Stutt blogg

Fór með kistuna fyrir kanínu út á flugvöll en kanínan var í andaslitrunum þegar kallað var eftir kistunni en hjarnaði víst eitthvað við og er því ekki dauð enn. Athygli Vertsins var vakin og sofin yfir skokkurum sem hlupu um allt á Ísafirði í belg og biðu og stefndu jafnt austur og vestur, norður og niður í grennd við Skutulsfjarðarbrautina. Ekki kom títtnefnd auga á ástæðu þess að allir hlupu hingað og þangað því ekkert eða enginn virtist elta neinn og því taldi títtnefnd enga ástæðu til að flýta sér sem raun bar vitni. Án efa eru þessir nágrannar hinu megin fjallsins verið að reyna að ná af sér aukakílóunum eftir að hafa hlaupið í spik....Vertinn gekk hinsvegar í hægðum sínum inn í bónus eftir að hafa farið með kanínukassann og keypti sér kassa af kókósbollum.......................og keyrði svo heim.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Veistu, ég er ekki alveg að skilja framsöguna þína. Þetta er bara bull í mínum augum, kannski þú hafir einhverju við þetta a bæta? Kanínan hvað, og vertinn ( ert það þú? ) að borða kókosbollur! Hvílíkt bull og endemis vitleysa. Ertu í rauninni Magnúsdóttir? Eða veistu kannski ekki betur?

t.jons (IP-tala skráð) 1.9.2009 kl. 01:57

2 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Hahaha...þú átt ekki að vera að lesa það sem þú ekki skilur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 1.9.2009 kl. 10:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband