Verkefnalistinn

Vertinum tókst að haka við þónokkur atriði í dag sem átti eftir að framkvæma á verkefnalistanum langa. Títtnefnd fékk athafnateyguna um miðjan dag og notaði tækifærið að leggja lokahönd á skipulagningu Kærleiksdaga í Bolungarvík rétt á meðan. Margnefnd fór í Sparisjóðinn með auglýsingablöð sem bera munu hróður Kærleiksdaga um alla norðanverða Vestfirði en sá sami sparisjóður studdi verkefnið dyggilega og gerði það mögulegt að hægt var að láta prenta glæsilegan einblöðung í vistvænni prentsmiðju fyrir sunnan. Það verður gaman að sjá hvernig til tekst með þetta verkefni sem nokkrar valkyrjur í Víkinni ákváðu að fara út í til að þjappa fólki saman og mynda samhug í bænum og minna á kærleik og vonandi taka allir þátt sem vettlingi geta valdið. Vonandi verður bærinn iðandi af lífi og stútfullur og allir kátir og glaðir. Af tilefni Kærleiksdaga má alveg hengja upp jólaseríurnar og lýsa upp sem mest menn mega og eru allir hvattir til þess hér og nú svo ekki sé talað um öll kertin sem eiga að loga hist og her.

Umsókn um styrk til Húsafriðunarnefndar sendist óðfluga til réttra aðila er leið á kvöldið og þótt títtnefnd sé ekkert sérlega bjartsýn á þessum krepputímum þá hefur Vertinn staðið sína plikt í þeim efnum og umsóknin er farin til réttra aðila. Verkframvinda í verkefni sem títtnefnd er þátttakandi í og nefnist Krásir var einnig útfyllt samviskusamlega og send Impru nú í kvöld en þar fékk títtnefn styrk til matartengds verkefnis sem er fólgið í því að láta útbúa matseðil úr sjávarfangi. Beðið er með öndina í hálsinum eftir styrkveitingum Menningarráðs Vestfjarða því þar bíða hvorki meira né minna en þrjár umsóknir um hitt og þetta sem draumur er að láta rætast í Einarshúsi. Reyndar er það ekki alveg rétt að öndin sé í hálsinum því betra er að búast við litlu eða jafnvel engu og gleðjast yfir hverju því litla sem að manni er rétt í það og það skiptið. Styrkir Menningarráðs eru  þó mikilvægir til að styðja við bakið á menningarverkefnum á fjórðungnum og vonandi rennur einhver hluti þeirra til Bolungarvíkur í þessari úthlutun.

Þó verður það að segjast alveg eins og er að algjör viðsnúningur er á sólarhringnum þessa dagana sem getur verið bagalegt, sérstaklega þegar þarf að fara að sofa á kvöldin svo ekki sé talað um að þurfa að vakna fyrir hádegi á morgnana. Því hefur klukkan verið stillt kl. 10:30 í fyrramálið og títtnefnd ætlar að reyna að rífa sig upp þá um miðja nótt og ganga inn í nýjan dag.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ragna mín, átti ekki að skila inn til fjárlaganefndar, beiðni um húsafr. styrk í júní? Mér skilst það. Þú leiðréttir mig kannski ef þetta er vitleysa.

baráttukveðjur

 pálmi

Pálmi Gestsson (IP-tala skráð) 20.11.2009 kl. 00:11

2 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Rétt er það Pálmi að Fjárlaganefnd vildi styrkumsóknir í júni. Húsafriðunarnefnd tekur þó á móti styrkumsóknum fram til 1. desember og þangað legg ég inn beiðni um styrk þetta árið. Ég er þó hræddust um að allir sjóðir séu hálftómir um þessar mundir frekar en hálffullir og því er ég hóflega bjartsýn.

Hjari og Einarshús fá þó vonandi eitthvað klink til frekari endurbóta

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 22.11.2009 kl. 23:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband