30.6.2009 | 01:36
Blessuð börnin
Blessuð börnin eru út og suður þegar þessi orð eru rituð. Elsa nýtur sín á Írlandi með Einari Jóni sínum og er að taka út útskriftargjöfina sem hann gaukaði að henni í tilefni af útskriftinni. Lilja er við þröskuldinn á draumaheimum enda starfar hún sem stendur sem vinnukona í Einarshúsi og þarf að mæta til vinnu á morgun og hún er einnig tekin við starfi þáttastjórnanda á ruv og á að sjá um útvarpsþætti í vetur sem fjalla eiga um barnasáttmála sameinuðu þjóðanna en í því starfi er hún á réttri hillu. Andri flaug hringinn í kringum landið í dag með vini sínum en lenti í því að flugvélin bilaði á flugi en til allrar lukku í grennd við flugvöllinn á Akureyri. Þar áir hann til morguns og sefur í íbúð í flugskýli og borðar Dominos pizzu til að koma ró á garnagaulið. Á meðan reynir Þórunn hans að sofna hálf vængbrotin yfir flugbrölti kærastans. Sem sagt...allt í orden hjá börnunum eins og glöggt má sjá.
Vertinn er á hvolfi alla daga frá morgni til kvölds og getur hreint ekkert einbeitt sér að neinu öðru. Vinna í Einarshúsi tekur allan kraft enda er bókstaflega brjálað að gera og allir hafa fangið fullt af verkefnum. Hátt í 250 manns komu í hús sorgar og gleði um helgina og margfalt fleiri hafa boðað komu sína næstu daga svo það er ekkert lát á heimsóknum í þetta merka hús.Steinbíturinn og sjávarréttasúpan er að slá í gegn svo ekki sé meira sagt og heilu þjóðflokkar útlendinga af erlendu bergi brotnir koma æ ofan í æ til að geta fengið að bragða á þeim trakteringum sem í boði eru. Vertinn er þess fullviss að bæjarbúar verða hálffeimnir er þeir sjá hverja rútuna á fætur annarri stoppa við húsið og glaðbeitta ferðamenn fara inn í húsið og trúlega upplifa íbúar bæjarins stemninguna sem ævintýri, sem það vissulega er.
Flaggað var í heila stöng á Einarshúsi í dag í fyrsta skipti í áratugi. Húsbóndinn sem jafnframt er smiðurinn að húsinu reisti stöngina og dró fánann að húni og lét hann blakta við hún. Það var stórkostleg sjón og téður Vert fylltist lotningu er íslenski fáninn bylgjaðist á þessu merka húsi á ný. Pétur og Einar stóðu við hlið títtnefndrar og brostu í kampinn og gleðjast þeir án efa yfir endurbyggingunni enda má ætla að þeir hafi komið að því að leiða verkið áfram. Oftar en ekki læðist sá grunur að húsráðendum í Einarshúsi að allt það verk sem þar hefur verið unnið hafi verið fyrirfram ákveðið því það er ekki einleikið hve vel uppbyggingin hefur gengið og sú hugmynd að reka bar og veitingastað í húsinu einstaklega vel heppnuð. Frumkvöðlarnir Pétur og Einar hafa örugglega haft mikið um það að segja hvernig til hefur tekist og því var flaggað fyrir þeim í dag og svo auðvitað Vertinum í Víkinni, húsbónda hennar og vinnuhjúum og svo náttla blessuðum börnunum sem eru tvist og bast, um víðan völl en heil á húfi.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.