Kolamolinn á kostakjörum

Ætli það megi ekki fullyrða það að kolamolinn verði á kostakjörum í Kjallaranum í kvöld til miðnættis er þeir félagar Jómmi og Stjáni stíga á stóra sviðið. Afar mikilvægt er því að mæta eins snemma og hægt er til að  næla sér í drukk á ódýru verði og svolgra í sig mjöðinn meðan hann rennur á spottprís. Þeir félagar hafa nú þegar stillt upp græjum sínum til að ómur þeirra hljómi óhikað til þeirra sem hlusta og sjaldan eða aldrei hafa sést aðrar eins hljómgræjur í húsinu en kapparnir eru samstilltir í gegnum tölvur sem varpar gítarhljómum og textum á skjáinn þegar síst skildi. Jónmundur stjórnar svo herlegheitunum með sérstöku apparati og opnast þá heimur laga og texta á tölvunni hjá Stjána svo hann veit upp á hár hvaða hljóma hann skal ná út úr gítarnum og barkakýlinu í leiðinni. Vertinn ætlar að standa vaktina og hvetur sem flesta til að mæta líka og upplifa ekta kráarstemningu í Einarshúsi.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband