13.4.2009 | 15:13
Að lokum
Hreint út sagt framúrskarandi helgi er nú að baki og segjast verður alveg eins og er að Vertinn er himinlifandi eftir heimsóknirnar yfir páskana. Kjaftfullt var í Kjallaranum í nótt sem leið og setið var á báðum hæðum svo húsið nýttist nánast til fullnustu. Toppurinn hefði þó verið ef gistingin hefði verið komin í gagnið á efstu hæðinni en það kallar á örlítið lengri þolinmæði og tíma því góðir hlutir gerast hægt og nauðsynlegt að geta sætt sig við það.
Hjörtur Trausta blés ekki úr nös alla nóttina og var til fyrirmyndar í alla staði og í raun alveg frábær og títtnefnd hefur lagt inn óskir þess efnis að hann komi aftur og aftur og aftur. Systkini hans sungu með honum þegar svo bar undir og margnefnd telur það mikið lán fyrir Bolungarvík að hafa alið svona tónelsk systkin af sér. Stóra sviðið í Kjallaranum rúmaði alla og hljóðkerfið bar hljóðið til gestanna sem endurspeglaði englaraddir bolvísks tónlistarfólks svo unun var að heyra og hvílíkt lán sem lá í loftinu. Bolungarvík er afskaplega rík af hæfileikaríku fólki og frábært þegar það fær tækifæri til að láta ljós sitt skína.
Þau forréttindi að fá að reka Kjallarann og fylgjast með flóru mannlífsins og vera með puttann á púlsinum eru einstök. Að fá að taka á móti fólki sem er komið saman til þess eins að skemmta sér og hafa gaman er svo einstaklega skemmtilegt að Vertinn vildi ekki skipta fyrir nokkurn mun. Ætla má að eitthvað á fjórða hundrað manns hafi heimsótt hús sorgar og gleði um páskana og ekki er hægt að kvarta yfir því. Tilhlýðilegt telst að þakka gestum komuna og prúðmannlega framkomu í alla staði. Það verður að segjast alveg eins og er að þeir sem sækja heim hús sorgar og gleði eru einstakir.
Auðvitað gefur það auga leið að þegar næturvaktin er staðin nótt eftir nótt fram á rauðan morgun fer dagurinn í afslappelsi og rólegheit. Orkan búin og restarnar ekki nema hálfdrættingur á við hitt. Vertinn verður þó að halda á, því önnur helgi bíður eftir þessa sem miklu stuði og fjöri þar sem Benni Sig þenur raddböndin á miðnætti á laugardagskvöldið eftir einkasamkvæmi. Þar verður mikið stuð og mikið gaman og virkilegt tilhlökkunarefni.
Vertinn þarf þó að rísa upp því hljómsveitin Haltur leiðir blindan bíður í Kjallaratröppunum og bankar á dyrnar. Hljómsveitaræfing er fyrirhuguð og stóra sviðið mun iða af lífi í dag eins og í gær.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.