Bragðgott

Vegir á jólahlaðborðiKvöldið í gær var frábært og húsið iðaði af lífi. Hátt í 60 manns mættu á jólahlaðborðið sem var í gærkvöldi og það heppnaðist einstaklega vel. Mjög góður andi var í húsinu og stemningin frábær í alla staði og allir skemmtu sér hið besta. Allur matur er hantéraður af húsfreyjum hússins að vanda og þótti afar bragðgóður enda komast fáir með tærnar þar sem þær hafa hælana þegar kemur að matargerð. Þessar húsfreyjur, að títtnefndri meðtalinni, ganga í öll störf og standa vaktina þar til yfir líkur án þess að kvarta og kveina yfir þreytu eða álagi. Það verður líka að viðurkennast að flest jafnréttislög á vinnustað eru brotin í hvívetna enda eru einungis kjarnorkukvenmenn í vinnu hjá Vertinum í Einarshúsi og það er sko ekki að ástæðulausu. Húsbóndinn er þó undanskilin enda gengur hann í öll störf sem þarf að vinna og er jafn laghentur í smíðavinnu, kokkavinnu, þrif og við frágang, jafnt sem trommuáslátt á góðum kvöldum enda eru kjuðarnir sjaldan langt undan.

Stilla þarf upp trommusettinu aftur í kvöld á stóra sviðið í Kjallaranum vegna þrotlausra æfinga hjá jólablöndunni Malti og Appelsín ,en einstök jólagleði verður í Einarshúsi á laugardagskvöldið kemur. Þá ætla Lýður læknir og Íris, Gummi Hjalta og Elfar Logi, húsbóndinn á trommunum og jafnvel einhverjir fleiri að færa ykkur mikinn fögnuð og jólaboðskap. Varla þarf að geta þess að bráðnauðsynlegt er að mæta og taka á móti jólunum í góðra vina hópi.

Hlynur og Ragnar Högni unnu Kjallarakeppni á föstudagskvöld og því mun þeirra tími koma til að spyrja þegar frá líður. Mæja Bet verður þó spyrill á þorlásmessukvöld og eru menn hvattir til að mæta strax eftir skötuna í Kjallarann.

Vertinum þykir tilhlýðilegt í lokin að þakka öllum sem sóttu jólahlaðborðin í Einarshúsi fyrir þessi jól kærlega fyrir komuna. Það er afar mikils vert að fólk nýti sér þjónustu í heimabyggð og efli og styrki þá starfssemi sem hér er í boði. Títtnefnd er nokkuð ánægð með sitt heimafólk fyrir þessi jól og hina líka sem komu langt að en töluverð aukning hefur verið í  jólahlaðborðavertíðinni milli ára og því ekki undan neinu að kvarta. Mikill vill þó alltaf meira og hægt hefði verið með auðveldum hætti að reiða fram fleiri hlaðborð ef áhugi hefði verið fyrir hendi. Að því skal stefnt fyrir næstu jól.......ef guð og skattheimtumaðurinn lofar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband