Hábjargræðistíminn

Það væri til þess eins að æra óstöðugan að ætla að nefna allt það sem drifið hefur á daga títtnefndrar undanfarna daga svo hér skal einungis stiklað á stóru í æsilegri frásögn af uppákomum. Markaðsdagar skóku Bolungarvík um helgina auk ættarmóta, fermingarafmæla, brúðkaupa og afmæla sem öll báru upp á þessa sömu helgi. Bærinn var því fullur af fólki og sungið var og dansað í hverju skúmaskoti og lífið var gott. Iðandi fjörið bjó um sig í Einarshúsi alla dagana og það var brjálað að gera svo ekki sé meira sagt. Baldur og Bolvíkingarnir komust allir fyrir á stóra sviðinu eða því sem næst og Kjallarinn var kjaftfullur á föstudagskvöldið og andartakið fullt af ævintýrum hvar sem litið var. Hinir og þessir pöruðu sig saman og svo sundur eftir því sem við átti og allt var eins og blómstrið eina en flestir héldu sig þó á mottunni eins og gengur og allt var undir kontról undir trommuslætti húsbóndans sem jafnframt er smiður hússins og nýverið settur í embætti kokks þegar nauðsyn ber til. Hermann Ási, Benni Sig og Baldur léku einnig af fingrum fram og hvergi var slegið af.

Eyþór og Andri

Það verður þó að segjast alveg eins og er að öllum öðrum ólöstuðum að Eyþór Ingi og Andri Ívars voru framúrskarandi góðir um helgina og heilluðu margnefnda algjörlega upp úr skónum. Eyþór hefur röddina í lagi og ber aldrei feilnótu á borð fyrir hlustendur hvar svo sem í tónstiganum hann tiplar og er í þokkabót einkar góður performans, eins og sagt er á bjagaðri engilsaxnesku. Andri kunni heldur betur á gítarinn og þekkti gítargripin betur en nokkuð annað. Þeir voru algjörlega meiriháttar og á Vertinn án efa eftir að leggja sig fram um að fá þá aftur við gott tækifæri. Til allrar hamingju þótti þeim einnig mikið til Kjallarans koma og vilja ólmir koma aftur við fyrsta hentugleika og vonandi á sá tími eftir að koma hið fyrsta.

Það skildi þó ekki vera að þeir yrðu í hópi þeirra sem boðið verður að víga Garðinn við Einarshúsið en nú er unnið hörðum höndum að því að klára Einarshúsið og vonir standa til að bakgarðurinn verði tilbúinn fyrir haustið. Helluleggja á allt svæðið bakatil og há girðing mun stúka Garðinn frá öðrum görðum í bæjarfélaginu til að aðgreina svæðið frá öðrum svæðum í bænum. Nokkrum stórsveitum hefur verið boðið að leika á pallinum við húsið til að fagna þeim tímamótum og hugmynd af lítilli tónlistarhátíð er að myndast í kolli títtnefndir og auðvelt er að fá tónelska til að hrífast af hugmyndinni. Það er þó eitt að fá hugmynd og annað að framkvæma hana af einhverju viti og téðum Vert er það fullljóst að betra er að ætla sér minna og standa við það en að færast of mikið í fang og geta svo ekki staði neitt við neitt. Því mjatlast þetta í hugarfylgsninu enn um sinn.

Reyndar verður það þó að segjast alveg eins og er að nú þegar er allt of mikið að gera hjá marnefndri enda stendur vertíðin sem hæst og heimsóknir í Einarshús hafa margfaldast milli ára. Vertinn hefur færra starfsfólki á að skipa nú í sumar en í fyrra og stendur því alla daga á haus, venjulega frá morgni til kvölds og jafnvel langt fram á nóttina. Það verður svo að vera meðan endapunkturinn á uppgerð hússins er sleginn en þegar húsið hefur fengið uppreisn æru á ný, standa vonir til að hægt verði að ráða fleiri til fastra starfa og títtnefnd fái frið til að sinna því sem áhuginn leitar. Oft á tíðum vildi títtnefnd fá frí til að geta verið eins og annað fólk en frí er ekki til í orðabók Vertsins í Víkinni um hábjargræðistímann. Af þeim sökum er ekki bloggað eins oft og vonir hefðu staðið til að gera í eðlilegu árferði og ritræpunni því haldið niðri rétt á meðan.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 635843

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband