18.6.2009 | 01:55
Ferðasaga rituð í Röðli
Rjómalogn er í Röðli þegar þessi orð eru rituð og Brúaráin bylgjast blíðlega í dalbotni suðurlands. Vertinn er nú stödd í sumarparadís í Spóastaðarlandinu þar sem Gísli frændi og Sigga hafa byggt upp unaðsreit inn í skógarlundi þar sem ávextir vaxa í gríð og erg í gróðurhúsinu og potturinn er hæfilega heitur fyrir ferðalanga vestan af fjörðum. Lognið fær trén varla til að bærast í kvöldinu og kvöldroðinn lýsir upp himininn og kyrrðin er einstök.
Téður Vert hefur sótt heim bæði Hóla og Skálholtsstifti í þessu ferðalagi sínu og gegnið til altaris í hvorri kirkjunni fyrir sig eða fast að því. Bænastund í Hólakirkju róaði hugann og tilvalið þótti að stíga upp í prédikunarstól Skálholtskirkju og blessa söfnuðinn í eitt skipti fyrir öll. Ekki var frítt við það að allir fengu skírn í rabbat og blessun, auk þess sem fyrirgefning syndanna fylgdi í kjölfarið svo sunnlendingar eru seif í einhvern tíma fyrir utanaðkomandi óvættum.
Safn er í kjallara Skálholtskirkju þar sem má sjá líkkistur fornra biskupa og grafskriftir hinna og þessa. Nokkuð ljóst má telja að það hefur ekki verið auðvelt starf að vera kistusmiður í denn og því síður kistuberi því ein kistan sem er til sýnis á safninu hefur að geyma bein biskups til forna og er kistan höggvin út úr móbergsklöpp og níðþung í kaupbæti svo ætla má að það hafi tekið í að bera hana síðasta spölinn.
Bloggið hans Jóns Wídalíns er á aldagömlum tréhlera sem haganlega er fyrirkomið á safninu í kjallara kirkjunnar. Þar má sjá ævagamla grafskrift sem hefur að geyma lofsorð um látinn mann. Ekki mátti þó miklu muna að sérlega óheppilegur klaufaskapur títtnefndrar yrði þess valdandi að þessa merka grafskrift dytti af veggnum þegar Vertinn missti fæturna og " datt" utan í myndina af einhverjum óskiljanlegum orsökum svo minnstu munaði að illa færi. Skjálfti fór um Suðurlandið í kjölfarið en ró færðist yfir á ný er það þótti sýnt að myndin myndi hanga á veggnum einhver árþúsund til viðbótar og bloggið varðveitast eitthvað lengur.
Gullfoss stóð sína plikt en glotti út í annað er títtnefnd gekk fram á ystu brún á háhæluðu skónum og fólk gerði hálfpartinn grín af fótabúnaðinum. Vertinn vissi þó betur því hællinn var einkar góður viðspyrnustoppari og gerði það að verkum að téður Vert varð stöðugri fyrir vikið og hélt góðu jafnvægi. Geysir stóð vaktina og gaus svona rétt til að sýnast og þóknast ferðalöngum sem koma vítt og breytt úr veröldinni til að sjá þetta undur og hjarta landsins sló taktfast.
Rabbarabóndinn á Löngumýri var sóttur heim og rabbabarakarmellan Rabarbía keypt í þónokkru mæli og gert er ráð fyrir að hægt verði að kaupa hana í húsi sorgar og gleði þegar heim verður komið þ.e.a.s ef Vertinn verður ekki búin að eta hana sjálf.
Sérleg heppni þótti það að fá soninn og tengdadótturina í heimsókn í Röðul yfir nóttina. Heitt sunnlenskt auðlindarvatn var látið renna viðstöðulaust í pottinn og ekki var frítt við það að Suðurlandið væri öfundað af jarðhitanum. Heppilegra hefði verið ef slíkum munaði hefði verið dreift vítt og breytt um landið í jöfnum skömmtum til landsmanna en taka verður því eins og hverju öðru hundsbiti í hæl. Tíminn í pottinum var því nýttur til hins ýtrasta í bústaðaferðinni og bleytt var vel í mannskapnum til að njóta herlegheitanna í botn.
Vínviðurinn í gróðurhúsinu í Röðli samanstóð að kirsuberjatrjám, eplatrjám og perutrjám auk þess átti bláberjatré og kryddjurtir af öllu tagi heimkynni þar inni. Það var einkar gott að fara rétt út í gróðurhúsið og þar var kryddið á kjötið og salatið allt á einum og sama staðnum. Útigrillið var brúkað eins oft og þurfa þótti og lostæti framreitt af fingrum fram og ekkert var til sparað í mat og drykk. Vertinn drakk auðvitað einungis lindavatn og ekkert sterkara en það og enda er títtnefnd með ofnæmi fyrir sterkum drykkjum. Það var vissulega til baga að geta ekki bragðað á bjórnum sem bruggaður er í Ölvisholti en mjög fróðlegt að fá að sjá brugghús Sunnlendinga og fá að fylgjast með hvernig framleiðslan fer fram. Ekki hefði þó veitt af smá hjartastyrkingu er draugar og mórar voru sóttir heim á Stokkseyri en segjast verður alveg eins og er að það var bara nokkuð skemmtilegt að heyra sögur af draugum og þeirra háttarlagi til forna í Draugasafninu. Það vildi til að Garún..Garún hringdi kirkjuklukkunum svo allir voru óhultir á þessu ferðalagi meðal hrekkjóttra afturganga.
Einarshúsið kallar nú háum rómi því vinnuhjú er að fara í frí og stórveisla á mánudaginn þar sem hópur fyllir báðar hæðir svo ekki þýðir að vera að leika sér lengur í bili og heimferð er fyrirhuguð í fyrramálið. Þingeyri hefur svo boðið téðum Vert að dæma söngvakeppni á 17. júní svo heimahagarnir kalla hástöfum.
Vertinn kveður því Suðurlandið þetta sinnið og segir bless, ekkert stress og verið hress líkt og Hemmi Gunn hefði sagt við svipaðar aðstæður. Vel á minnst þá fór fyrrnefndur Hermann Gunnarsson á mis við margnefnda í Bylgjulestinni um helgina er þeir voru fyrir vestan á ferðalagi en kappinn hringi og tók þeim tíðindum að títtnefnd væri utan þjónustusvæðis með grátstaf í kverkum. Ef marka má hversu oft hann kallaði Vertinn i Víkinni "Ástina sína" má ætla að tekið verði spjall við tækifæri.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 635843
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.