Fjárhirðar

Mitt í jólatörninni gefur Vertinn sér tíma til að blogga lítið eitt. Jólahlaðborðin taka töluverðan tíma frá títtnefndri þennan dyntinn eins og við er að búast. Varla er hægt að reikna með jólahlaðborðum annan tíma ársins svo þetta er nokkuð eðlilegt og í samræmi við væntingar. Það er helst í miðri viku sem hægt er að slaka örlítið á og búa sig undir næstu törn en segjast verður alveg eins og er að brjálað er að gera um þessar mundir og ekki allt búið enn. Jólahlaðborðið á laugardaginn verður án efa eitt það mannmesta um langan aldur en áður hafa þó jafnmargir og jafnvel fleiri setið til borðs í Einarshúsi og átt notalega stund í góðra vina hópi. Húsið verður að gjöra svo vel að laga sig að þeim fjölda sem í húsið kemur og fjalirnar svigna til að allir komist fyrir með góðu móti og panellinn færist úr stað svo vel rúmist um alla sem húsið vilja sækja heim. Svona er þetta bara.

Hálfdán Guðröðarson bar sigur úr býtum í spilavistinni og vann jólahlaðborð fyrir tvo á sl. helgi. Hann var kampakátur er hann kom með sína ektafrú og naut góðra veitinga og skemmtunar. Spilavistin heldur áfram eftir áramótin og verður greint frá því síðar.

Kjallarakeppnin heldur sínu striki á föstudaginn kemur en þá spyrja Atli Freyr og Elmar Ernir gesti spjörunum úr. Vinningurinn er sem fyrr kassi af drukk frá Vífilfelli svo til mikils er að vinna og eru menn hvattir til að koma og spreyta sig.

Gummi Hjalta mætir svo galvaskur á stóra sviðið í Kjallaranum á laugardagskvöldið 12. des eftir jólahlaðborðið og leikur og syngur fram á rauða nóttina. Allt eins er reiknað með miklu stuði og fjöri fram á morgun og væntanlega verður dansað og djöflast innan eðlilegra marka eða því sem næst.

Jólablandan Malt og Appelsín mun svo trylla lýðinn þann 19. desember nk. og koma öllum í rétta jólaskapið í eitt skipti fyrir öll. Þá ætlar Lýður læknir að halda úti taumlausu stuði og minnast fæðingar frelsarans af krafti og kynna mikinn fögnuð þá um kvöldið fyrir gestum Einarshúss. Hann hefur umorðað hin fallegustu jólakvæði og gert þau sérbolvísk og flest þeirra alls ekki við hæfi barna, ungmenna né gamalmenna. Sér til halds og trausts hefur hann læknirinn, þ.e. Írisi ektakvinnu sína, sem hann var svo séður að nappa í á sínum tíma væntanlega og helst og aðallega til að lækna sig ef hann yrði eitthvað veikur. Með þeim verður svo einvalalið, leikara, hljómlistarmanna auk lögreglumanna sem ætla að reyna að halda lagi með þeim og gera kvöldið eftirminnilegt og hleypa jólunum að í eitt skipti fyrir öll.

Fjárhirðarnir verða á barnum að vanda og líta eftir með hjörðinni og breyta vatni í vín þegar líður á kvöldið. Þeir munu sjá til þess að boðorðin tíu verði í hávegum höfð og þau virt í hvívetna þó 11 boðorði verði þó sérstaklega fylgt eftir en þar stendur að enginn skuli bera sitt eigið vín inn í annarra manna hús þá sérstaklega veitingahús enda er  það er bannað með landslögum. Einnig mun 12 boðorðið um aldurstakmark ekki vera brotið enda ritað í sáttmála sýslumannsins á nýtísku pappír úr regnskógum Afríku.

Spámennirnir sem spáðu hagnaði hlutabréfa sinna hanga ugglaust fram á borðin og gráta gamlar arðgreiðslur frá Sparisjóðnum á meðan Betlehemskertin loga á hverju borði og veita von um betri tíð með blóm í haga. Nægt húsrúm verður fyrir Maríu mey enda er Einarshús opið öllum á stundum sem þessum enda býr María í öllum konum. Frelsarinn verður þar líka enda er hann allstaðar með mönnunum og reynir að leiða þá á rétta vegu og koma vitinu fyrir þá sem hafa glatað því í glasinu. Vitringarnir þrír mæta án efa líkt og öll önnur kvöld í góðu stuði, þeir verða kannski ekki með gull, reykelsi og myrru í þetta sinnið en trúlega má ætla að einhver viska falli af þeirra vörum líkt og venjulega við barborðið.

Vertinn og hennar skyldulið í hlutverki fjárhirða þarf að huga að öllum þessum einstaklingum á síðbúnum vetrarkvöldum og gæta fjárhússins við skinið frá Betlehemsstjörnunni yfir Bolungarvík.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband