Sveifla

Frændur okkar Færeyingar eru í nokkru uppáhaldi þessa stundina hjá títtnefndri þá sér í lagi fyrir söngvarann Jógvan sem söng lagið sem átti að fara til Moskvu að mati margnefndrar svo undurfallega. Ef melódían nær að heilla þá fær hún að rúlla aftur og aftur þar til lagið síast inn og þá ómar það stjórnlaust í undirmeðvitundinni og gerir hvern mann vitlausan á endanum.

Jógvan gat þó ekki komið með í göngutúrinn sem stiginn var í dag í blíðskaparveðrinu í Víkinni svo hann söng sitt síðasta rétt á meðan. Mikil hálka gerði það þó að verkum að Vertinn kunni varla fótum sínum forráð og mátti hafa sig alla við að húrra ekki á óæðri endann þegar síst skyldi. Skógræktin tók á móti títtnefndri með sveiflu og bogabrúin sem liggur yfir Hólsána nikkaði til göngugarpanna og bauð þeim yfir en um það svæði liggur skemmtilegur göngustígur. Hóllinn tók í að venju en ómurinn frá sálmasöngvunum í Hólskirkju dró ekki úr ferðinni frekar en hitt og Jesú bróðir besti leit út um gluggann rétt á meðan spígsporað var framhjá kirkjunni með velþóknun í ásjónu sinni. Passað var sérstaklega upp á það að blóta ekki né ragna í návist hans enda er það ekki við hæfi og engin ástæða til slíks á fallegum degi út í guðsgrænni náttúrunni.

"I think the world of you" átti daginn í dag enda hertók lagið hugann. Næsta vika bíður handan hornsins með ótal verkefnum svo gott er að geta dillað sér við verkin með Færeyinginn sér við hlið. Vertinn mun standa við eldavélina í forföllum eldabuskunnar sem bregður sér af bæ þessa vikuna og án efa verða naglasúpur og burtflogin hænsni á matseðlinum ásamt teiknuðum kartöflum og ýmsu fleira góðgæti kryddað með sagi og öðru því sem til hefur fallið við smíði hússins gegnum árin. Það mun án efa renna ljúflega niður kverkar og kæta og bæta geð þeirra sem teljast til kostgangara Vertsins í Víkinni. Herlegheitin verða svo matreidd af alúð og ætli sveiflan verði ekki stigin með Jógvan eitthvað fram í vikuna enda tvistum við í vindinum meðan við eigum hvert annað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband