Í samband

Gærkvöldið var glimrandi gott í Kjallaranum og fjölmargir sótti  Einarshúsið heim. Eiginlega verður það að segjast að það hafi komið nokkuð flatt upp á téðan Vert því alla jafna er janúar frekar rólegur tími en nú viðist annað vera uppá teningnum núna. Það gleður hjarta margnefndrar að sjálfsögðu og brosið nær út í bæði munnvik að fólk skuli ætla að halda áfram að lifa lífinu lifandi og sína sig og sjá aðra í Einarshúsi. Gestir úr nærliggjandi byggðarlögum eru nokkuð duglegir að mæta og láta Óshlíðina ekki slá sig útaf laginu og það er vel.

Sérlega gaman er einnig að geta þess hve kúnnar Vertsins er umhugað um að allt sé undir kontról ef hitnar í kolunum í hita leiksins. Skjaldborg er slegið um húsið og það sem þar fram fer innandyra ef eitthvað bjátar á og út af ber. Engum líðst að raska því jafnvægi sem þykir einkenna staðinn og allir vinna sem einn maður að því að koma ró á andrúmsloftið ef neikvæðar bylgjur fara að búa um sig í skúmaskotum. Það respekt sem Einarshúsi er sýnt er án efa einstakt enda er húsið einstakt í sinni röð og einir bestu viðskiptavinir sem um getur gestir þar að jafnaði.

Spilavistin var stórskemmtileg á föstudag, þó vissulega fleiri hefðu mátt mæta svona fyrsta kastið á nýju ári. Það mun þó án efa fjölga þegar frá líður eins og venja er til. Úrslit spilavistar geta lesendur lesið á vef Einarshússins og velt þar fyrir sér útsjónarsemi hvers spilara fyrir sig og spáð í spilin. Spilavistin er haldin annað hvert föstudagskvöld á móti Kjallarakeppninni en spyrill í Kjallarakeppni föstudagskvöldið 23. janúar verður Hagbarður Marinósson. Búast má við að hann eigi einhverjar spurningar í handraðanum og  Vertinn telur trúlegt að hann reki karlana á gat og spyrji kerlingarnar spjörunum úr svo menn eru hvattir til leiks.

Þorrablót verður haldið ef næg þátttaka fæst 31. janúar. Þá geta þeir sem verða að þreyja þorrann án þess að komast á hið hefðbundna þorrablót í Bolungarvík mætt og fengið að gæða sér á trakteringum sem hantéraður er eftir aldagömlum aðferðum og kúnstarinnar reglum. Auðvitað er það háð hve margir mæta, hvort þorrablótið verður haldið eður ei. Allar konur sem eiga órakahelda fataskápa og komast ekki fyrir nokkurn mun í íslenska þjóðbúninginn geta glaðbeittar mætt auk allra hinna sem eru misskyldir og fráskyldir, með legsig eða migsig og einhleypir og tvíhleypir og allt þar á milli meðan húsrum leyfir. Allra handa klæðnaður er leyfilegur sem þó verður að vera innan velsæmismarka.

Vertinn í Víkinni hefur fjárfest í hljóðkerfi í Einarshúsið og staðið við loforð sem gefið var þeim köppum Jónmundi og Kristjáni fyrir sl. markaðsdag og er þeim því ekkert að vanbúnaði að skipuleggja sín famtíðarplön í samræmi við nýja hljóðkerfi Kjallarans.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til lukku með nýja hljóðkerfið, það er ekki að spyrja að framtaksseminni á þessum bæ.  Hvaða tegund af kerfi fjárfestirðu í? 

Jómmi (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 09:41

2 Smámynd: Steingrímur Rúnar Guðmundsson

Djö... líst mér vel á það að hljóðkerfi sé mætt á svæðið. Segðu okkur meira um kerfið hehe:)

Steingrímur Rúnar Guðmundsson, 19.1.2009 kl. 11:16

3 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Hátalarnir eru 12" og 150 w og eru ítalskir af gerðinni Lem og þeir eru með innbyggðum magnara. Kassinn utan um hátalarana er úr timbri og því á tónninn að vera mýkri fyrir bragðið.Mixerinn er 12 rása og á að vera ægilega fínn og flottur með allskyns effectum og hátíðnibylgjum i bland við útvarpsbylgjur og djúpsjávarbylgjur. Snúrur fylgja líka kerfinu en þeim verður haganlega komið fyrir á stóra sviðinu svo enginn hengi sig í þeim í hita leiksins. Kerfið er flutt með sérstökum vöruflutningabíl frá Akureyri og þess er vænst að það komi í hús í dag.

Súludansmeyjar, reykvélar og ljósasjóv fylgdu ekki kerfinu enda er það óþarfi þegar trúbadorar eins og þið eigið í hlut

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 19.1.2009 kl. 12:50

4 identicon

Lýst afar vel á þetta.

Jómmi (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 17:03

5 Smámynd: Steingrímur Rúnar Guðmundsson

Töff töff.

Það væri þá ekki nema sápukúluvél eða eitthvað sem myndi setja svip á stemninguna tíhí! Þyrfti þá að vera sér ofnæmisprófuð sápa sko. Vaxon sér samt um froðudiskóið hehe.

Steingrímur Rúnar Guðmundsson, 19.1.2009 kl. 17:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband