Mörg hlutverk

Vertinn í Víkinni þurfti að bregða sér í mörg hlutverk í dag eins og svo oft áður. Stundum kemur það fyrir að ekki er vitað með vissu, í gervi hvaða kvikinda líki þarf að bregða sér í þegar svo ber undir. Stundum kemur það til góða að geta nýtt sér kosti þess að vera Vert, fréttaritari og bæjarfulltrúi í einni og sömu andránni en svo kemur fyrir að það kemur sér afar illa og er alls ekkert hentugt. 

Það að vera "sjálfs síns herra" þýðir í raun að margnefnd er flækt í neti sem hefur það litla möskva að engin leið er að synda þaðan út. Ætíð verður að standa vaktina og vera til taks þegar kallið kemur og lítið þýðir að afþakka vinnuna og biðja um frí á ögurstundum. Þennan fórnarkostnað verður þó hver sjálfs síns herra að færa með bros á vör því reksturinn stendur og fellur með því að Vertinn standi sína plikt. Segjast verður þó alveg eins og er að títtnefnd myndi alls ekki inna samsvarandi verk af hendi fyrir nokkurn annan lifandi mann fyrir þetta kaup.

Títtnefnd vakti athygli á því á þingi um atvinnumál sem haldið var í dag hve nauðsynlegt er að hlúa að þeim fyrirtækjum sem fyrir eru í samfélaginu og sprottið hafa upp af atorku og eljusemi bæjarbúa. Stundum þarf að opna augu fólks fyrir því sem hér er í boði og áður hefur Vertinn komið inn á það að ef við nýtum okkur ekki það sem boðið er uppá í bænum, gætum við átt á hættu að missa það í burtu. Þess vegna er mjög mikilvægt að standa vörð um það sem er í byggðarlaginu og styðja og styrkja það sem frekast er unnt og þar bera allir mikla ábyrgð. Vertinn glennti glyrnur og eyru sem von er, á fundinum þegar upp kom sú  hugmynd að hér í bæinn vanti annað kaffihús en kaffihús hefur verið rekið í Einarshúsi undanfarin ár en aðallega þó yfir sumartímann. Þegar staðið er upp á endann alla daga, allan ársins hring við að finna leiðir til að brjóta upp hversdagsleikann og bjóða upp á næga afþreyingu og andlega og líkamlega næringu læðist að sá grunur að margnefndri að það sé tilgangslaust að standa í slíku þegar svona snjöllum hugmyndum er varpað fram.

Vertinn, bæjarfulltrúinn, ljósmyndarinn og fréttaritarinn brá sér svo í gervi ruslatínslumanns sem týndi ruslið kringum hún harma og hamingju og varð að vaða drullupollana sem valdir hafa verið af handahófi til að þjóna hlutverkum bílastæðis fyrir gesti Einarshúss. Vonandi þorna þeir fyrir sumarið svo ekki þurfi að vaða upp í klof til að komast að húsinu til að njóta trakteringa.

Til að bæta gráu ofan á svart brá títtnefnd sér í búning grúpp-píu á hljómsveitaræfingu HLB í kvöld. Þá vöru hlutverkin orðin æði mörg yfir daginn og glöggt má sjá að orðið atvinnuleysi er ekki í orðabók títtnefndrar. Hér er láti fljóta með upptaka af æfingunni í kvöld


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þuríður Guðmundsdóttir

Flott hljómsveit ég hlustadi sko nokkrum sinnum á tetta og audvita eru teir bestir´Kvedja frá Grimsby

Þuríður Guðmundsdóttir, 13.5.2009 kl. 04:37

2 Smámynd: Katrín

Hjó eftir þessari kvörtun..að það vantaði bókakaffihús....við reddum því Ragna mín..ég á fullt af rómönum á ensku og einhverjar íslenskar sem hægt er að bjóða uppá með kaffinu og volá ...bókakaffihús komið:)  

Katrín, 13.5.2009 kl. 09:44

3 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Held að sögur frumkvöðlanna í Einarshúsi, Einars saga Guðfinnssonar og Brimgnýr, bók Jóhanns Bárðarsonar um ævi og störf Péturs Oddsonar gæti hugsanlega líka sómt sér vel á bókakaffihúsi með rómönsum á erlendum tungum....annars held ég að ef að það yrði að veruleika vantaði ekkert í bæinn nema hagyrðinga eða hannyrðakaffihús, nektar eða nautankaffihús eða bara hvað eina sem ekki er í boði í það og það sinnið  

Fá kaffihús hafa þó uppá að bjóða æfingar með HLB flokknum og ég skil vel að Þuru þykji þeir langflottastir því fjarlægðin gerir fjöllin há og mennina mikla

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 13.5.2009 kl. 18:31

4 identicon

Vá hvað þetta er flott, mig langaði bara að fara að dansa, þekki ég einhvern í hljómsveitinni?

Kolbrún Rögnvaldsdóttir (IP-tala skráð) 14.5.2009 kl. 00:01

5 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Kristján Karl Júlíusson er á hljómborði, Gummi Ásgeirs, sem ætti að vera þér að góðu kunnur, er á gítarinn hægra megin, minn ektamaki er á trommum en hann er nú eiginlega orðinn Bolvíkingur, enda búinn að búa lengur í Víkinni en í Reykjavík þar sem hann er fæddur og uppalinn. Hinir eru aðkomu og utanbæjarmenn sem eru þó vel séðir í Víkinni á hátíðis og tyllidögum í Kjallaranum í Einarshúsi

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 14.5.2009 kl. 00:26

6 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Þess má svo geta að Gummi Ásgeirs ljáir bandinu ýðilfagra rödd sína

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 14.5.2009 kl. 00:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband