22.8.2009 | 01:39
Tímamótaviðtal
Enn eitt tímamótaviðtalið var tekið við títtnefnda í gærdag en sjónvarpsstöðin INN var á ferðalagi hér vestra væntanlega að gera þátt um veitingamenn hér og þar og jafnvel einhverja sem teljast jafnmerkilegir ef ekki merkilegri. Vertinn malaði viðstöðulaust og stjórnlaust um allt það sem bráðnauðsynlegt þótti að koma á framfæri við alþjóð um lífið í Víkinni og svitinn spratt af andliti þess er tók viðtalið er orðaflaumurinn vall út úr téðum Vert. Auðvitað réðst hann ekki á garðinn þar sem hann er lægstur því títtnefnd er töluvert þjálfuð í að taka viðtöl og tala við mann og annan svo spyrjandinn fékk því fyrirmæli um hvað ætti að spyrja títtnefnda um í viðtalinu svo það kæmist á ljósvakann sem skipti máli. Segjast verður þó alveg eins og er að ekki er vitað með vissu hvenær þátturinn verður sýndur en það er eins og miðvikudagur sé eitthvað inn í myndinni en þá verður trúlega varpað fram þætti um mannlífið hér vestra á þessari norðlensku sjónvarpsstöð sem er án efa sú ágætasta.
Geta verður þess að margnefnd fékk hvorki að setja á sig kinnalit né kyssitau fyrir viðtalið né renna kambi gegnum strýið svo væntanlega að útlit og atgervi sé ekki upp á marga fiska enda enginn tími fyrir pjatt um háskaðræðistímann. Ekki það að það ætti ekki að vera áhyggjuefni ef marka má orð unglingsins sem fullyrti að INN væri frekar slök sjónvarpsstöð þó hún ætti einhverja áhorfendur og því ætti að vera nokk sama hvernig títtnefnd liti út.
Salurinn var fullur af fólki í kvöldmatnum og þar fóru saman þræðir Bolvíkinga, Akureyringa, Pólverja og Ítala svo mannlífið var fjölþjóðlegt. Ennþá virðast ferðamenn leggja leið sína vestur sem er alveg frábært sérstaklega ef þeir slysast inn í hús harma og hamingju og ætíð er gaman að fá heimamenn í trakteringar. Húsbóndinn var klæddur úr smíðagallanum í svuntu og unga konan fékk að hjálpa til við fyrsta tækifæri. Rekstur Einarshúss er að vaxa eigendum þess yfir höfuð sem hljóta að teljast góðar fréttir í litlu þorpi fyrir vestan.
Í augnablikinu er þessi orð eru skrifuð logar glatt í kamínunni í Kjallaranum og rólegheit svífa yfir. Eftir dag eins og þennan býr sú von í brjósti að enginn komi til að bragða á kolamola úr kolageymslunni svo Vertinn og vinnuhjúið geti farið snemma heim því sængin sést í hyllingum í hugarfylgsninu og þreytan hefur sest uppá í eitt skiptið fyrir öll. Það er auðvitað forkastanlegt að eiga þá von að geta farið snemma heim og slá slagbrandinn fyrir aðeins fyrr en efni standa til en stundum er þó brýn nauðsyn á að hagræða opnunartíma þegar í harðbakkann slær. Vertinn minnist orða sóknarprestsins sem spurði hvort vertíðin stæði þar til títtnefnd yrði sjötug og sendi þar með tóninn að kannski væri lag að slaka aðeins á og lifa lífinu lifandi amk. svona endrum og eins.Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.