28.7.2009 | 02:07
Hjörtur Trausta í Kjallaranum
Það er enginn annar en Hjörtur Traustason sem treður upp í Kjallaranum á föstudagskvöldið. Hann hefur svosem áður mátað sig við stóra sviðið og passaði svona líka akkúrat. Reyndar komust öll tónelsku systkini hans fyrir á sviðinu með honum og í sameiningu héldu þau uppi þvílíku stuði að það hálfa væri heill hellingur. Það er sérstakt tilhlökkunarefni að fá að hlusta á þennan eðaldreng taka lagið en það er reyndar ætíð sérstak gleðiefni að geta boðið tónlistarfólk velkomið í þetta hús sorgar og gleði í Bolungarvík alltaf jafn gaman og spennandi og ræður Vertinn sér varla fyrir kæti.
Síðasta sýning um sögu frumkvöðla í Bolungarvík verður flutt á fimmtudagskvöldið að vanda og væntanlega má ætla að þeir sem ekki hafa barið hana augum nýti tækifærið og fari í leikhús. Upplagt er að mæta snemma og fá sér dásamlega sjávarréttasúpu eða kaupa sér kaffi og eina þá bestu gulrótarköku sem fyrirfinnst á landi hér með kaffinu og njóta sýningarinnar í leiðinni.
Guðlaug vinnukona hefur varla haft undan við að baka þessa dásemdaruppskrift af gulrótarkökunni og þykir hún hið mesta afbragð. Rúgbrauðið er einnig feikivinsælt og ríkur út eins og heitar lummur þó það sé bakað í stærðar bökunarformi sérsmíðað af Finnboga í Tungu dugar það varla til að metta mannskapinn. Vinnukonunni hefur stundum verið skapi næst að hætta bara og fara því það sé ekki til neins að vera að baka öll þessi kynstur ef þau hverfa jafnóðum ofan í sársvanga ferðalanga.
Gaman er að geta þess að rabbbaraísinn sem er sérlagaður í Einarshúsi virðist einnig vekja stormandi lukku og koma heilu hóparnir sérstaklega til þess að bragða á ísnum. Vertinn er eilítið upp með sér þegar ókunnugt fólk kemur og spyr hvort þessi margfrægi ís sé framleiddur í Einarshúsi og virðist fólk gera sér sérstaka ferð langa leið til að smakka hann. Títtnefnd telur tilvalið að geta þess að húsið er opið alla daga ennþá og hægt að kaupa mat af matseðli en einnig er hægt að kaupa dýrindis kaffi og meðþví alla daga einnig. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur og eru bæjarbúar hvattir til að nýta sér það sem er í boði í húsinu svo hægt verði að hafa það opið eitthvað lengur fram á haustið.
Spegill hvarf á undursamlegan hátt í húsinu á sl. helgi sem merktur var bjórnum Stellu. Það eitt og sér er ekkert stórmál en vegna þess hve Vertinum í Víkinni er sérlega uppsigað við þjófa er málið litið alvarlegum augum. Það þarf auðvitað að koma þeim sem geta ekki látið eigur annarra í friði bak við lás og slá og fá þá til að skilja að slíkt þykir ekki til eftirbreytni að stela frá öðru fólki. Þykir títtnefndri það sérlega bagalegt að fá ekki að hafa hluti hússins í friði og hefur nú lagt höfuðið í bleyti til þess eins og finna út hæfilegar refsingar þrjótunum til handa. Í sumum löndum fá þjófar það óþvegið og hendin er jafnan höggvin af eftir slíkar yfirsjónir og hægt er þá að treysta því að þjófurinn steli ekki aftur eftir að hendin hefur verið höggvin. Ekki má þó vænta þess að Vertinn grípi til þess örþrifaráðs í bráð amk. Títtnefnd hefur þó spæjaranef og hefur vissa aðila grunaða og telur það er næga refsingu að liggja undir slíkum grun þeirrar sem þess ritar. Húsgítarnum góða hefur þó ekki enn verið skilað og guð hjálpi þeim þegar Vertinn birtist í gættinni eftir að sumarvertíðinni líkur og heimtar hann á ný. Þjófnaðir og skemmdarverk eru reyndar alveg nýtt fyrirbrigði í húsinu enda hefur ekki verið hróflað við einu né neinu stórvægilegu frá því að Kjallarinn opnaði fyrir fjórum árum og fram til dagsins um daginn þegar farið var yfir strikið. Fólk ber að jafnaði mikla virðingu fyrir uppbyggingunni og hefur gengið sérlega vel um húsið alla tíð og fara þar heimamenn fremstir í flokki enda heiðarlegir upp til hópa.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.