Heim að Hólum

Guðmundur Arason biskup hinn góði draup höfði er Vertinn renndi í hlaðið á Hólum í Hjaltadal um hádegisbilið og vottaði títtnefndri þar með lotningu sína. Guðbrandur Þorláksson lét upp úr biblíunni rétt á meðan og fagnaði ákaft hinum til samlætis og kirkjuklukkunum var hringt í ákafa.  Hér að Hólum áir téður vert á námskeiði í Krásum sem er hluti af verkefni sem ma. styður við frekari þróun matseðils í Einarshúsi og drekkur í sig visku og vísdóm því tengdu. Hér eru ferðaþjónustuaðilar vítt og breytt af landinu auk þeirra sem eru í matvælaframleiðslu af ýmsu tagi og sjúga að sér fróðleik af ýmsu tagi. Hólableikjan var á matseðlinum í kvöld sem bragðaðist guðdómlega en sökum ofnæmis fyrir áfengi situr Vertinn ekki að sumbli með hinum sem nú gæða sér á hvítvíni og öðrum eðaldrykkjum og eru nú orðnir málglaðir í meira lagi því títtnefnd komin í koju og ætlar bara rétt að blogga fyrir svefninn. 

Helgin var brjálæðislega viðburðarík enda margir í bænum og gaman að vera til. Kjallarakeppnin var á sínum stað á föstudagskvöld að vanda og spyrill var Bjarki Friðbergsson sjómaður með meiru. Jóhanna Bjarnþórs bar sigur úr bítum ásamt liði sínu og fékk því kassann að launum. Rétt er þó að árétta að einungis tveir og tveir eru saman í liði í Kjallarakeppni sem svara skulu þessum 30 spurningum skriflega þó sú undantekning sé gerð að maður geti verið einn í liði með sjálfum sér og engum öðrum telji hann sig sérlega gáfaðan.

Guðrún SnæbjörgGuðrún Snæbjörg kom sá og sigraði á stóra sviðinu eftir Kjallarakeppnina en þetta var í fyrsta sinn sem konan sú tekur að sér að leika opinberlega og má hún vera stolt af því hvernig til tókst. Vertinn var nokkuð montin er hún tók danska lagið sem títtnefnd textaði en textinn var birtur á blogginu ekki alls fyrir löngu. Var Guðrún búin að láta skella inn gítargripum og stelpan fór létt með að syngja það og spila og það kom nokkuð flott út. Alveg er það merkilegt hvað stóra sviðið í Kjallaranum rúmar alla jafnt, bæði krakka með hár og kalla með skalla því kvöldið eftir steig hljómsveitin Hermann og hásetarnir á stokk og stóð fyrir trylltu stuði fram á morgun. Vertinn var búin á því og hafði ekki tök á að fylgjast með þessum köppum spila en hefur heyrt því fleygt að laugardagskvöldið hafi verið frábært. Á markaðshelgi spilar hljómsveitin "Baldur og Bolvíkingarnir" sem samanstendur af sömu gæjunum að mestu en húsbóndinn mun þó leika á trommurnar af hjartans list.

Raggi kokkar

Raggi var stórgóður kokkur og stóð "bak við eldavélina" allan liðlangan daginn. Samvinnan gekk snurðulaust og einstaklega gaman að vinna með svo samhentu liði sem vann í Einarshúsinu. Gestakokkur á markaðshelgi verður Laddawan Dagbjartsson og ætlar hún að töfra fram hlaðborð guðdómlegra rétta fyrir gesti.

Mugison

Toppurinn var svo auðvitað Mugison sem mætti óvænt. Hann söng með sínum einstaka stíl og sló á gítarinn og stappaði niður fótunum til að undirstrika rithman í sínum frábæru lögum. Það má eiginlega segja að heimsviðburður hafi átt sér stað í húsi sorgar og gleði sem geymir nú sögu Mugisons ásamt sögum allra hinna. Einarshúsið réð sér ekki fyrir kæti þessa helgi og bíður spennt þeirrar næstu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 635843

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband