Tangó

Skemmst er frá því að segja að undanfarnir dagar hafa liðið með ógnarhraða. Stírurnar hafa varla verið stroknar að morgni dags þegar kvöldhúmið leggst upp að og leiðir Vertinn til hvílu. Reyndar er morgunskíman oftar en ekki við sjóndeildarhring þegar læðst er upp í rúm um helgar og oftar en ekki slær hjartsláttur Einarshúss  taktfast við gestagang næturinnar. Ylurinn frá kamínunni varpar ævintýralegum skuggum á andrúmsloftið og skuggarnir dansa tangó við títtnefnda þegar líða tekur á. Með öðrum orðum þá er vaktin staðin fram á rauðan morgunn og oft er margnefnd orðin ansi framlág undir restina og þarf oftar en ekki allan daginn eftir til að jafna sig.

Vertinn stóð fyrir framboðsfundi á síðasta vetrardag í Einarshúsi þar sem öllum frambjóðendum í NV kjördæmi bauðst að senda fulltrúa sína. Það var eins og við manninn mælt að húsfyllir var á fundinum enda var þetta eini fundurinn sinnar tegundar í kjördæminu. Það má í raun furðu sæta hve allir tóku vel í framtakið og flest framboð sendu fulltrúa á fundinn með stuttum fyrirvara og allir stóðu sig með stakri prýði eins og við var að búast, ekki síst Óli Kitt sem var fundarstjóri.

Lýðræðishreyfingin sendi þó ekki fulltrúa á fundinn enda má ætla að þar á bæ hafi frambjóðendum þótt þessi framboðsfundur verið pakkaður full mikið í kassa og þeir sem sátu fyrir svörum þurft þess vegna að svara fyrirframákveðnum spurningum sem ákveðnar voru af þeim sem spurðu, en ekki þeim sem áttu að svara. Þess vegna er fjarvera þeirra eðlileg en ánægjulegt að geta þess að allir fengu sömu eplin í sína körfu og sama tækifæri á að koma og vera með og lítið þýðir fyrir Ástþór að segja að títtnefnd hafi sent honum appelsínu þegar allir hinir fengu epli. Þá er hægt að loka þessari ávaxtaumræðu í eitt skipti fyrir öll.

Helgin var annars þokkalega góð og vel var tekið á móti þeim sem komu í heimsókn. Stíft áframhald er fyrirhugað og byrjað er að bóka fyrir hópa langt fram á sumar. Vertinn er mjög vongóð og bjartsýn á gott sumar og er þegar full tilhlökkunar að taka á móti þeim sem sækja Bolungarvík heim. Viss útrás er fyrirhuguð þó ekki sé beint hægt að tala um að títtnefnd tilheyri hópi útrásarvíkinga en ótal hugmyndir eru í farvatninu sem ekki verða uppgefnar á þessari stundu.  Vænta má þess ef þær verða að veruleika, birti enn frekar yfir bænum og geri hann fýsilegri áfangastað fyrir vikið. Betra er þó að tala minna og framkvæma meira því það telst jafnan heillavænlegast svo væntanlega er lag að láta hér staðar numið um það sem ekki má segja frá.

Nú er ég auðvitað búin að gera alla frávita af forvitni og ætla því að skipta snarlega um umræðuefni. Allteins má geta sér þess til að allt geti verið haugalygi eða helber ósannindi sem hér er ritað hvort eð er, ef því er að skipta, svo lesendur ættu því að hafa varann á og reyna ekki að lesa milli línanna.

Helgin verður undirlögð af uppákomum eins og vant er í Einarshúsi. Kjallarakeppnin er á sínum stað að vanda á föstudaginn en spyrill er Hrafnhildur Sigurgeirsdóttir trukkabílstjóri með meiru. Sýslumaðurinn verður á súpufundi um atvinnu og menningarmál í hádeginu á fimmtudag og Bjarni Ómar Haraldsson mun halda tónleika á laugardagskvöldið og kynna diskinn sinn sem ber heitið Fyrirheit. Það er ósköp ljúfur og rólegur diskur og þeir sem vilja eiga góða kvöldstund eru hvattir til að mæta. Bjarni Ómar mun svo stíga á stóra sviðið um miðnættið aftur ásamt Stefáni Jónssyni píanóleikara og bróðir hennar Hjöddu í Tungu og halda uppi taumlausu stuði út í nóttina. Af þessu má sjá að tangó verður stiginn þessa helgina líka og húsið mun dilla sér í takt við taumlaust stuðið

Fyrsti maí er þó frátekinn hjá Vertinum í Víkinni fyrir stund að heiman ásamt fjölskyldunni. Þá verður títtnefnd fjarri góðu gamni er bæjarbúar flagga og fagna afmælisdeginum. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeir sem vilja minnast margnefndrar eru vinsamlega beðnir að mæta í hús sorgar og gleði og skála í guðaveigum og hrópa fjórfalt húrra milli kolamola úr gömlu kolageymslunni Vertinum til handa.

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband