15.4.2009 | 01:19
Lán að fagna
Varðskipið áði í Ísafjarðardjúpi er Vertinn ók á fjallajeppanum til höfuðstaðarins í kvöld. Ekki var að sjá merki hættuástands í farvatninu á Vestfjörðum enda þokkalegasta veður í hvívetna svo líklega eru varðskipsmenn á venjulegu eftirliti vestra. Lífið er með ró og spekt enda fjörug helgi afstaðin og menn að safna kjarki til að takast á við næstu skref tilverunnar. Ekkert viðbúnaðarstig á kjálkanum og menn og skepnur því ekki í hættu þrátt fyrir allt.
Fjölmörg þjóðlönd munu eiga því láni að fagna að fá Vertinn og hennar skyldulið í heimsókn þetta árið. Berlín iðar í skinninu eftir því að títtnefnd heiðri land og þjóð ásamt húsbóndanum og kanslarinn ku vera full tilhlökkunar yfir því að fá að berja viðkomandi augum. Mikill viðbúnaður verður í landinu og þjóðfáninn mun blakta við hún í hverju héraði í Þýskalandi enda litið á títtnefnda sem þjóðhöfðingja. Vertinn mun þó ekki nöldra við húsbóndann í viðtölum og líkja sér við Dorrit sem líkti sér við múslimakerlingu enda slíkt ekki við hæfi á erlendri grundu né yfirhöfuð nokkur staðar.
Unglingurinn pantaði sér ferð til Noregs í kvöld en hún ætlar að besöka vini okkar og frændur þar ytra. Skiptineminn og hennar fjölskylda mun taka á móti henni og fóstra hana af alúð í nokkra daga og leifa henni að njóta lands og þjóðar. Kærastinn bauð eldri dótturinni til Írlands í vikutúr í tilefni af útskrift hennar úr MÍ í vor svo ljóst má telja að allir verða á faraldsfæti um hin ýmsu lönd. Ekki hafa heyrst fregnir af útlandaferðum sonarins og hans kærustu enda tekur lærdómurinn í flugskólanum allan tímann fram á haustið svo reikna má með því að hann ferðist milli staða innanlands í ár eða skjótist í sveitina eða hingað vestur eftir því hvor togar meira í, mamman eða tengdamamman.
Af þessu má glöggt sjá að ævintýrin tylla sér á hvert fjörugrjót í firðinum og lífið er ævintýri sem greypt er í sandinn. AA vinkonan er væntanleg í morgunkaffið og Vertinn er byrjuð að blogga af viti á ný sem er gott. Það virðist liður í bata alkans í þessu tilviki að geta nótað hugsanir sínar á blað reglulega og festa frásögnina af því sem gerist á stað sem þennan. Því er nauðsynlegt að gefa sér smá tíma til að fara haganlega með sannleikann hér á blogginu og halda áfram að spila með í ævintýri lífsins.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.