14.1.2009 | 02:08
Lukkudráttur
Það er eins og við manninn mælt að nóttin hefur mætt á svæðið í allri sinni dýrð. Máninn hátt á himni skein í kvöldgöngunni og varpaði skugga á bæinn sem lág makindalega milli fjallanna. Nú er Vertinn í gönguátaki sem á að hleypa nýjum þrótti í margnefnda og skapa hraustlegt og gott útlit og auka úthald í hvívetna. Reyndar eru göngutúrarnir bara orðnir tveir það sem af er þessu ári en eiga vonandi eftir að verða fleiri þegar frá líður. Það er fátt sem jafnast á við það að arka hringinn um bæinn í veðri sem var í kvöld. Snjórinn marraði undir skónum og kaldur andvarinn strauk kinnina og hreina loftið fyllti lungun í kvöldkyrrðinni. Hundurinn vísaði veginn og húsbóndinn gekk traustum skrefum við hliðina út í náttmyrkrið framhjá höfninni þar sem bátarnir spegluðust á haffletinum. Stundum vantar Vertinum lýsingarorð til að lýsa því hve fallegt er í heimabænum.
Annar fallegur bær bíður morgundagsins því tvær vinkonur lesa AA bókina vikulega og hittast aðra hvora viku í Súðavík til að fylla hugann andans ró og kyrrð. Þetta eru heilagar stundir þar sem þýður blærinn hvíslar í eyra okkar baráttuanda og kjarki til að takast á við innri ókyrrð og finna frið fyrir ágangi Bakkusar. Alkinn er þó nokkuð róleg þennan dyntinn og í þokkalegu jafnvægi svona dags daglega dags þó hún sé stundum snögg upp ef eitthvað er. Þegar fíflunum fer að fjölga í lífi Alkans þá eru varnirnar í þann veginn að bresta og þá hringja viðvörunarbjöllur í gríð og erg í hugarfylgsninu.
Þar sem Alkinn þarf að rífa sig upp í fyrra fallinu telst tímabært að fara að sofa. Minni þó á það að happdrætti SÍBS dregur í dag, 14 janúar en nýtt happdrættisár er að hefjast uppfullt af lukkudráttum. Allir sem vettlingi geta valdið eru beðnir að kaupa miða og styrkja í leiðinni gott málefni.
Góða nótt
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.