20.2.2009 | 01:11
Ylfa Mist spyrill í Kjallarakeppni í kvöld
Það er engin önnur en Ylfa Mist sem er spyrill í Kjallarakeppninni í kvöld. Keppnin hefst að vanda klukka 22:30 eða um það leiti og tilboð verða á kolamolum úr gömlu kolageymslunni. Ylfa situr sem fastast á skólabekk og lærir lyfjafræði og aðrar tengdar greinar af miklum móð um þessar mundir og af því má ætla að hún viti allt og ekkert um hvað eina sem amar að bæjarbúum og geti lagt mat á hverskyns sjúkdóma og orsakir þeirra. Þess vegna telur Vertinn tryggara að keppendur lesi bækur og blöð sem fjalla um bakflæði og blöðrubólgur, ristruflanir, ristilspeglanir svo ekki sé minnst á hægðarteppu út í hörgul auk þessa að kynna sér vel gangverk mannslíkamans til að glöggva sig sem best á stöðunni. Trúlega tekur hún blóðþrýstinginn eftir hverja spurningu fyrir sig og án efa á hún eftir að syngja spurningar fyrir gesti milli þess sem hún dreifir sögusögnum um áhrif Viagra á Víkara eða öfugt og þar fram eftir götunum. Verðlaunin eru eins og fyrr segir drukkur í fljótandi formi frá Vífilfelli.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.