Satt best að segja

Helgin var einstök enda hélt stóra systir upp á afmælið sitt og mikið var um dýrðir. Líkja má afmælinu við ættarmót þeirrar ættar sem tilheyrir títtnefndri og því komu margir saman sem allir eða flestir voru af einni og sömu ættinni. Veðrið í Víkinni lék svo sannarlega við hvern sinn fingur og hitinn í hallargarðinum við Einarshúsi ætlaði hvern mann að drepa og lífið var ljúft. Hópurinn sem var samankominn að fagna með systurinni var nokkuð stór og rétt komst fyrir í tröppum hússins eins og sjá má á myndinni en auðvitað hefði verið pláss fyrir unglinginn sem spókar sig nú í Noregi og var því fjarri góðu gamni og gat því ekki verið með.

Afmæli Völu, fjölskyldumynd

Það þurfti hvorki meira né minni en einkaflugvél undir soninn sem flaug vestur með kærustuna og tvo aðra farþega í farteskinu í brakandi sól og blíðu til að geta tekið þátt í afmælisfagnaðinum. Frændurnir voru báðir klipptir í hanakamb er þeir lentu á Ísafjarðarflugvelli síðla föstudags og glöggt mátti sjá stælinn á þessum nýju útrásarvíkingum norðursins enda var lífinu tekið létt.

Andri og Maggi

Farþegarnir brostu einnig í kampinn og létu sér fátt um finnast þó smellt væri mynd af þessum stelpum sem komu á einkaflugvél þessa leið enda voru þær á leið í heljarinnar partý í Einarshúsi.

Þórunn og Þóra

Auðvitað þurfti að nýta flugvélina og flugmanninn svo ekki sé talað um veðrið sem lék við hvern sinn fingur um helgina svo systurinni var boðið í flugtúr

Elsa og Andri að fljúga

Stóra systir Vertsins fékk svo útsýnisflug um Vestfirði í afmælisgjöf og naut sín í botn.

Elsa, Andri og Þórunn

Viðskiptafræðineminn, atvinnuflugmannsneminn  og verðandi næringarfræðineminn sátu í samlyndi í hallargarðinum. Grunnskólaneminn gekk Prekestólen í staðinn hjá frændum vorum í Norge og átti glaða daga eins og hinir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband