Nótt

TertanNú er niðdimm nótt og húmið er allsráðandi er títtnefnd fer yfir atburði helgarinnar. Helgin er búin að vera stórkostleg þrátt fyrir það að mikið hafi verið umleikis hjá Vertinum og hennar skylduliði. Stórveisla var haldin í tengslum við kjör á íþróttamanni ársins á laugardag og allt gekk eins og blómstrið eina. Ekki þarf að fjölyrða neitt um það að annað eins bakkelsi hefur varla verið á borðum fyrr né síðar og þær guðdómlegu kræsingar sem fram voru bornar og fengu borð til að svigna voru æðislegar svo ekki sé meira sagt. Það er auðvitað ekki við öðru að búast því færustu smörrebrauðsdömur og tertuskreytingameistarar á þessari breiddargráðu eru í vinnu hjá téðum Vert. Guðlaug, Gunna og Elsa unnu baki brotnu við að útbúa veisluna og eiga heiður skilið fyrir hversu vel tókst til. Félagar eldri borgara á staðnum fengu svo að njóta afgangsins af tertunni á þorrablóti þeirra á laugardagskvöld í safnaðarheimilinu og vonandi hafa þeir notið þess í hvívetna.

Bátur einn frá Drangsnesi áði við höfnina nokkra stund og tilskipanir komu frá skipper í plássinu um hvar kútterinn ætti að leggja að bryggju svo sem styðst væri að fara á barinn. Báturinn var því festur við Lækjarbryggjuna og kompásinn stilltur til móts við kompásinn úr Hafrúnu sem er í Kjallaranum og radarinn stilltur í humáttina að Einarshúsi. Það var eins og við manninn mælt að fjörið jókst til muna er príðispiltar úr fjarlægu byggðarlagi blönduðust flóru fastagesta og þeirra sem koma endrum og eins til að sýna sig og sjá aðra í bland við síkáta sjóara. Stefnan var svo tekin í háaustur og beina leið um borð er komin var nótt og fjörið á enda

Vertinum er ljúft að geta þess að töluverður áhugi er á krúttmagakvöldi sem haldið verður í þessum mánuði og þegar er farið að panta þrátt fyrir að það sé varla farið að auglýsa herlegheitin. Undirbúningur er þó þegar hafinn og reyndar kominn vel á veg. Líkt og hefð er fyrir á klúrum kvennakvöldum mætir strippari á svæðið (þ.e. ef hægt verður að véla einhvern í verkið). Nokkrir eru þó að hugsa málið og talið er nokkuð öruggt að einhver loðinn og lokkandi karl stigi á stokk áður en yfir líkur en Vertinum var tjáð, að sökum kuldans hér vestra yrði viðkomandi að vera í loðnari kantinum . Það skál þó tekið fram að hið allra heilagasta mun ekki sjást enda mega bolvískar konur ekki vamm sitt vita eins og alþjóð veit og þess vegna er það sett sem skilyrði að g-strengurinn verði ekki látinn fjúka af í hita leiksins. Fjölmargt annað og skemmtilegt verður í boði á þessu kvöldi sem verður auglýst sérstaklega um leið og það er komið á hreint

Annað kvöld bíður undirbúnings en Signstar keppni fer fram þann 21. febrúar. Þegar hefur heyrst af búningasaumun og þess háttar en verðlaun verða veitt fyrir besta búninginn auk besta söngsins. Það verður einkar spennandi

Þess ber að geta í framhjáhlaupi að ómur hefur heyrst af stífum æfingum hljómsveitarinnar "Ixnu" en þar er Muggi í fararbroddi ásamt öðrum síungum skallapoppurum. Stóra sviði bíður þeirra með eftirvæntingu

Svona eru nú hugleiðingar Vertsins um nótt

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband