Fuglinn er floginn

myndás svart hvítNú blæs örlítið um þröstinn sem búið hefur sér hreiður í illinum í garði Vertsins í Víkinni en hýbýlin eru sterkbyggð og haggast því hvergi. Hundurinn Dollar stendur vörð um hreiðrið auk hundsins Adosar sem er í pössun hjá títtnefndri svo kettir komast ekki nálægt útungunarstöðinni og allt er tryggt og traust Ungarnir eru þó ekki flognir úr hreiðrinu ennþá enda varla komnir úr eggi en unglingurinn er aftur á móti floginn áleiðis til Noregs og mun þar lenda um hádegisbilið þar sem skiptineminn tekur á móti henni. Sonurinn kemur fljúgandi heim í hreiðrið seinnipart dags á fjögurra sæta flugvél þar sem hvert sæti verður skipað og lendir á Ísafjarðarflugvelli í kvöld en tilefnið er auðvitað stórafmæli stóru systur títtnefndrar sem fagnað verður í húsi gleði í Bolungarvík annað kvöld. Unga konan heldur sínu striki enda jarðföst að jafnaði. Hún á þó eftir að taka flugferðina með bróður sínum og skoða Ísland farsældar frón úr lofti og fær vonandi tækifæri til þess um helgina. Af framansögðu má sjá að börnin eru á ferð og flugi út og suður. Þó geta þau treyst því að þeirra hreiður er alltaf á sínum stað hér heima og ávallt opið. Tilvalið telst að birta mynd sem tekin var við útskrift stúdínunnar af ungunum fjórum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband