Kannski

Með einhverjum óskiljanlegum hætti helltist einhver bolvískur rembingur yfir Vertinn í Víkinni í göngutúrnum í dag. Sólin lét geisla sína leika um bæinn í fyrsta sinn á þessu ári og fjallatopparnir bókstaflega grétu af fögnuðu yfir þeirri staðreynd að daginn sé tekið að lengja og sólin að stíga hærra á himni dag frá degi. Fjöllin í kring slógu taktinn í göngutúrnum og hjartsláttur margnefndrar sló einnig í takt við umhverfið. Einhverra hluta vegna varð bærinn sá besti í heimi og títtnefnd fylltist stolti yfir því að eiga hlutdeild í svona fallegum stað.

Hólskirkja jan 2009Það var eins og umhverfið allt um kring væri órjúfanlegur hluti af búknum. Kirkjan var eitt mikilvægasta líffærið og kirkjugarðurinn geymdi fjársjóð minninga um fólkið sem horfið er á braut til nýrra verka. Heilsað var upp á ömmurnar og afana og kross merktur með handayfirlagningu yfir leiðin. Gaui afi var traustur sem klettur nú sem þá og auga var litið til Árna Ella (pabba hennar mömmu) svona rétt í framhjáhlaupi. Hann nýtur þó ekki þeirrar virðingar sem hann ætti skilið vegna þess hve hann útilokaði okkur frá lífi sínu. Hann fékk því ekki krossmark yfir síðasta hvílustað sinn nú frekar en endranær en alltaf staldrar afastelpan hans við leiðið hugsandi yfir því hversvegna hann lét hana afskiptalausa alla tíð, það var mikil sóun á tíma sem hefði getað verið svo góður. Jónína og Per fengu aftur á móti hlýjar kveðjur eins og ætíð og gengið var á hvert leiðið á fætur öðru og heilsað upp á þá sem eru horfnir á braut. Það er kynngimagnaður kraftur sem býr í kirkjugarðinum og þrátt fyrir það að hann Óskar sé ekki lengur upplagður í dansinn er hæglega hægt að dilla sér við stef minninganna er farið er á milli leiðanna í garðinum.

Sumum finnst þetta auðvitað ekki ná engri átt að fara að tala um fólkið í kirkjugarðinum þegar ástandið í þjóðfélaginu er með þeim hætti sem raun ber vitni. Títtnefndri þykir þó betra að sneiða framhjá þeirri umræðu sem tröllríður öllu og minnast löngu horfinna ástvina sem upplifðu sannarlega kreppu og erfiða tíma. Ástvina sem þurftu að slíta sér út til að hafa í sig og á en áttu þó einhvernvegin alltaf nóg og nutu samvistanna hvert við annað.

Kannski kennir þetta ástand sem nú ríkir í þjóðfélaginu okkur að hlúa vel að því sem við eigum. Kannski verða gildin önnur og forgangsröðunin með öðrum hætti. Kannski förum við að standa saman sem einn maður. Kannski verslum í heimabyggðinni til að koma í veg fyrir að búðin hætti og verslunarfólkið missi vinnuna. Kannski förum við á verkstæðið í plássinu til að láta gera við bílinn til að halda bifvélavirkjanum við efnið. Kannski fær rafvirkinn, píparinn, smiðurinn, handlangarinn, málarinn, bílstjórinn endurskoðandinn, bankastarfsmaðurinn, verkamaðurinn og Vertinn bara nóg að gera. Kannski förum við að sjá skóginn fyrir trjám. Kannski látum við ástvini okkar ekki afskiptalausa í framtíðinni eins og afinn gerði við litlu afastelpuna sína. 

Kannski signi ég yfir leiðið hans Árna Ella næst þegar leið mín liggur í garðinn..........já kannski...........

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Minning 7-8 ára.  Þá mætti ég þessum gamla manni, hann fór í vasann og tók upp brjóstsykurpoka og bauð mér og klappaði svo á kollinn.  Hlýlegt augnaráð.  Seinna frétti ég að þetta væri afi minn.

Auður (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 10:52

2 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Mér er sérstaklega minnisstætt hvað ég horfði rannsakandi á hann einn daginn er hann gekk hjá, þá nýbúin að vita að hann væri afi minn. Ég sat á kjallaraglugganum og dinglaði fótunum og mændi á manninn alveg undrandi á því að hann liti ekki til mín og heilsaði. Kannski var augnaráðið hlýlegt og kannski hafði hann brjóstsykur í vasanum og án efa hefur hann viljað klappa mér á kollinn en lífið leið þó hjá án þess.....

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 28.1.2009 kl. 22:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband