Flensuskítur

Ekki er úr vegi að geta þess að Vertinn liggur líkt og hver annar kramaraumingi í rúminu þennan dintinn með flensuskít. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir það að viðhaldinu hefur verið sinnt af mikilli alúð því tölvan hefur verið beintengd við rafmagnið við rúmið og komið að afar góðum notum fyrir vikið. Allskyns pistlar uppfullir af skrökvulygi hafa litið dagsins ljós á hinum og þessum vefmiðlum landans enda eru hrekkir í uppáhaldi hjá títtnefndri þá sér í lagi á fyrsta apríl. Tilhlýðilegt telst að leiðrétta aprílgabb sem birt var hér á síðunni í gær um laus störf í Einarshúsi þar sem óskað var eftir erótískum dönsurum. Það er auðvitað hin mesta vitleysa svo ekki sé hér meira sagt.

Það verður þó að segjast alveg eins og er að það gerist svosem ósköp lítið þegar legið er við rúmstokkinn allan daginn og þó títtnefnd sé ekki beint við dauðans dyr þá liggur margnefnd og veltir sér upp úr vorkunnsemi annað slagið. Ekki er farið að örla á legusárum að neinu viti enda er þetta einungis annar dagurinn þar sem títtnefnd er föst við fletið. Slenið skal þó hrist af sér í bítið í fyrramálið enda er súpufundur um atvinnu-og menningarmál í hádeginu á morgun og lag fyrir Vertinn að mæta og leiða samkomuna áfram.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband