Virkileg tilhlökkun ríkir meðal fullorðins fólks í bænum fyrir þessum kvöldum og miklar væntingar gerðar til þess sem þar fer fram. Vonir standa til að kósýkvöldið geti stuðlað að fjölbreyttu tilhugalífi turtildúfna í bænum sem orsakað geta aukinn áhuga á kósýlegheitum ýmiskonar meðal fólks sem náð hefur tilskyldum aldri til að njóta ásta með hvort öðru. Það yrði auðvitað bylting að geta notið ásta að jafnaði einu sinni í mánuði í stað einnar viku á ári líkt og verið hefur undanfarin ár í Bolungarvík og hver veit nema uppátækið gefi af sér börn og buru í ríku mæli. Þess ber að geta í framhaldi að sjávarréttasúpan sívinsæla verður borðuð undir borðum á kósýkvöldunum og hver veit nema sultan hennar Ylfu fái að fljóta með til bragbætis.
Boðið verður upp á sjávarréttahlaðborð af og til í vetur til að auðga mannlífið og eru heimamenn hvattir til að nýta sér þau sé þess nokkur kostur. Jólahlaðborðin verða á sínum stað en þau verða tvö að þessu sinni ef næg þátttaka fæst. Vænta má þess að húsbandið sem oftar en ekki er halt og blint verði fengið upp á stóra sviðið í tíma og ótíma enda er þar valinn maður í hverju rúmi.
Þá eru ótalin sagnakvöldin, vinnustaðakynningar og bókaupplestrar á jólaföstu og allt þar á milli. Fastur matseðill mun líta dagsins ljós innan tíðar og stefnt er að því að hann verði sendur í hús á tveggja vikna fresti og getur þá fólk valið þá daga sem það vill koma og borða. Plokkfiskurinn stendur þó ætíð fyrir sínu á fimmtudögum og svo verður áfram í vetur meðan fiskast.
Af framansögðu má sjá að Vertinn er ekki af baki dottin þó sumir myndu segja að títtnefnd væri gengin af göflunum. Veturinn verður frábær og iðandi lífið yfirþyrmandi í Einarshúsi eins og ætíð og ekkert mun stöðva uppbyggingu hússins eða koma í veg fyrir að það geti vaxið og dafnað.
Til að toppa tilveruna er títtnefnd farin að blogga á ný, ef marka má skrifin hér á undan, á ævintýralegan hátt sem er gott fyrir téðan Vert. Það er gott fyrir hug og hönd að festa hugarflugið í orð og setningar og halda utan um hversdagslífið með þessum hætti og vonandi verður framhald á.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm