Frábær helgi að baki

Kynlegir kostagripirHelgin er vægast sagt búin að vera frábær í alla staði. Vertinn hefur reyndar staðið vaktina lengur en góðu hófi gegnir og var orðin ansi framlág undir restina en ætlar bara að sofa eitthvað fram í vikuna til að ná eðlilegu jafnvægi á ný. Það passar nokkuð pent að þegar svefninn verður  orðinn eðlilegur á ný og títtnefnd hætt að vaka á nóttunni og sofa fram á daginn rennur upp ný helgi með nýjum viðburðum og þá snýst þetta allt við á ný. Kærleiksdagar voru í Bolungarvík um helgina sem Vertinn í Víkinni átti stóran þátt í að standa að og tók títtnefnd Kærleiksmessu í Hólskirkju á föstudagskvöldið með trompi og var það góður undirbúningur fyrir komandi viðburði helgarinnar. Kynlegir kostagripir tróðu upp í Kjallaranum síðar um kvöldið og það var ekki að spyrja að því að það tókst með afbrigðum vel og var bráðskemmtilegt.

 

Lilja, Anna og EbbaLaugardagurinn rann svo upp í drottins dýrðar faðmi og strax mátti finna ilminn af einhverri spennu í loftinu. Herlegheitin byrjuðu á hádegiskrami með Höllu Signý í hádeginu og þar var öllum boðið í sjávarréttasúpu og komust fleiri þar að en vildu. Vertinn var undir það búin að þurfa að brauðfæða mörg þúsund manns úr örfáum fiskum en það fór þó ekki svo og nóg var af súpu fyrir alla. Engu vatni var breytt í vín fyrr en síðar um kvöldið svo bergvatnið dugði í hádeginu eitt og sér. Fjórar ungar stúlkur buðu upp á tónlistaratriði og voru þær sér og sínum til mikils sóma og hrein unun var á að hlýða. Lilja, Ebba og Anna sungu sig inn í hug og hjörtu þeirra sem hlustuðu og stóðu sig með stakri prýði og það gerði Kristín líka með harmonikkuleik sínum.

 

 

Íris. Lýður og GummiÞorskurinn hófst svo á slaginu fjögur og rann dagskráin ljúft og fór alveg eftir áætlun og skeikaði ekki sekúndu. Svo nákvæm var tímaáætlunin að það var eins og herinn hefði stjórnina en ekki títtnefnd sem var klædd eins og Sigga Vigga, með svuntu og skuplu um hárið sem bundin var úr tóbakskútnum hans pabba og með hárauðan varalit en þannig voru allar vinnukonur hússins klæddar í tilefni hátíðarinnar.  Hver dagskráliðurinn eftir öðrum rann fram hjá á augabragði og frumsamið efni í takt við gamalt og gott, íslenskt og útlent ómaði um Kjallarann. Tuttugu listamenn fengju öskju af þorski fyrir að koma fram og stefnt er að því að tvöfalda þann fjölda af öskjum fyrir Þorskinn 2010 og gera hátíðina enn meiri og stærri. Kjallarinn var troðfullur og fullt var af fólki allan tímann og Ylfa, Hjördís og Gummi það var alveg í takt við væntingar Vertsins. Fullur hugur er á því að halda enn veglegri hátíð næsta ár.

Hjörtur Trausta kom sér svo þægilega fyrir á stóra sviðinu  þegar klukkan sló miðnætti og hann blés vart úr nös fram að klukkan þrjú eða rétt um það bil. Fólk dansaði og duflaði og daðraði, söng og hló og tjúttaði fram á morgun og lífið var ljúft. Þeir síðustu yfirgáfu staðinn er klukkan var ískyggilega langt gengin í morgun en þá mátti Vertinn kveðja hvern gest með kossi eða faðmlagi því það var jú kærleiksnótt og allir vildu knús og kram. Því er Vertinn alveg úr takti við daginn í dag og kemur sér ekki í neitt verk af viti.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Það hefur aldeylis verið fjör verst hvað það er langt vestur á firði annars mundi ég hafa litið við.  KV Erla

Erla (IP-tala skráð) 22.11.2009 kl. 23:11

2 identicon

Þetta var alveg frábært og bíðum við spennt eftir næsta Þorski.....enda heldur betur tilefni til að bregða sér vestur í faðm fjallanna sem eru svo kærleiksrík á kærleiksdögum sem og alla aðra daga.

Takk fyrir okkur

heida hauksdottir (IP-tala skráð) 23.11.2009 kl. 09:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband