Hlutverk

vertinn, veitingamaðurinn og forsetinnÞað má teljast nánast öruggt að Kári nokkur Stefánsson hefði viljað eins og eitt eintak af Vertinum, fréttaritaranum og forseta bæjarstjórnar Bolungarvíkur sem allt í senn er sami einstaklingurinn, upp á sitt borð til frekari rannsóknar eftir dagskrá dagsins. Títtnefnd var þríklónuð er hún steig á stokk í íþróttamiðstöðinni Árbæ í dag til að veita gjöfum viðtöku fyrir hönd bæjarstjórnar. Þá hafði margnefnd ný afklæðst klæðnaði Vertsins í Víkinni en veisluföng og trakteringar voru frá Einarshúsi á þessari merku samkomu. Múndering ljósmyndara Víkara.is var lögð til hliðar ásamt myndavélinni rétt á meðan hæstvirt gegndi trúnaðarstörfum fyrir bæjarfélagið og allt í einni svipan var allt þegar þrennt var og allar runnu þessar hrokkinhærðu kerlingar aftur í sama kroppinn að öllu þessu afloknu. Ekki þurfti að hræra í litningum og láta þá gerjast í glasi til að hægt væri að framkvæma þessa flóknu athöfn enda eru Vestfirðingar þekktir fyrir galdra og brellur og enginn sá trixið sem að baki bjó. Sama brosið var brúkað í öll skiptin enda þurfti engu að breyta til að framkvæma gjörninginn og birtist íslensk erfðagreining í öllu sínu veldi við hliðina á þrektækjum íþróttasalarins. Þetta ætti vissulega að teljast til tíðinda ef það væri ekki alþekkt fyrirbæri í litlum sjávarþorpum að sami einstaklingurinn gegni mörgum störfum og sé eins og landafjandinn út um allar trissur. Hver er sinnar gæfusmiður og uppsker eins og hann sáir og á að vera ánægður með hlutskipti sitt í hvívetna þó hann þurfi endrum og eins og sinna mörgum hlutverkum í einu á sama tíma.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband