12.4.2009 | 21:06
Upprisan um miðnættið
Sá sem reis á þriðja degi mun án efa gleðjast yfir fjörinu sem verður í Kjallaranum frá miðnætti í kvöld. Hann mun trúlega dilla sér í hásætinu við hægri hönd guðs föður almáttugs en mun varla koma og dæma lifendur og dauða rétt á meðan Hjörtur Trausta tekur lagið út í nóttina.
Hjörtur stillti upp á stóra sviðinu í dag og tók nokkur vel valin lög fyrir títtnefnda og það sem ómaði um húsið gaf þess glöggt merki að strákurinn er stórskemmtilegur og á eftir að halda uppi taumlausu stuði. Ekki er neitt sérstaklega reiknað með því að restin af Fjallabræðrum raddi né tóni með kappanum enda var ekki annað að heyra en að hann komi sínu vel til skila og þurfi ekki hjálp við sönginn en vænta má þess þó að hann fái aðstoð frá velvöldum látúnsbörkum eftir þörfum.
Lagt er því til að menn setji tímanlega brilljantín í hárið og finni lakkrísbindið eða mæti bara klæddir eftir þörum. Heilagur andi verður án efa yfir undir og allt um kring þó fyrirgefning syndanna fáist ekki í rabbat með hverjum drukk sem keyptur er á uppsprengdu verði í kolageymslunni. Ekki er hægt að lofa upprisu mannsins né eilífu lífi en taumlaust fjör er hægt að bóka í Kjallaranum í Einarshúsi í nótt svo lagt er til að sem flestir mæti
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.