Tíminn

Þegar dagur er að kveldi kominn og litið er yfir andartök dagsins er eins og klukkan hafi verið í kapphlaupi við eilífðina. Varla er Vertinn komin á ról þegar næturhúmið umvefur umhverfið og tíminn telur tímabært að fara í háttinn á ný. Snjókornin sem reika fyrir utan gluggann gjóa augunum að títtnefndir í tölvunni og hrista dúnmjúkan ískristallakollinn yfir tímanum sem fer í að vafra um á netinu. Jafnvægi er þó að komast á dagana eftir jólahátíðina þó svefntíminn sé úr lagi genginn eins og svo oft áður. Kvöldið og nóttin er tími títtnefndrar enda eru morgunlúrarnir unaðslegir en vara þó stundum lengur en lagt er upp með er farið er að sofa að kvöldi og reyndar stundum styttra.

Skipuleggja þarf tíma sinn nokkuð vel ef halda á úti öllum þeim aragrúa af síðum sem Vertinn þarf að halda úti með einum eða öðrum hætti. Þá kemur nóttin sterk til leiks til að blogga, vafra um á smettisskruddunni, undirbúa eina frétt eða svo á Vikarann og kannski vinna örlítið á vef Einarshússins svo ekki sé minnst á söguna hans afa sem skal skrásett að einhverju marki. Heilmikið gamalt efni bíður birtingar og þar liggur nóg fyrir að pikka inn til frekari varðveislu. Sækja þarf svo um einn og einn styrk vegna ýmiskonar verkefna sem gætu fallið vel að rekstri Einarshússins og það tekur sinn tíma sem hefur oftar en ekki borið árangur. Sumir halda reyndar að þetta sé ekki vinna og sagt var um daginn að það væri ekki skrýtið að margnefnd kæmi engu í verk, því tölvan tæki allan tímann frá allri alvöru vinnu en það er auðvitað regin misskilningur eins og sérhver maður getur séð.

Vertinn þarf að láta sjá sig eitt augnablik í hádeginu er karlarnir koma í snæðing í Einarshúsi. Þar lætur hún alla halda að hún hafi komið að matreiðslunni og eigi þess vegna smá heiður af þeim guðdómlega mat sem í boði er þeir vita allir að það er auðvitað regin misskilningur einnig, því Guðlaug er yfir undir og allt um kring í eldhúsinu. Þó kann Vertinn eitt og annað fyrir sér í matargerð en áhugasviðið liggur í öðru. Margnefnd þarf einnig að snattast eitt og annað yfir daginn, kaupa inn þar sem varan er á hagstæðustu kjörum, ná í skiptiminnt, panta drykki, kaupa verðlaun í spilavistina, gera upp kassann,.............og koma kannski heim eitt augnablik, mæta á fundi.......og heimsæja gömlu með reglulegu  millibili en reyndar fer stundum tíma í að gera ekki neitt. Ekki það að Vertinn sé að kvarta yfir of miklu álagi heldur einungis að leifa lesendum að fá smá innsýn inn í lífið og tilveruna, það er auðvitað gríðarleg heppni að hafa svona mikið að gera og leiðinn nær aldrei yfirhöndinni.

Auðvitað verður að gæta þess í hvívetna að eitt atriðið skyggi ekki algjörlega á annað. Bloggvinir kvarta yfir líflausum fréttum hér á síðunni og reynt verður að bæta úr því eins og skot. Myndavélin er varla komin úr jólafríi ennþá og því beðið er færis að taka myndir hér og þar, í gríð og erg og þá munu þær njóta sín hér.

Æðið á feisinu er reyndar yfirgengilegt og allir, bókstaflega ALLIR er þarna inni allt frá vöggu til grafar og nýja brumið af öllum þessu nýju/gömlu vinum hertekur hugann. Sagt er að þriðji hver Íslendingur eignist vini í tugatali á þessari síðu. Fréttir herma að hjónabönd bresti þar inni ef vinskapurinn gengur út í öfgar því ennþá þarf landinn að gera allt með stæl. Já þetta er lyginni líkast.....en...ég má ekki vera að þessu.....ég þarf að bjóða öllum vinum mínum á feisbúkk góða nótt og bið því að heilsa í bili

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ragna mín ég veit ekki hvernig við hér í Englandinu myndum fara að ef þú skrifaðir ekki á bloggið á fecið eða í víkara við lesum þetta allt og drekkum í okkur allt sem þú skrifar og vitum að þetta er heilmikill vinna og í guðanabænum láttu eldhúsið vera og haltu bara áfram að skrifa ekki að ég haldi að þú kunnir ekki að elda ég get bara ekki komið og borðað matin en ég get lesið það sem þú skrifar.Kveðja Þura 

Þura (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 10:51

2 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Þetta er ekki amalegt komment Þura mín....nú hef ég það uppáskrifað alla leið frá Englandi að ég eigi ekkert að koma nálægt eldhúsinu heldur nýta tímann til að sinna mínum hugarefnum og skrifa um allt og ekkert......æðislegt og þúsund þakkir og bestu kveðjur til þín og þinna

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 14.1.2009 kl. 00:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband