Júróvisíon í Einarshúsi

Enginn Íslendingur horfir á Júróvisión en allir sitja sem fastast fyrir framan imbakassann meðan á keppninni stendur þrátt fyrir það. Ekki nokkur lifandi hræða sést á labbi og fólk þorir varla að fara á salernið svo það eigi ekki á hættu að missa af sekúndu skemmtunarinnar og dregur vart andann er framlag Íslands er í flutningi. Þess vegna situr Vertinn í Víkinni límd við skjáinn í augnablikinu en gefur sér þó tíma til að blogga örlítið svona rétt fyrir lesendur. Mörg lög eru frambærileg og önnur ekki eins og gengur og títtnefndri nærri slétt sama hver vinnur og hver tapar en er þó fylgin lagi sinnar þjóðar í hvívetna og lögum nágrannaþjóðanna.

Þessu ástandi má líkja við  slúðurtímaritið " Séð og heyrt" sem enginn þorir að viðurkenna að fletta nokkurn tíðan tímann en samt lesa það allir bæði aftur á bak og áfram. A.m.k. virðast ansi margir vita æði mikið um hvað fína fólkið í höfuðborginni gerir sér til dundurs en ekkert þykir þó eins fréttnæmt og þegar fólk er að gera það sem ekki má. Er nær undantekningalaust búið að ganga frá skilnaði áður en giftingin fer fram á forsíðu til að eiga nægt slúður upp í erminni til að tjalda fram þegar lítið annað fréttnæmt er í boði.

Spurningar hafa vaknað hvar best sé að halda keppnina ef það kemur í hlut okkar Íslendinga. Einarshúsið er auðvitað augljós kostur í því sambandi enda virðist húsið laða sig að öllum þeim gestum sem heimsækja hús sorgar og gleði í Bolungarvík. Stóra sviðið er kjörið fyrir viðburðinn og hægt er að varpa herlegheitunum á skávarpann á efri hæðinni ef þarf svo ekkert er að vanbúnaði. Borð og stólar eru fyrir hendi og nóg af kolamolum úr kolageymslunni svo þess vegna þykir þessi hugmynd einstaklega heppileg og góð fyrir land og þjóð.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 635843

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband