Jólabörn

Skræpóttar mæðgurÞær voru skræpóttar mæðgurnar sem tóku á móti jólunum þetta árið enda frekar áberandi í klæðaburði á hátíðar og tyllidögum hvort sem er. Náttfatajól voru hjá Vertinum þetta árið enda veitti ekki af að eignast náttklæði fyrir nóttina og hlébarðasloppurinn var dúnmjúkur og passaði akkúrat til síns brúks. Eitt vekur þó nokk furðu að títtnefnd skuli ætíð snúa sér réttsælis á nóttunni líkt og himintunglin og vefjast náttklæðin því svo kirfilega fast utan um skrokkinn í draumaheimum að Vertinn er venjulega umvafin eins og múmía í morgunsárið og getur sig varla hrært. Nýi náttkjóllinn hélt þó á saumum og stóð sína plikt þrátt fyrir það. Gull, reykelsi og myrru hafði síðan verið haganlega pakkað inn í rest og kemur að góðu gagni í framtíðinni.

Mest um vert þótti þó á jólunum að fá að hafa barnaskarann hjá sér því það er auðvitað það sem skiptir höfuðmáli. Litlu stelpurnar eu orðnar stórar og vaxnar móður sinni upp fyrir höfuð enda virðist það vera gangur lífsins og sonurinn er löngu orðin stór og stæðilegur eins og sjá má á myndinni þar sem hann er með systrum sínum við jólatréð. Kærastan hans dvelur í sveitinni sinni um jólin hjá sinni fjölskyldu svo til allrar lukku hefur hann allar stelpurnar heima sér til halds og traustsSystkinin á jólum 2009 og til að stjana við á all lund.

Það mun þó verða þrautin þyngri að taka þess stóru börn með sér á jólaball á nýju ári í Haukadal þar sem stórsveitin Malt&Appelsín leikur fyrir jóladansi en trommari þjóðarinnar lemur þá húðir með prúðum hljóðfæraleikurum í Dýrafirðinum líkt og Dýri í prúðuleikurunum. Vertinn mun kannski tæla þau með einhverju góðgæti eða þvíumlíku og freista þess að hafa þau með og hver veita nema ferðin verði notuð til að staldra við eins og eina nótt í bústaðnum svona rétt til að sýnast.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband