29.6.2009 | 00:03
Kveðjustund
Það var komið að kveðjustund og norski skiptineminn yfirgaf bæinn sem hefði fóstrað hana undanfarna tíu mánuði. Ida var valin mesti Íslendingurinn af öllum þeim skiptinemum sem verið hafa hér á landi undanfarið enda þótti hún hafa samlagast vel af mati AFS samtakanna hér á landi svo hún er orðin með sanni norskur Bolvíkingur. Hún aðlagaðist fjölskyldunni sinni fullkomlega og var orðin ein af oss og því var hún kvödd með eftirsjá. Hún talaði málið nær fullkomlega og var orðin afar íslensk í hugsun og háttum. Svaf stundum fram á hádegi og allt hvað eina en það var eitt af því sem hún undraðist hvað mest þegar hún kom hve heimilismenn gátu sofið lengi frameftir. Nú er herbergið autt og engin Ida.
DON'T MESS WITH THE VERT!
Aðrir sem heimsóttu Einarshús um helgina kvöddu ekki með kurt og pí líkt og skiptineminn heldur létu greipar sópa um muni hússins og skemmdu og eyðilögðu í ölæði. Vertinn varð því að leggjast í rannsóknir og segja má með sanni að hvorki Herkjúl Peró né Sjerlokk Hólms komust hvorugir með hælana þar sem títtnefnd hafði tærnar þegar kom að því að leysa þetta einstaka glæpamál. Hringurinn þrengdist æ meira um tiltekna aðila og loks var látið til skarar skríða og meintir teknir tali af téðum Vert. Svona til glöggvunar fyrir lesendur þá skal það tekið fram að heimsóknin til þeirra sem lágu undir grun var engin sérstök kurteisisheimsókn enda gaf hún ekki tilefni til slíks. Heimsóknin skilaði þó tilætluðum árangri og þýfinu var skilað er dagur var allur og glögglega sást glitta á tár er beðist var afsökunar á tiltækinu og iðrunin virtist augljós. Það ætti því að vera hverjum manni ljóst sem les þessa frásögn af þessu einsæða sakamáli að betra er að haga sér vel og lifa eftir þeirri grundvallarreglu að ganga vel um hús sorgar og gleði og bera virðingu fyrir þeirri uppbyggingu sem þar á sér stað.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 635843
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.