Sagan í máli og myndum

Einhverjar athugasemdir hafa borist þess efnis hve fáum myndum er varpað á bloggið af þeirri uppbyggingu sem á sér stað í Einarshúsi um þessar mundir. Því telst tilvalið að leiða lesendur áfram að húsi sorgar og gleði með smá myndaseríu.

Skiltin

Skiltin vísa vegfarendum á þrjá af merkari stöðum í Víkinni. Glöggir geta séð að gisting verður í boði í húsinu í fyllingu tímans auk þess er hægt að fá prýðisveitingar en heitur reitur er einnig í boði.

Einarshúsið með bíókassann og flaggstöngina

Þarna neðst í vinstra horni norðurgafls er bíókassinn kominn þar sem geymdar eru auglýsingar um hina og þessa viðburði sem í húsinu eru auk þess sem matseðill hússins fyrir allra augum.

Einarshúið norðurgafl

Flaggstöngin er komin upp og búið að klæða glugga á norðurgafli og komin brunastigi.

Einarshúsið svalir á byrjunarstigi

Þarna sést móta fyrir svölunum og byrjað var að slá þeim upp í dag. Búið er að klæða meðfram þrem gluggum á efri hæðinni og slétta úr í garðinum en þar á að helluleggja og girða eins og fyrr segir og loka garðinn af.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Húsið er orðið stórglæsilegt innilega til hamingju :))

Magga Lilja (IP-tala skráð) 9.7.2009 kl. 08:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband