Upplyfting

Leiðin lá til höfuðborgarinnar rétt eitt augnablik til að lyfta sér upp. Heydalur þótti tilvalinn áfangastaður til snæðings þrátt fyrir að Mjóifjörðurinn væri eitt drullusvað og holurnar hæddust að téðum Vert á leiðinni. Mjóafjarðarbrúin beið við fjörðinn og þótti miður að geta ekki flutt títtnefnda yfir á örskotstundu og stytt vegalengdina um heilan helling en ferðalangar verða víst að hinkra eftir þeim munaði eitthvað lengur. Ekki er reiknað með öðru en að Vertinn í Víkinni fái það hlutskipti að klippa á borðann og opna þar með Mjóafjarðarhaftið í eitt skipi fyrir öll enda veit títtnefnd ekki um neinn annan sem væri betur til þess fallin. Ekki efast margnefnd um það eitt augnablik að flestir ef ekki allir sem yfir brúna fara eru á leiðinni í Einarshús með einum eða öðrum hætti þ.e. ef þeir eru á leiðinni að sönnan og vestur en ekki öfugt svo því þykir tilhlýðilegt að fá frúnna sem öllu ræður í húsi sorgar og gleði til að víga mannvirkið sem margir héldu að yrði aldrei tilbúið.

Brunað var í Reykjanesið þegar klukkan var komið kvöld eftir indælan málsverðinn í ævintýradalnum og herbergið beið mátulega heitt og notalegt. Sundferð beið morgundagsins því klukkan sló miðnættið áður en varði og orðið og seint að bleyta tánna. Tilefni ferðarinnar er að mestu að minnast þess að tuttugu ár eru liðin frá því að téður Vert gekk glaðbeitt upp að altarinu með húsbóndanum, en einnig skal haldið í smá bisnesstúr vegna Einarshússins, auk þess sem nauðsynlegt þótti að skipta um gír eitt augnablik.

Með geit uppí sveitGeitabóndinn í Borgarfirðinum var heimsótt en henni kynntist títtnefnd á námseiði í Hólum í Hjaltadal og efndi hún loforð sitt í sumar um að koma í heimsókn í Einarshús. Nú er Vertinn einnig búin að efna loforðið um að heimsækja hana til baka í sumar svo hægt er með réttu að segja að Vertinn og geitabóndinn séu kvitt í bili. Geiturnar eru einstaklega mannelskar og þessi litli kiðlingur gældi við títtnefnda og kúrði í hálsakotinu og lét fara vel um sig.

Skræpótti unglingurinn hún Lilja var kominn heim frá Noregi og bjó hjá Andra bróður sínum og Þórunni kærustu hans og var þar í afar góðu yfirlæti. Á meðan vann Elsa baki brotnu í Einarshúsi og tók á móti fjöldanum öllum af gestum og eldaði dýrindismat eins og ekkert væri.

Fyrst minnst er á dýrindismat þá snæddu hjónakornin á Argentínu í tilefni brúðkaupsafmælisins og hægt er að segja það með sanni að kvöldverðurinn var frábær og einstaklega góður endir á góðum degi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband